Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
Health & Fitness
Sports
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/4c/d5/a4/4cd5a493-14fa-9e04-d545-10b84278a2dc/mza_17821328580124665548.jpg/600x600bb.jpg
Mannflóran
Chanel Björk
6 episodes
5 days ago
Mannflóran býður uppá ferðalag um fjölmenninguna í íslensku samfélagi. Í þáttunum ræðir Chanel Björk við allskonars fólk um það fallega, það erfiða og það flókna við að búa í samfélagi sem er að taka á sig fjölbreytta mynd. Við heyrum frá fólki af erlendum uppruna, um reynslu þeirra, skoðanir og vangaveltur. Einnig heyrum við frá fólki sem hefur jafnvel engar erlendar rætur, en eru líka með pælingar um fjölmenninguna á Íslandi. Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengi
Show more...
Society & Culture
RSS
All content for Mannflóran is the property of Chanel Björk and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Mannflóran býður uppá ferðalag um fjölmenninguna í íslensku samfélagi. Í þáttunum ræðir Chanel Björk við allskonars fólk um það fallega, það erfiða og það flókna við að búa í samfélagi sem er að taka á sig fjölbreytta mynd. Við heyrum frá fólki af erlendum uppruna, um reynslu þeirra, skoðanir og vangaveltur. Einnig heyrum við frá fólki sem hefur jafnvel engar erlendar rætur, en eru líka með pælingar um fjölmenninguna á Íslandi. Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengi
Show more...
Society & Culture
Episodes (6/6)
Mannflóran
006 Sara Mansour – Hér er útlendingur… um útlending… til útlendingi… frá útlendings

Sara Mansour er aðgerðarsinni sem berst gegn allskyns óréttlæti, en sérstaklega hvað varðar réttindi hælisleitenda og málefni fólks af erlendum uppruna á Íslandi. Sara er íslensk og egypsk, og stundar nám í London í fólksflutningsfræðum. Við áttum gott spjall um viðhorf fólks til fólksflutninga, hælisleitenda og þessi ‘útlendingamál’ sem hafa verið svo hávær í umræðunni á Íslandi og víða annarsstaðar að undanförnu.

Með hverjum þætti fylgir pistill á chanelbjork.substack.com, þar sem hægt er að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem rætt er um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

–

Þetta verður síðasti þátturinn í bili… ég þakka fyrir hlustunina og góðar viðtökur, þangað til næst!

Show more...
11 months ago
52 minutes 5 seconds

Mannflóran
005 Árni Þórður – Matur er menning… menning er matur

Árni Þórður Randversson er sérfræðingur á ýmsum sviðum, meðal annars markaðsmálum, mat og matarmenningu og þá sérstaklega ítalskri matargerð. Við veltum fyrir okkur hvað matur segir um menningarheiminn þaðan sem hann er sprottinn. En líka, hvernig matur getur bæði verið vettvangur til að deila menningu með öðrum og kynnast lifnaðarháttum og lífssýn annarra… á sama tíma og það getur verið vettvangur fordóma og ójöfnuðs.

Með hverjum þætti fylgir pistill á chanelbjork.substack.com, þar sem er hægt að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

Show more...
11 months ago
45 minutes 2 seconds

Mannflóran
004 Margrét Seema – Að finna sína rödd

Margrét Seema Taykar er leikstjóri af íslenskum og indverskum uppruna, með bakgrunn í dansi, leikhúsi og ljósmyndun. Hún er kjarnakona með fallega sýn á heiminn og listsköpun… sem tól til að ögra þeim staðalímyndum sem við erum alltof vön því að sjá. Við ræddum um áskorunina við að finna rödd sem er ekki til að gera öðrum til geðs, heldur rödd sem er á manns eigin forsendum, þótt hún sé ólík eða jafnvel ögrar því sem við erum svo vön því að sjá og heyra.

Hver þáttur fylgir pistill á chanelbjork.substack.com, þar sem er hægt að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

Show more...
1 year ago
1 hour 5 minutes 23 seconds

Mannflóran
003 Guðný Bjarnadóttir – Mega bara ís­lenskir karl­menn nauðga konum á Ís­landi?

Guðný Bjarnadóttir er stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola og beitir sér fyrir umbótum í lagakerfinu með það að markmiði að bæta réttarstöðu brotaþola. Guðný skrifaði áhugaverðan pistil sem ég las í sumar um ólíku viðbrögðin í samfélaginu eftir því hvort að gerandi sé íslenskur eða af erlendum uppruna. Við ræðum um það hvernig þetta vísar til útlendingaandúðs í samfélaginu og mögulega rótgróna kynbótastefnu í íslensku samfélagi… þó svo að ég vilji ekki trúa því að það sé satt!

Viðtalið inniheldur umræðu um kynferðisbrotamál og kynbundið ofbeldi sem gætu vakið óhug.

Með hverjum þætti fylgir pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt er að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

Show more...
1 year ago
48 minutes 35 seconds

Mannflóran
002 Skúli Isaaq – Mega hvítir strákar nota durag?

Gestur minn í öðrum þætti af hlaðvarpinu Mannflóran er Skúli Isaaq Skúlason Qase. Hann er tónlistarmaður og vesturbæringur en fyrst og fremst sonur móður sinnar. Við Skúli ræddum um móður hans, sem var áhrifarík kona, af sómölskum uppruna, og lét til síns getið á sviði stjórnmála á Íslandi og bauð sig meðal annars fram til Borgarstjórnarkosningar fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins árið 1994. Við tölum um tengsl Skúla við Sómalíu, skort á þekkingu á Afrískri sögu og að lokum um tónlist og hip hop menningu – af hverju heldur fólk að allir svartir tónlistarmenn séu rapparar? Mega hvítir strákar nota durag? Mikið af spurningum og vangaveltum…

Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborgar, njótið!

Show more...
1 year ago
55 minutes 35 seconds

Mannflóran
001 Kanema Erna – Að ala upp barn með sambískar rætur sem móðir með sambískar rætur

Gestur fyrsta þáttarins er ⁠Kanema Erna⁠, sviðslistahöfundur og móðir ásamt fleiru. Við Kanema þekkjumst ágætlega en fyrstu kynni okkur voru í fyrstu seríu Íslensku Mannflórunnar þegar við áttum hjartnæmt spjall um hár… eða afró hár eins og við erum báðar með. Í þessu spjalli hins vegar, ræddum við Kanema um íslensku og sambísku rætur hennar, og hvaða hlutverk uppruni og reynsla hennar sem svarta konu eða konu af blönduðum uppruna spilar í móðurhlutverkinu hennar.

Með hverjum þætti mun fylgja pistill á chanelbjork.substack.com þar sem hægt verður að finna myndir, meðmæli og lesefni sem tengist því sem er rætt um í þættinum.

Þættirnir eru í boði Íslandsbanka og Reykjavíkurborg, njótið!

Show more...
1 year ago
52 minutes 38 seconds