Í öðrum þætti af fyrstu seríu True Crime Ísland  fjöllum við um morð sem átti sér stað í matarboði í Hlíðarhjalla árið 2005. Þar var maður, tæplega þrítugur, myrtur fyrir aö ávarpa ekki morðingja rétt.

Við lesum dóminn, rýnum í málsatvik og útskýrum hvernig réttarkerfið tók á þessu sakamáli.

Kostendur þáttarins frá byrjun eru Fons Juris, Kjörís, TM, JYSK og Kratos Lögfræðistofa.

Þetta sakamál er annað málið í seríunni okkar Karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við rýnum í dóma sem varpa ljósi á alvarlegustu ofbeldisbrotin á Íslandi. Í hverjum þætti fá hlustendur ekki bara frásögn heldur einnig fræðilega skýringu á því hvernig réttarkerfið virkað út frá þessum málum.

True Crime Ísland er íslenskt true crime podcast sem leggur áherslu á sakamál og dóma á Íslandi. Markmiðið er að gera dóma og málsatvik aðgengilegri almenningi og sýna hvernig íslenskt réttarkerfi bregst við ofbeldisbrotum.

Fylgdu True Crime Ísland á Spotify til að heyra fleiri íslensk sakamál og fá fræðilega innsýn í hvernig dómar og réttarkerfið á Íslandi virka í reynd.

Dóminn má lesa í heild á Fons Juris https://fj.is/?site=heimild&id=haestirettur.8368&query=524%2F2005

Show more...