Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
Sports
Health & Fitness
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts116/v4/2d/b8/07/2db80743-8b38-e813-3b0d-a84e46247100/mza_12779423084798781253.jpg/600x600bb.jpg
Tvígrip - karfan kortlögð
svennioli
12 episodes
2 days ago
Tvígrip -karfan kortlögð- eru hlaðvarpsþættir sem fjalla um allt sem við kemur Íslandsmótinu í körfuknattleik karla frá árinu 1989. Einnig verður bikarkeppnin gerð skil ásamt Evrópukeppninni og landsliðið fær sitt pláss. Eitt tímabil verður tekið fyrir í hverjum þætti.
Show more...
Basketball
Sports
RSS
All content for Tvígrip - karfan kortlögð is the property of svennioli and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Tvígrip -karfan kortlögð- eru hlaðvarpsþættir sem fjalla um allt sem við kemur Íslandsmótinu í körfuknattleik karla frá árinu 1989. Einnig verður bikarkeppnin gerð skil ásamt Evrópukeppninni og landsliðið fær sitt pláss. Eitt tímabil verður tekið fyrir í hverjum þætti.
Show more...
Basketball
Sports
Episodes (12/12)
Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð 10. þáttur

Í tíunda þætti Tvígrip karfan kortlögð EINN LANGUR FYRIR SUMARFRÍ

Konstantinos "Kostas" Tsartsaris grikkinn úr Grindavík í viðtali, lyfjamál í körfuboltanum, útlendingar koma og fara eins og venjulega nema núna voru óvenju margir. Tómas Tómasson fór yfir þau mál með okkur. Falur Harðarsson fór yfir ferilinn sinn, hann sagði okkur frá því hvernig það kom til að spila körfubolta fyrir kirkjuna sína í USA. Friðrik Ingi Rúnarsson mætti einnig í viðtal til okkar og fór yfir sinn feril bæði sem leikmaður og þjálfari. Grindvíkingar reka sinn dáðasta son og fullt af allskonar í þessum síðasta þætti fyrir sumarfrí í 10. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf. 

Samstarf með Endalínan podcast

Samstarf með karfan.is þar sem lykill.is. Subway, Kristall og lengjan.is eru stuðningsaðilar karfan.is



Show more...
10 months ago
5 hours 5 minutes 52 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð 9. þáttur

Í 9. Þætti af Tvígrip

17 ára Grikki mætir í Grindavík, KR-ingar í brasi, dómarar vildu fá meira borgað. Skagamenn koma á óvart í úrslitakeppninni, Hrannar Hólm á línunni frá Köben ásamt Hermanni Hauks sem hélt í atvinnumennskuna. Grindvíkingar ráku sinn besta mann og við heyrum í Örvari varðandi  Örlyg Sturluson.

Þetta og fullt af öðru í Tvígrip karfan kortlögð


Show more...
1 year ago
3 hours 57 minutes 6 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð tímabilið 8. þáttur 1996-1997 EINN LANGUR PÁSKA-ÞÁTTUR

Í áttunda þætti Tvígrip karfan kortlögð EINN LANGUR PÁSKA-ÞÁTTUR

Starfsmenn Tvígrips gerðust heimsborgarar og hrigndu til USA og töluðu við Damon Johnson um tímann sinn á Íslandi. Breytt fyrirkomulag á Íslandsmótinu, ný keppni og nýr formaður KKÍ. Gaui þorsteins fór yfir körfuboltann fyrir Vestan og tenginguna við KR. Körfuboltamenn í eldri kantinum fara í atvinnumennskuna, Grindvíkingar kærðu og voru kærðir. Örvars-hornið á sínum stað. Opið bréf enn og aftur frá Grindvíking. Siggi Ingimundar kíkti í spjall sem og Kristinn Óskarsson dómari og fór yfir störf dómara þá og nú. Einnig kom Kiddi með skemmtilegar sögur af sérkennilegum leikjum. Þjálfarar og leikmenn reknir eins og venjulega svo voru leikmenn settir í agabönn, sumir fyrir það að djamma með fótboltaliði bæjarins. KR-ingar í hremmingum með liðið sitt. 

Þetta og meira til í 8. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð part 1 í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf. 

Samstarf með Endalínan podcast

Samstarf með karfan.is þar sem lykill.is. Subway, Kristall og lengjan.is eru stuðningsaðilar karfan.is



Show more...
1 year ago
5 hours 15 minutes 48 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð tímabilið 1995 - 1996 part 2

Í sjöunda þætti Tvígrip karfan kortlögð 

Pétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKí heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur. Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirrum. Þetta og meira til í 7. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð part 1 í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf. 

Samstarf með Endalínan podcast

Samstarf með karfan.is þar sem lykill.is. Subway, Kristall og lengjan.is eru stuðningsaðilar karfan.is


Show more...
1 year ago
1 hour 42 minutes 3 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð tímabilið 1995 - 1996 Part 1

Í sjöunda þætti Tvígrip karfan kortlögð 

Pétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKí heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur. Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirrum. Þetta og meira til í 7. Þætti af Tvígrip - Karfan kortlögð part 1 í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf. 

Samstarf með Endalínan podcast

Samstarf með karfan.is þar sem lykill.is. Subway, Kristall og lengjan.is eru stuðningsaðilar karfan.is


Show more...
1 year ago
2 hours 9 minutes 34 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - karfan körtlögð - tímabilið 1994 - 1995 Part 2

Tvígrip - karfan körtlögð - tímabilið 1994 - 1995 Part 2

Í sjötta þætti Tvígrip - karfan körtlögð

Grindvíkingar reka Frank B. í miðri úrslitakeppninni og var ásakaður um að hjálpa Keflvíkingum. Guðni Ö. lét blaðamenn, dómara og KKÍ heyra það!!!. Guðjón Skúlason sagði okkur ástæðuna af hverju hann fór í Grindavík. Einnig komu góðar sögur af fyrrum þjálfara Keflavíkur. Njarðvíkingurinn Valur Ingimundar á línunni í 6. Þætti Tvígrip - Karfan kortlögð part 2 í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf



Show more...
1 year ago
2 hours 29 minutes 27 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - karfan kortlögð 6. þáttur PART 1

Tvígrip - karfan körtlögð - tímabilið 1994 - 1995 Part 1

Í sjötta þætti Tvígrip - karfan körtlögð

Miklar leikmanna og þjálfara hræringar, Grindvíkingar fá fullt af erlendum leikmönnum. 

Kærumál í torfærunni þar sem VAR kemur við sögu. Keflvíkingar fá einn efnilegasta leikmann Sandgerðinga. Nýtt fyrirkomulag  á Úrvalsdeildinni, John Rhodes sá ástæðu til að skrifa grein í blöðin. Njarðvíkingurinn Örvar Kristjáns á línunni ásamt fullt af öðru í 6. Þætti Tvígrip - Karfan kortlögð part 1 í boði:  Bílasölu Reykjaness, Reykjanes Optikk, Litla Brugghúsið, Toyota verkstæði, vinleit.is og 1966 ehf



Show more...
1 year ago
1 hour 54 minutes 38 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - karfan kortlögð 5. þáttur

Í fimmta þætti af Tvígrip - karfan kortlögð Tveir gestir í settið, Pétur þjálfar Val eða ekki, Bow, Elvar og Zoran reknir ásamt fleirrum. Dómarar eignast pennavini um allt land og Rússasaga frá Sven. Keflvíkingar fá Foster, Dobart og Brown samt ekki alla í einu. Geta Skagamenn eitthvað í körfu?? Já allavega tímabilið 1993 - 1994 allt þetta og miklu meira í boði: Bílsölu Reykjaness, Humarsölunni, Litla Brugghúsið, Margt smátt og 1966 ehf

Show more...
1 year ago
4 hours 16 minutes 26 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - Karfan kortlög 4. þáttur

Í fjórða þætti af Tvígrip - karfan kortlögð Helgi Jónas Guðfinnsson og Jón Kr. Gíslason verða á línunni, máttastólpar skipta um félög og Frikkarnir til KR. Ætlar Pétur Guðmundsson að spila körfubolta á Íslandi? Með hverjum þá? Breiðablik, KR eða vill hann enda ferilinn þar sem ævintýrið hófst, hvað segir háttvirta Félagskiptanefndin við því. Keflavíkurhraðlestinn kom fram í fyrsta skiptið, 20 erlendir leikmenn mættu á klakann í Úrvalsdeildina þetta tímabil og Ingvar Jónsson í læri til Patt Riley. Allt þetta og meira til í boði; Bílasala Reykjaness, Humarsalan, Margt smátt, Litla Brugghúsið og 1966 ehf.

Show more...
1 year ago
3 hours 29 minutes 22 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - karfan kortlögð 3. þáttur

Símareikningur sem sló öll met, Reykjanesmót með breyttu fyrirkomulagi og Webster aftur til liðs í úrvalsdeildinni. Svarti puttinn var dýr fyrir Þórsara, Rúv vildi ekki mæta út af auglýsingu og allt í uppnámi fyrir norðan þannig að Gylfi settist við ritvélina.

Svali Björgvins verður á línunni og ræðir frábæran árangur Valsmanna á tímabilinu 1991-1992 ásamt drama kastinu Allt þetta og meira til í þætti þrjú af Tvígrip - karfan kortlögð í samstarfi við 1966 ehf., Bílasölu Reykjaness, Humarsöluna og Margt smátt.

Show more...
1 year ago
4 hours 45 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip - karfan kortlögð 2. þáttur

Þáttur tvö Tvígrip – karfan kortlögð 

Um leið og við þökkum fyrir góðar viðtökur á fyrsta þætti

Fyrrum leikmaður Vals og River Plate fer norður í land, Gylfi lætur dómara heyra það og hefur athugasemdir við það hvernig dómarar ferðast. Drama kastið í boði 1966 ehf og Keflvíkingar eiga að skammast segja sumir. Varnaliðsmótsmeistar krýndir eftir nokkurra ára hlé og má lemja dómarana?? Símaviðtal við Njarðvíkinginn Gunnar Örlygsson þar sem hann ræðir um ferilinn og úrslitakeppnina á móti Keflavík.

Allt þetta og meira til í þætti tvö af Tvígrip - karfan kortlögð í samstarfi við 1966 ehf, Bílasölu Reykjanes, Humarsöluna og Margt smátt. 





Show more...
1 year ago
3 hours 38 minutes 38 seconds

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip karfan kortlögð 1. þáttur

Í fyrsta þættinum tökum við fyrir tímabilið 1989 – 1990, tímabilið sem erlendir leikmenn voru leyfðir aftur eftir nokkra ára fjarveru. Þetta tímabil var eftirminnilegt; kanar komu og fóru, Sandgerðingar spiluðu í fyrsta og eina skiptið í Úrvalsdeildinni, drama fyrir norðan og enn meiri drama suður með sjó. Jón Guðbrandsson fyrrum leikmaður Reynis Sandgerði verður á línunni og Evrópukeppnin í körfubolta handball style og fleira. Leiðréttingar, ábendingar og góðar sögur má senda til okkar á tvigrip@gmail.com Með okkur í þessu eru: Paddy´s, 1966 ehf. (Körfuboltavellir) og Litla Brugghúsið

Show more...
1 year ago
1 hour 58 minutes 1 second

Tvígrip - karfan kortlögð
Tvígrip -karfan kortlögð- eru hlaðvarpsþættir sem fjalla um allt sem við kemur Íslandsmótinu í körfuknattleik karla frá árinu 1989. Einnig verður bikarkeppnin gerð skil ásamt Evrópukeppninni og landsliðið fær sitt pláss. Eitt tímabil verður tekið fyrir í hverjum þætti.