Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
News
Sports
TV & Film
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts211/v4/3a/58/6b/3a586b78-dcb8-301a-fba0-9ce478940183/mza_6179603739583153254.jpg/600x600bb.jpg
Besta sætið
bestasaetid
59 episodes
2 months ago
Show more...
Sports
RSS
All content for Besta sætið is the property of bestasaetid and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Show more...
Sports
Episodes (20/59)
Besta sætið
Frakk­land - Ísland 114-74: Súrsætur endir
Þeir Máté Dalmay og Ágúst Orri Arnarson mættu í Besta sætið og gerðu upp Eurobasket árið 2025 og lokaleikinn í riðlinum gegn Frökkum sem tapaðist með fjörutíu stigum.
Show more...
2 months ago
39 minutes

Besta sætið
Ísland - Slóvenía - 79-87: Svona frammistaða hefði skilað okkur fleiri sigrum
Teitur Örlygsson var á línunni og gerði upp leikinn gegn Slóvenum. En þeir Benedikt Guðmundsson og Ágúst Orri Arnarson íþróttafréttamaður mættu einnig og fóru yfir tapið gegn Slóvenum. En í þeim leik voru jákvæð teikn á lofti.
Show more...
2 months ago
38 minutes

Besta sætið
Pól­land - Ís­land 84-75: Rændir eftir dómaraskandal
Póllverjar unnu Ísland 84-75 í þriðja leik liðsins á Eurobasket í körfubolta. Íslenska liðið stóð sig vel í leiknum en ótrúlegar ákvarðanir undir lok leiksins hjá dómurum leiks kostuði sitt. Þeir Benedikt Guðmundsson, Magnús Þór Gunnarsson og Halldór Örn Halldórsson mættu í Besta sætið og gerðu leikinn upp. 
Show more...
2 months ago
38 minutes

Besta sætið
Besta sætið: Betri gegn Belgíu þar til allt fór í baklás
Ísland tapaði með grátlegum hætti gegn Belgíu í öðrum leik Evrópumótsins í körfubolta. 64-71 lokaniðurstaðan í leik sem Ísland leiddi nánast allan tímann. Ólafur Ólafsson og Benedikt Guðmundsson gerðu leikinn upp með Ágústi Orra Arnarsyni. 
Show more...
2 months ago
30 minutes

Besta sætið
Ísrael - Ísland: 83-71 - Vonin lifir
Ísland tapaði fyrir Ísrael í fyrsta leik á Eurobasket í körfubolta. Leikurinn fór 83-71 og má segja að sigur Ísraelsmanna hafi ekki mikið verið í hættu. Þeir Tómas Steindórsson og Máté Dalmay mættu í Besta sætis hljóðverið og gerðu upp leikinn. 
Show more...
2 months ago
48 minutes 51 seconds

Besta sætið
Besta sætið: Kristófer opnar sig um ágreining við Craig Pedersen
Kristófer Acox fer ekki á Evrópumótið í körfubolta sem hefst í lok ágúst. Tíðindin koma mörgum á óvart en þó ekki honum sjálfum. Landsliðsþjálfarinn tjáði honum í febrúar að hann myndi aldrei velja hann aftur. Kristófer tjáði sig um málið við Besta sætið.
Show more...
3 months ago
21 minutes 55 seconds

Besta sætið
Besta sætið: Þörf á naflaskoðun hjá KSÍ
Leikur Íslands við Noreg, sem og Evrópumót kvennalandsliðsins í heild, framtíðarhorfur liðsins og staða kvennaknattspyrnu almennt var til umræðu í Besta sætinu. Ásta Eir Árnadóttir og Þóra B. Helgadóttir voru gestir Vals Páls Eiríkssonar.
Show more...
4 months ago
54 minutes 45 seconds

Besta sætið
Elísabet Gunnarsdóttir: „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi”
Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu í fótbolta, er nú á þeim stað sem hana dreymdi um að vera á þegar að hún var yngri og á sínu fyrsta stórmóti sem landsliðsþjálfari. Í þessu viðtali fer hún yfir áskoranirnar með Belgíu, yfirstandandi Evrópumót, íslenska landsliðið og margt fleira.
Show more...
4 months ago
27 minutes 36 seconds

Besta sætið
Besta sætið: Svekkelsi í Sviss
Ásta Eir Árnadóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttur ræddu málin með Ágústi Orra Arnarsyni eftir svekkjandi tap Íslands gegn Sviss. 
Show more...
4 months ago
36 minutes 58 seconds

Besta sætið
Besta sætið - Tuð eftir Thun
Íslenska kvennalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Finnum í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Liðið átti ekki sinn besta dag og léku 10 gegn 11 síðustu þrjátíu mínútur leiksins. Systurnar Þóra Björg og Ásthildur Helgadætur mætti í þáttinn og gerðu leikinn upp. 
Show more...
4 months ago
36 minutes 28 seconds

Besta sætið
Orri Steinn stefnir á toppinn
Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta og leikmaður spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Sociedad, í opinskáu og ítarlegu viðtali um fyrsta tímabil sitt á Spáni sem er nú lokið, samkeppnina í liðinu, framtíðar markmið, aðlögun á Spáni, landsliðsfyrirliðahlutverkið, íslenska landsliðið, verðandi föðurhlutverk sem og föður sinn Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfara Bestu deildar liðs KR. Viðtalið var tekið fimmtudaginn 5.júní.   Umsjón viðtals: Aron Guðmundsson
Show more...
5 months ago
26 minutes 29 seconds

Besta sætið
Kristófer Ingi Kristinsson: „Al­gjört krafta­verk að þetta hafi ekki farið verr“
Ekki mátti miklu muna að knattspyrnuferill Kristófers Inga Kristinssonar, leikmanns Breiðabliks, yrði að engu eftir að hann fékk blóðsýkingu í ökkla í kjölfar aðgerðar. Lífsreynslan opnaði augu hans og nú er Kristófer mættur aftur inn á völlinn og það með miklu látum en hann skoraði dramatískt jöfnunarmark Breiðabliks í uppbótartíma í 3-3 jafntefli gegn KR í 5.umferð Bestu deildarinnar á dögunum. Í þessu viðtali fer Kristófer yfir erfiðleika síðustu mánaða, hvernig þeir breyttu lífssýn hans og hversu nálægt hann var því að sjá knattspyrnuferilinn hverfa fyrir augum sér.  
Show more...
6 months ago
17 minutes 15 seconds

Besta sætið
Guðlaugur Victor ræðir Rooney, gagnrýnina og landsliðið
Það virðist vera að birta til hjá Guðlaugi Victori Pálssyni og liðsfélögum hans í Plymouth í ensku B-deildinni. Það hefur gengið á ýmsu hjá félaginu í vetur.
Show more...
9 months ago
27 minutes 39 seconds

Besta sætið
Uppjör á HM í handbolta með Snorra Steini
Snorri Steinn Guðjónsson fer yfir farinn veg á HM í handbolta á hnitmiðaðan hátt eftir að Ísland féll úr leik á afar svekkjandi hátt með átta stig í milliriðli þar sem að þungt tap gegn Króötum reið baggamuninn. „Á einhverjum tímapunkti þarf maður að hætta vorkenna sjálfum sér og rífa sig í gang. Hætta að pulsast í drasl.“
Show more...
9 months ago
18 minutes 44 seconds

Besta sætið
Uppgjör eftir Ísland – Argentína: Bless
Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu og gerðu upp frammistöðu íslenska landsliðsins á HM. Liðið hafnaði í 9. sæti á mótinu. 
Show more...
9 months ago
57 minutes 12 seconds

Besta sætið
Uppgjör eftir Ísland – Króatía: Íslenska þjóðin jarðtengd í Zagreb
Það má með sanni segja að íslenska þjóðin hafi verið jarðtengd og það harkalega í Zagreb með sex marka tapi, 32-26 gegn Króötum Dags Sigurðssonar í milliriðlum HM í handbolta. Frá því að vera bjartsýnn á sæti í útsláttarkeppni mótsins eru örlögin nú úr höndum strákanna okkar fyrir lokaumferð riðilsins. Fyrrverandi landsliðsmennirnir Bjarni Fritzson og Ásgeir Örn Hallgrímsson gera upp slæmt kvöld í Zagreb.
Show more...
9 months ago
45 minutes 29 seconds

Besta sætið
Uppgjör eftir Ísland - Egyptaland: Aron er Messi handboltans
Þeir Einar Jónsson og Bjarni Fritzson mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp frækinn 27-24 sigur Íslands á Egyptum á HM í handbolta. Liðið hefur nú unnið fyrstu fjóra leikina á mótinu. Króatar næst á föstudagskvöldið.
Show more...
9 months ago
1 hour 14 minutes 11 seconds

Besta sætið
Upphitun fyrir milliriðilinn á HM í handbolta: Ísland með fullt hús stiga
Þeir Stefán Árni Pálsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Bjarni Fritzson hituðu upp fyrir milliriðilinn hjá íslenska landsliðinu í handbolta í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Þar mætir liðið Egyptum, Króatíu og Argentínu. Liðið er sem stendur með fullt hús stiga. 
Show more...
9 months ago
41 minutes 6 seconds

Besta sætið
Uppgjör eftir Ísland - Slóvenía: #Takkstrákar, #takkViktor
Þeir Einar Jónsson og Ásgeir Örn fóru yfir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu á HM í handbolta í kvöld. 23-18 geggjaður sigur. Næst Egyptaland. Allt á fullt hér á Íslandi. 
Show more...
10 months ago
54 minutes 3 seconds

Besta sætið
Uppgjör eftir Ísland - Kúba: Nú byrjar mótið
Þeir Rúnar Kárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu í Besta sætið og ræddu leik Íslands og Kúbu á HM. Ísland vann leikinn 40-19 en næsti leikur verður mun erfiðari. Slóvenar bíða. 
Show more...
10 months ago
45 minutes 30 seconds

Besta sætið