Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
Health & Fitness
Sports
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/12/34/bd/1234bdd8-9e97-84b8-f932-6e249c1c991d/mza_16926457326871348579.jpeg/600x600bb.jpg
Uppbrot
Guðmundur Finnbogason
19 episodes
6 days ago
Hlaðvarp um skólamál frá ýmsum sjónarhornum. Viðtöl og samtöl um allt það sem brennur á skólafólki og það sem enginn er að tala um.
Show more...
Education
RSS
All content for Uppbrot is the property of Guðmundur Finnbogason and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Hlaðvarp um skólamál frá ýmsum sjónarhornum. Viðtöl og samtöl um allt það sem brennur á skólafólki og það sem enginn er að tala um.
Show more...
Education
Episodes (19/19)
Uppbrot
Uppbrot 19 - Brynhildur Sigurðardóttir og Ingimar Ólafsson Waage

Brynhildur og Ingimar kenndu heimspeki á unglingastigi saman. Þau þróuðu frábæra kennslu og ræða við Guðna og Guðmund um heimspeki í grunnskólum út frá fjölbreyttu sjónarhorni. Bæði praktískum áherslum en ekki síður hugmyndafræðinni að baki og hvernig heimspekin getur opnað dyr fyrir dýpri kennslu í öllum greinum.

Spennandi og áhugaverður þáttur fyrir alla kennara.

Show more...
4 years ago
1 hour 5 minutes 18 seconds

Uppbrot
Uppbrot 18 - Ólafur Páll Jónsson

Ólafur Páll Jónsson er heimspekingur og prófessor við Menntavísindasvið Hí. Þar kennir hann heimspeki í ýmsum áföngum með fjölbreyttum áherslum. Í þættinum ræðum við um heimspeki í sinni víðustu mynd, um drauma skólann hans Ólafs og um það hvað skiptir máli í skólastarfinu. Skemmtilegar umræður þar sem að Guðni og Guðmundur komast bara ágætlega frá þessu. 

Hérna má finna fjölda áhugaverðra svara Ólafs á Vísindavefn HÍ: https://www.visindavefur.is/hofundur/475/olafur-pall-jonsson/# 

Show more...
5 years ago
55 minutes 16 seconds

Uppbrot
Uppbrot 17 Flosi Einarsson

Þriðji þátturinn um leiklist í skólum. Nú er rætt við Flosa Einarsson aðstoðarskólastjóra Grundaskóla á Akranesi. Flosi er potturinn og pannan í söngleikjum skólans en þeir hafa verið settir upp síðan 2003. Ekki nóg með það þá semja Flosi og kennarar við skólann handrit og tónlist söngleikjanna. 

Þátturinn var tekinn upp í miðju covid í gegnum Teams og því eru hljóðgæðin ekki alveg nógu góð. Vonandi verður það fyrirgefið þar sem að það heyrist mjög vel í Flosa en aðeins verr í Guðna og Guðmundi (sem er þá kannski bara kostur?). 

Á heimasíðu Grundaskóla má finna bort úr söngleikjunum og tónlistina ásamt útvarpsþáttum nemenda sem að rætt er um í þáttunum. 

https://www.youtube.com/user/Grundaskoli
https://soundcloud.com/grundaskoli
https://www.grundaskoli.is/is/nemendur/utvarp-grundaskola

Njótið vel!

Show more...
5 years ago
30 minutes 12 seconds

Uppbrot
Uppbrot 16 - Árni Þór Hilmarsson

Árni Þór Hilmarsson hefur um árabil verið einn af kennurum Flúðaskóla sem sér um að setja upp leikrit á unglingastigi. 

Árni segir okkur frá því en Flúðaskóli fékk á dögunum Menntaverðlaun Suðurlands fyrir leiklistarverkefnið sitt. 

Show more...
5 years ago
29 minutes 31 seconds

Uppbrot
Uppbrot 15 - Magnús J. Magnússon

Magnús J. Magnússon skólastjóri við Barnaskólann á Eyrabakka og Stokkseyri ræðir við Guðna og Guðmund um leiklist í skólastarfi. 

Magnús hefur sett upp yfir 80 leikskýningar í skólum víða um land og hefur leikhús hugsjónina að leiðarljósi í öllu starfi. 

Til að hafa samband við Magnús er hægt að senda póst á magnus@barnaskolinn.is 

Hann bendir einnig á síðu Bandalags íslenskra leikfélaga sem má finna hér: https://leiklist.is/ 

Þar má finna fjöldann allan af leikritum sem hægt er að fá keypt. Meðal annars um 15 leikrit eftir Magnús. 

Njótið vel!

Show more...
5 years ago
38 minutes 44 seconds

Uppbrot
Uppbrot 14 - Dr. Mark Leather og Jakob Frímann Þorsteinsson

Guðmundur settist niður með Jakobi Frímann Þorsteinssyni og ræddi við Dr. Mark Leather sem hafði ný lokið við að halda fyrirlestur fyrir Samtök áhugafólks um útinám. 

Mark er kennari við Marjon háskóla í Bretlandi þar sem að hann sérhæfir sig í útinámi og ævintýranámi. 

Mjög áhugavert spjall um stöðu útináms í Bretlandi og á Íslandi í dag og sögu þess.


Hérna má finna Facebook síðu Samtaka áhugafólks um útnám en þar má finna fyrirlestur Marks og glærurnar hans ásamt ýmsu öðru tengdu útinámi: https://www.facebook.com/utinamaislandi/

Frekari upplýsingar um Mark má finna hér: https://www.researchgate.net/profile/Mark_Leather

og á twitter: @markFLeather 

Show more...
5 years ago
31 minutes 52 seconds

Uppbrot
Uppbrot 13 - Katrín Lilja Hraunfjörð og Ingibjörg Lilja Kristjándóttir

Katrín Lilja Hraunfjörð og Ingibjörg Lilja Kristjándóttir vinna hjá Heilsuleikskólanum Skógarási í Reykjarnesbæ. Þar stjórna þær verðlauna eTwinning og erasmus+ verkefni sem að þær segja okkur frá. 

Mjög áhugaverður þáttur þar sem að við fáum að heyra hvernig gengur að vera með eTwinning verkefni í leikskóla. 

Hægt er að finna verkefnið á Instagram undir Ecotweer06 og á Pinterest undir Eco Tweet 

Hérna má sjá frétt skólans um verðlaunin sem verkefni fékk: 

http://skogaras.skolar.is/Frettir/almennt/eTwinning-verkefni-sidasta-skolaars---verdlaun/ 

Show more...
5 years ago
31 minutes 18 seconds

Uppbrot
Uppbrot 12 Elín Þóra Stefánsdóttir

Elín Þóra Stefánsdóttir er eTwinning sendiherra á Vestfjörðum. Þar hefur hún tekið þátt í eTwinning verkefnum síðan 2009 og þekkir það því mjög vel. Hún segir frá reynslu sinni af eTwinning.

Hérna má sjá myndband um eitt af verkefnum Elínar sem hún vann fyrir 1-2 árum um eTwinning

https://studio.youtube.com/video/e8cYo6CIeLg/edit

Hér er hægt að kynna sér verkefnið Litter@sea sem Elín segir frá í spjallinu. 

https://twitter.com/litterasea1?lang=en

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Elínu. Frekari upplýsingar er að finna á Facebook síðu þáttarins:  https://www.facebook.com/uppbrot/ 

Show more...
5 years ago
34 minutes 16 seconds

Uppbrot
Uppbrot 11 - Þorsteinn Surmeli

Þorsteinn Surmeli sér um eTwinning á Íslandi og segir okkur frá því hvað það er og hvernig hægt er að nýta það í skólastarfi. 

eTwinning er spennandi möguleiki fyrir kennara í evrópsku samstarfi og einföld leið til að byrja þá vinnu. 

Frekari upplýsingar um eTwinning er að finna hér: https://www.erasmusplus.is/menntun/skolar/etwinning/ 


Finndu okkur á Facebook síðu þáttarins: https://www.facebook.com/uppbrot/ 

Show more...
5 years ago
37 minutes 48 seconds

Uppbrot
Uppbrot 10 - Hanna Hilmarsdóttir

Gleðilegt nýtt ár 2020. Við fögnum því að sjálfsögðu með fleiri þáttum af Uppbroti. 

Hanna Hilmarsdóttir er skólastjóri Alþjóðaskólans á Íslandi. Við ræðum saman um skólann og sérstöðu hans. Afar áhugavert spjall um skóla sem er einstakur á Íslandi. 

Það má finna frekari upplýsingar um skólann hér: https://www.internationalschool.is/

Facebook síða Uppbrots er hérna: https://www.facebook.com/uppbrot 


Show more...
5 years ago
34 minutes 26 seconds

Uppbrot
Uppbrot 9 Gísli Rúnar Guðmundsson og Kristján Ómar Björnsson

Gísli Rúnar Guðmundsson og Kristján Ómar Björnsson reka Nú sem er sjálfstætt starfandi skóli í Hafnarfyrði. Skólinn er unglingaskóli með áhugaverðar áherslur á Íþróttir og öðruvísi námsfyrirkomulag.
Í þættinum er rætt um fyrkomulagið, áskoranirnar og allt hitt sem áhugavert er að vita um öðruvísi skóla.
Upplýsingar um skólann má finna hér:
http://framsynmenntun.is/

Mynd af þeim félögum má finna á Facebook síðu þáttarins:
https://www.facebook.com/uppbrot/

Show more...
5 years ago
1 hour 2 minutes 47 seconds

Uppbrot
Uppbrot 8 Anna Margrét Tómasdóttir

Anna Margrét Tómasdóttir er forstöðumaður Ungmenna og tómstundabúðanna Laugar á Laugarvatni. Hún ræðir við Guðna og Guðmund um búðirnar og það nám sem fer þar fram. Þangað koma 9. bekkingar í þúsundatali á hverjum vetri og fá að upplifa svæðið um leið og þeir læra um samskipti og hópefli.
Allar upplýsingar um búðirna má finna á https://www.umfi.is/verkefni/ungmennabudir/
Anna hefur einnig skrifað lokaverkefni um ungmennabúðir og búðir almennt sem má finna hér: https://skemman.is/bitstream/1946/28437/5/Anna%20Margr%c3%a9t%20T%c3%b3masd%c3%b3ttir.pdf

Show more...
5 years ago
31 minutes 21 seconds

Uppbrot
Uppbrot 7 Guðni og Guðmundur

Guðni og Guðmundur draga saman síðustu þætti um útinám og kynna næstu seríu. 

Show more...
5 years ago
20 minutes 29 seconds

Uppbrot
Uppbrot 6 - Eygló Friðriksdóttir

Eygló Friðriksdóttir er skólastjóri Sæmundarskóla. Hún ræðir við Guðna og Guðmund um útinám í Sæmundarskóla en þar hefur það verið stundað frá upphafi.

Show more...
5 years ago
35 minutes 11 seconds

Uppbrot
Uppbrot 2 Jakob Fríman Þorsteinsson

Annar þáttur uppbrots. Rætt er við Jakob Frímann Þorsteinsson, adjunkt við Háskóla Íslands um útinám. Þátturinn er númer tvö í fyrstu seríu Uppbrots sem fjallar um útinám. FB síða þáttarins er: https://www.facebook.com/uppbrot

Show more...
5 years ago
32 minutes 41 seconds

Uppbrot
Uppbrot 5 - Bob Henderson
Bob Henderson er kandískur útikennslugúrú. Hann vann í 29 ár við McMaster háskóla í Kanada þar sem að hann leiddi útinámsáfanga ásamt öðrum verkefnum. Hann hefur lengi verið í fararbroddi hjá Samtökum útikennara í Kanada, skrifað bækur, greinar og haldið fyrirlestra. Heimasíða Bob er http://bobhenderson.ca/ en þar má finna greinar og aðrar upplýsingar. Bob hefur nokkrum sinnum komið til Íslands og meðal annars haldið erindi á ráðstefnu Samtaka áhugafólks um útinám.
Show more...
5 years ago
55 minutes 7 seconds

Uppbrot
Uppbrot 4 Hrafnhildur Sigurðardóttir
Hrafnhildur Sigurðardóttir er kennari við Sjálandsskóla. Þar hefur hún stundað útinám síðan 2006 með góðum árangri. Hrafnhildur hefur einnig kennt á námskeiðum fyrir kennara undanfarin ár þar sem að hún hefur veitt fjölmörgum innblástur.
Show more...
6 years ago
31 minutes 57 seconds

Uppbrot
Uppbrot 3 Anna Gína Aagestad
Þriðji þáttur uppbrots þar sem að rætt er við Önnu Gínu Aagestad, leikskólakennara sem hefur stýrt útinámsverkefninu Gullin í grendinni á Selfossi undanfarin ár. Anna er útikennari af lífi og sál.
Show more...
6 years ago
30 minutes 41 seconds

Uppbrot
Uppbrot 1
Guðni og Guðmundur kynna hljóðvarpið og ræða saman um útinám í Bláskógaskóla Laugarvatni.
Show more...
6 years ago
24 minutes 41 seconds

Uppbrot
Hlaðvarp um skólamál frá ýmsum sjónarhornum. Viðtöl og samtöl um allt það sem brennur á skólafólki og það sem enginn er að tala um.