Stjáni var að drekka sinn fjórða Collab þegar þátturinn var tekinn upp. Pínu víraður en í topp formi.
Farið yfir húsasmíðina á Illugagötunni þar sem Stjáni byggði sér og fjölskyldunni hús.
Pólitíkin og boðorðin tvö sem hann bjó til sjálfur.
11. Aldrei segja aldrei.
12. Ekki treysta þingmönnum og ráðherrum.
Veit ekki hvað Móses myndi segja við þessu en við fáum örugglega aldrei svar við þeirri spurningu.
Fyrsti gestur í Stjána í hliðarverkefninu sem við köllum “Inn fyrir landhelgi”.
Það er fyrrum bóhemlistamaðurinn Ríkharður Zóëga kokkur sem við sjanghæjuðum í spjall. Hann fer yfir gamlar og nýjar sögur. Hvernig hann endaði á eyjunni og hvar þetta allt saman byrjaði.
Allt upp á tíu í þessum þætti.
Farið var um víðan veg. Báðir hálfslappir af flensu en látum það ekkert á okkur fá. Gott spjall þangað til við fórum í veiðileyfagjaldið. Þá náðum við púlsinum hjá Stjána heldur betur upp.
Stjáni fer yfir hugmyndir hvernig Vestmannaeyjar geta orðið frumkvöðlar í líkbrennslu. Hvernig gömlu skipstjórarnir vissu að staðsetningin á Landeyjahöfn var vitlaus frá upphafi og fullt af fróðleik eins og gera má ráð fyrir.
Ætluðum að fara í húsasmíðina á Illugagötu og hvernig hann náði í Emmu konuna sína. En töluðum of mikið og stefnum á það í næsta þætti.
Stjáni kemur á óvart og biður mig um að fara ekki í viðfangsefni þáttarins fyrr en í næsta þætti. Svo þessi er út um allt. Spurningar sem gleymdust og redding.
Útgerðarsagan. Kvótakerfið. Baráttan við fiskvinnsluna. Eigin fiskvinnsla. Upphaf gámaútfluttnings og fróðleikur um lífið.
Stjáni fer yfir fyrstu árin sem skipstjóri og byrjunina á útgerðinni. Hvað varð til þess að hann og pabbi hans töluðust ekki við í langan tíma og sjávarháska sem hann lenti í sem skipstjóri á Leó VE 400.
Stjáni fer yfir fyrstu sporin í sjómennskunni, siglingarnar, tónlistina og hvernig hægt er að drepa í sér sæðið í nokkra klukkutíma bara með heitu vatni.
Stjáni fer yfir fyrsta hluta ævi sinnar. Frá fæðingarárinu 1946 að unglingsaldri. Einnig er erfitt að stoppa okkar mann þegar hann fer á flug svo það er farið um víðan völl.