Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
History
News
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts211/v4/a8/6c/8b/a86c8b39-f71e-7444-2905-37b176240019/mza_4803781876632147371.png/600x600bb.jpg
Örlítið í ólagi
Hrafndis M
19 episodes
1 month ago
Show more...
Society & Culture
RSS
All content for Örlítið í ólagi is the property of Hrafndis M and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Show more...
Society & Culture
Episodes (19/19)
Örlítið í ólagi
#19 Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann?
Emotions vs. Feelings – er munur og hver er hann? Við segjum oft: „Ég er svo stressuð“ eða „ég er með kvíða“ – en vitum við raunverulega hvað við erum að finna? Í þessum þætti skoðum við hvort það sé munur á emotions og feelings – og hver hann er. Við förum í heimsókn til möndulsins (amygdala), gamla öryggisvarðarins í heilanum sem ýtir á neyðarhnappinn jafnvel þegar við erum ekki í neinni hættu. Við skoðum líka hvernig búddismi kennir okkur að vera með tilfinningum – í stað þess að flýja þær – og hvað það þýðir að mæta sjálfri sér með núvitund og samkennd í eigin garð. Gígja kemur með mér í þennan þátt, og saman veltum við upp spurningum eins og: Hvernig lærum við að þekkja tilfinningar? Hvers vegna eru þær oft svo flóknar? Og hvernig förum við að því að hlusta í stað þess að laga? Velkomin í örlítið í ólagi 💗
Show more...
1 month ago
1 hour 20 minutes

Örlítið í ólagi
#18 Imposter Syndrome – Hvað er það?
Hefurðu einhvern tímann hugsað að þú sért bara heppin, að þú eigir í raun ekki skilið hrós eða að aðrir muni bráðum komast að því að þú veist minna en þau halda að þú gerir? Þá ert þú ekki ein/n. Því í þessum þætti ætlum við ræða imposter syndrome – hvað það er, af hverju við upplifum það, hvernig það mögulega tengist ADHD og AuDHD, og hvaða verkfæri við getum notað til að breyta þessari innri sögu.
Show more...
2 months ago
43 minutes 30 seconds

Örlítið í ólagi
#17 Hvers vegna líður mér svona? – Fæðingarþunglyndi og skömm
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi snerta um 1 af hverjum 7 mæðrum á Íslandi – en samt er þögnin oft háværari en hjálpin. Í þessum þætti skoðum við bæði klínískar og tilfinningalegar hliðar: áhættuþætti, einkenni, úrræði og meðferð – en líka mannlegu sögurnar, skömmina, afneitunina og vonina.Ég opna mig um mína eigin reynslu af fæðingarþunglyndi og deili því sem hjálpaði mér að stíga upp úr þessu erfiða tímabili í lífi mínu. Þátturinn er fyrir alla sem hafa upplifað þetta sjálfir – og líka þá sem vilja styðja, skilja og sjá betur inn í líðan foreldra á viðkvæmu skeiði lífsins. Þú ert ekki ein. Þú ert ekki einn. Og það er til hjálp. Heimildir og fræðsla Kristín Rut – Vísir.is: "Kristín fékk alvarlegt fæðingarþunglyndi: 'Þrengdi að hálsinum á yngri stelpunni'" Sigríður Hrund – Vísir.is: "Var með fæðingarþunglyndi í rúm átta ár" Hlaðvarpsþáttur *Einmitt* #49: Sigríður Hrund – "Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar" Fræðsluvefir: Heilsuvera (landlæknisembættið) Mín líðan / Heilsugæsla Geðhjálp Miðstöð foreldra og barna (Fyrstu tengsl)
Show more...
3 months ago
1 hour 19 minutes 5 seconds

Örlítið í ólagi
#16 „Fokk it“ er stundum það besta sem við getum sagt við okkur sjálf.
Þátturinn í dag er tileinkaður öllum þeim stundum þar sem við erum alveg að bugast, alveg að missa þolinmæðina, alveg að missa vitið eða skíthrædd – og segjum: Fokk it - Ég geri þetta bara. Ég deili mínum eigin "fuck it" mómentum, þar sem ég ákvað að fara í átt sem var óviss, hræðileg og og stundum bráð nauðsynleg – og hvað gerist þegar við hættum að bíða eftir leyfi og förum að lifa lífinu á eigin forsendum. Þetta er fyrir þig sem stendur á brúninni og þarft aðeins spark í rassinn.
Show more...
3 months ago
54 minutes 58 seconds

Örlítið í ólagi
#15 Það sem pirrar mig við þig – og af hverju það snýst um mig í raun
Í þessum þætti langar mig að fara betur í það hvernig sambönd – hvort sem það eru ástarsambönd, vinátta eða fjölskyldutengsl – spegla oft dýpstu sárin og falin svæði innra með okkur. Við skoðum hvað það þýðir þegar eitthvað „pirrar“ okkur í öðrum, hvernig við bregðumst við með varnarháttum eða „projectum“ eigin óöryggi – og hvers vegna sambönd eru kannski besti vettvangurinn fyrir skuggavinnu. Það verður djúpt, persónulegt og kannski pínu óþægilegt. En það er líka þar sem vöxturinn býr.
Show more...
4 months ago
53 minutes 33 seconds

Örlítið í ólagi
#14 Það sem þú forðast, heldur áfram að stjórna þér – Shadow work
Hvað ef það sem þú ert að fela, bæla og forðast – er lykillinn að frelsi? Í þessum þætti kafað ég inn í „shadow work“, eða skuggavinnu – sjálfsvinnu sem gengur út á að skoða og samþykkja þá parta af okkur sem við höfum lært að skammast okkar fyrir eða bæla niður. Ég útskýri hvað skugginn er samkvæmt hugmyndum Carl Jung, hvernig hann birtist í daglegu lífi og hvers vegna við speglum oft okkar eigin óöryggi í öðrum. Við skoðum: Af hverju sum hegðun pirrar okkur svo mikið í öðrum? Hvernig triggers eru speglar? Hvernig hægt er að vinna með skuggann í stað þess að berjast við hann. Þetta er þáttur um sjálfsást, sársauka, skömm – og hvernig við getum orðið heilari manneskjur með því að horfast í augu við eigin myrkur. 
Show more...
5 months ago
51 minutes 5 seconds

Örlítið í ólagi
#13 Sumar, spjall og smá hjátrú
Í þessum létta og sumarlega þætti spjöllum við vinkonurnar Hrafndís og Linda um allt og ekkert – sólardagana, sumarið, framtíðar drauma, smá hjátrú og allt það sem brennur á okkur í augnablikinu.Það er hlátur, hlýja og örlítið rugl – akkúrat það sem sólin pantaði 🌼✨
Show more...
5 months ago
44 minutes 54 seconds

Örlítið í ólagi
#12 ,,Ertu viss um að þú sért að muna þetta rétt?" - Hvernig birtingarmynd gaslýsingar í nánum samböndum getur verið
Í þessum þætti ræðum við gaslýsingu - hvað hún er, hvernig hún birtist og hvers vegna hún getur verið svona ruglingsleg. Við förum yfir dæmi bæði úr rómantískum samböndum og vináttu, og deilum okkar eigin reynslu af því að efast um eigið minni, skynjun og sjálfstraust. Ef þú hefur einhvern tímann hugsað ,,Var þetta svona?" eða ,,Er ég bara að ímynda mér þetta?" - þá er þessi þáttur fyrir þig.
Show more...
5 months ago
1 hour 26 minutes 35 seconds

Örlítið í ólagi
#11 Að loka dyrunum – við eigin foreldra
Í þessum þætti tala ég um það að loka á foreldra – að fara no contact. Þetta er ekki létt ákvörðun. Hún kemur ekki án djúprar togstreitu, sorgar og sjálfskoðunar. Ég opna mig hér í dag og berskjalda, ég segi frá minni eigin reynslu: hvernig andlegt, fínt og ósýnilegt ofbeldi mótaði sjálfsmynd mína – og af hverju ég varð að velja sjálfa mig, jafnvel þótt það þýddi að slíta tengslin sem ættu að vera heilög. Ég tala um það að vaxa upp við skilyrta ást. Um það að þurfa alltaf að „vera góð stelpa“ til að fá nálægð. Og hvernig við getum orðið verndarar þess barns sem við vorum – með því að segja:„Ég er hér. Ég passa þig núna.“ Þú ert ekki ein(n) ef þú hefur þurft að velja frelsið fram yfir fjölskyldubönd.Þessi þáttur er fyrir þig sem þarft að heyra að það má. ⚠️ Trigger warning: Þátturinn fjallar um foreldraofbeldi, tilfinningalegt ofbeldi, foreldralokun („no contact“), og skort á skilyrðislausri ást í æsku. Efni þáttarins gæti vakið sterkar tilfinningar. Hlusta má með mýkt og hléum – eða geyma þáttinn þar til þú ert tilbúin(n).
Show more...
6 months ago
1 hour 3 minutes 34 seconds

Örlítið í ólagi
#10 Ákvörðunarþreyta: Þegar heilinn segir bara ,,ég veit ekki, jájájájá...error"
Hvað gerist þegar þú þarft að ákveða allt – og ert kannski líka með ADHD-heila sem þolir illa þrýsting, valmöguleika og endalaus „mamma/má ég?“ köll? Í þessum þætti ræðum við ákvörðunarþreytu (Decision fatigue) : hvað hún er, af hverju hún virkar svona harkalega á fólk með ADHD – sérstaklega í foreldrahlutverkinu – og hvernig við getum dregið úr henni með húmor, rútínum og virðingu fyrir eigin mörkum. Þetta er þáttur fyrir þig sem hefur reynt að velja á milli nestis, skófatnaðar, skjátíma og tilfinningalegrar viðveru – og endað á að borða kex og gleyma öllu. Þú ert ekki biluð/aður. Þú ert bara örmagna af ábyrgð.
Show more...
6 months ago
53 minutes 4 seconds

Örlítið í ólagi
#9 Tvær eins, en samt ekki - Samtal mæðgna um ódæmigerða einhverfu, sjálfsvitund og tengsl
„Tvær kynslóðir. Einn heill heimur af öðruvísi upplifun.“ Í nýjasta þætti í Örlítið í ólagi talar Hrafndís og Alex Eva dóttir hennar um hvernig það er að vera móðir og dóttir – og báðar með ódæmigerða einhverfu. Við förum yfir hvernig einhverfa birtist með ólíkum hætti eftir aldri, kyni og aðstæðum. Hvernig við lærðum að sjá styrkleika þar sem áður voru „vandamál“. Hvernig það er að maskera sig í gegnum lífið – og hvað gerist þegar maður hættir. Þessi þáttur er hlý, nærgætinn og raunsær. Hann er líka fyrir þig sem ert að leita að skilningi, spegli – eða einfaldlega vilja heyra okkur ræða um lífið eins og það er, pínu í ólagi, og alveg dásamlegt samt.
Show more...
6 months ago
1 hour 14 minutes

Örlítið í ólagi
#8 Þegar tunglið dregur til tíðinda-PMMD og árstíðir líkamans
PMMD, tíðahringurinn og tengingin við tunglið og árstíðirnar. Um það hvernig við lærum að hlusta á líkamann í stað þess að dæma hann. Mýkt, innsæi og lífskraftur.
Show more...
7 months ago
1 hour 2 seconds

Örlítið í ólagi
#7 Tíðahringurinn, tilfinningarnar og ruglið: PMDD og við sem missum vitið mánaðarlega
Í þessum þætti tölum við um það sem oft er hunsað, ruglað saman við „bara PMS“ og læðist aftan að mörgum án þess að fá nafn: PMDD. Við förum yfir hvernig tíðahringurinn hefur áhrif á andlega heilsu, sjálfsmynd og daglegt líf – og hvernig það er ekki ímyndun, væl eða eitthvað sem á að ,,þola bara”. Þetta er þáttur fyrir konur, fyrir þá sem elska konur, og fyrir alla sem vilja skilja betur hvað í ósköpunum er að gerast í líkamanum og hausnum þegar hormónin halda partý án okkar leyfis.
Show more...
7 months ago
1 hour 1 minute 11 seconds

Örlítið í ólagi
#6 Ofurnæmni fyrir höfnun: Rejection Sensitive Dysphoria (RSD)
Í þessum þætti skoðum við Rejection Sensitive Dysphoria – hvernig höfnun og gagnrýni getur haft djúp áhrif á sjálfsmynd, líkama og líðan. Við tölum um hvernig RSD tengist ADHD, hver líkamlegu viðbrögðin geta verið, og hvernig hægt er að byggja upp bjargráð og þrautseigju gagnvart þessum ósýnilegu en raunverulegu sársauka. Ef þú hefur einhvern tíma tekið hluti „of nærri þér“ – þá gæti þessi þáttur verið fyrir þig.
Show more...
7 months ago
1 hour 2 minutes 43 seconds

Örlítið í ólagi
#5 PTSD, C-PTSD og EMDR: Þegar hugurinn geymir það sem líkaminn man
Í þessum þætti ræðum við áfallavinnu, EMDR-meðferð og hvernig áföll geta laumað sér inn í daglegt líf án þess að við áttum okkur á því. Við veltum fyrir okkur muninum á PTSD og C-PTSD, af hverju ,,aðeins stress" getur verið eitthvað allt annað, og hvers vegna maður getur fundið fyrir skömm þó maður hafi gert sitt besta. Þetta er einlæg og örlítið óþægilega heiðarleg umræða - en líka full af hlýju, húmor og von.
Show more...
7 months ago
51 minutes 57 seconds

Örlítið í ólagi
#4 Þegar dótið ræður: Söfnunarárátta, óreiða og skömmin sem fylgir
Í þessum þætti köfum við ofan í söfnunaráráttu, óreiðu og tilfinningarnar sem fylgja því að eiga of mikið af hlutum. Af hverju er svona erfitt að sleppa takinu, og hvað getur maður gert til að ná betri stjórn?
Show more...
7 months ago
44 minutes 54 seconds

Örlítið í ólagi
#3 Kvíði og láta hann ekki stjórna sér ásamt hugleiðingum lífsins (María Rún Baldurs)
Í þættinum í dag fáum við að kynnast Maríu Rún, ræðum við hana um lífið og tilveruna. Hvernig er að vera með kvíða en leyfa honum ekki stjórna sér, mikilvægi öndunar og hugleiðslu.
Show more...
7 months ago
1 hour 29 minutes 48 seconds

Örlítið í ólagi
#2 Ástartungumálin 5
Farið verður yfir ástartungumálin 5, örlítið yfir kink og hvernig þau geta tengst ástartungumálum okkar. Slóð á ástartungumálin 5: https://5lovelanguages.com Slóð á kinktest: https://www.kinktest.org
Show more...
7 months ago
1 hour 19 minutes 47 seconds

Örlítið í ólagi
#1 Kynningarþáttur
Velkomin í mest ´chaos´ fyrsta þátt í nýja podcastinu ,,Örlítið í ólagi.” Lífið er óskipulagt... eins og þetta podcast, þar sem uppáhaldsorðin mín eru ,,uummm, ooooogggg, já & podcast!” Hér spyrjum við spurninganna sem enginn bað um svör við, förum djúpt í hlutina og pælum örlítið of mikið í öllu - með húmor, speki og smá tilvistarkreppu á kantinum. Þetta er algerlega, ótrúlega, stórkostlega út fyrir mitt þægindarsvið en það hefur lengið verið draumur hjá mér að byrja með svona spjall þar sem við ræðum allt milli himins og jarðar. Hér er verið að hugsa upphátt og vonað að einhver skilji mig. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að gefa mér tækifæri og ég vona að þessi þáttur skili einhverju þó ekki nema smá hlátri inn í daginn! - Hrafndís Og já p.s. ég er 38 ára! (ef einhver var ekki búinn að ná því eftir að hafa hlustað á þáttinn)
Show more...
7 months ago
1 hour 2 minutes 36 seconds

Örlítið í ólagi