Kjartan og Flóki skelltu sér á mynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er. Innlit útlit (slice of life) mynd sem enginn má missa af. Upphitun fyrir föstudagspartý sýninguna af Íslenska Draumnum 12. september í Bíó Paradís. Mæta mæta.
Skjaldborgarhátíðin var haldin með pompi og prakt á Patreksfirði í byrjun júní. Kjartan og Flóki skelltu sér á hátíðina og plötuðu svo í leiðinni Jónu Grétu Hilmarsdóttur í spjall. Þess má geta að Jóna vann Skjölduna fyrir heimildastuttmyndina Ósigraður. Njótið.
Kjartan og Flóki fóru á frönsku "coming of age" kvikmyndina Holy Cow. Hver vissi að ostagerð gæti verið svona áhugaverð?
Kjartan og Flóki fóru ásamt Vilhelm Neto á A24 kvikmyndina A Different Man í Bíó Paradís.
Kjartan og Flóki fóru á frönsku myndina Misericordia. Þeir vita hvorugir hvað það þýðir á íslensku en gruna að það tengist harmleik.
Fjallað um FjalliðKjartan og Flóki fengu til sín góðan gest í þátt dagsins. Að þessu sinni var Oddur Örn Ólafsson, einnig þekktur sem Oddur Klöts, með þeim félögum. Þátturinn er í boði Vitabar en þess má geta að staðurinn býður upp á bestu en jafnframt heiðarlegustu og einnig ódýrustu hamborgara bæjarins. Myndin sem er til umræðu heitir er ný íslensk mynd sem heitir Fjallið. Þremenningarnir gerðu sér glaðan dag og skelltu sér í gráðostaborgara og öl á Vitabar áður en þeir sáu myndina í Bíó paradís. Þeir fara um víðan völl í þættinum en einna helst er að nefna ársgamalt þrætuepli milli þáttarstjórnanda og gestsins. Kjartan og Oddur gera nefnilega upp harmsöguna um hamborgaraátskeppnina sem einmitt átti sér (ekki) stað á Vitabar. Að því loknu taka við faglegar umræður um kvikmyndir eins og alltaf. Ekki láta þetta fram hjá þér fara kæri hlustandi.
Kjartan og Flóki sáu Anora í lok 2024 en gleymdu að gera þátt um þá kvikmynd. Anora vann fyrir bestu kvikmynd á Óskarnum.
Kjartan og Flóki skelltu sér á The Seed of the Sacred Fig í Paradísarheimt þætti vikunnar. Kvikmyndin var tilnefnd til Óskarsins fyrir bestu erlendu mynd.