Home
Categories
EXPLORE
Society & Culture
History
Comedy
News
True Crime
Technology
Science
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
TJ
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/5d/86/72/5d867232-e891-0144-dd51-8341c8bb6bc6/mza_11251067422674722762.jpg/600x600bb.jpg
Móment með mömmu
Helga Kristín
22 episodes
2 months ago
Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir Guðrúnar. Sjáumst síðar og takk fyrir okkur!
Show more...
Fashion & Beauty
Arts
RSS
All content for Móment með mömmu is the property of Helga Kristín and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir Guðrúnar. Sjáumst síðar og takk fyrir okkur!
Show more...
Fashion & Beauty
Arts
Episodes (20/22)
Móment með mömmu
Eitt móment að lokum (sería 2)
Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir Guðrúnar. Sjáumst síðar og takk fyrir okkur!
Show more...
2 months ago
50 minutes

Móment með mömmu
Brúðkaupsundirbúningur
Góðan daginn kæru hlustendur! Í þessum þætti fengum við dásamlegar mæðgur í heimsókn, þær Þórhildi og Heklu. Þannig er nefnilega mál með vexti að Hekla er að fara að gifta sig í sumar og því langaði okkur að skyggnast aðeins inn í undirbúninginn fyrir stóra daginn. Þetta var alveg ótrúlegt og margt sem kom okkur á óvart, t.d. "budget-ið" fyrir svona brúðkaup, á maður að eyða 5-7 milljónum í brúðkaup sitt?
Show more...
3 months ago
1 hour 19 minutes

Móment með mömmu
Tískuspjall
Við mæðgur gáfum okkur loksins tíma í smá tískuspjall, allt frá sumarlitum ársins yfir í fermingartísku. Svo vorum við að velta fyrir okkur hvort það væru ekki bara tvær árstíðir á Íslandi, haust og vetur. Hvað segið þið um það kæru hlustendur? Annars bara góða hlustun!
Show more...
3 months ago
53 minutes

Móment með mömmu
Móment með eiganda Scandi Home
Ef ykkur finnst hönnunar- og framkvæmdaspjall skemmtilegt, og jafnvel áhuga á hvernig maður stofnar fyrirtæki, þá er þetta þátturinn fyrir ykkur! Góða hlustun kæru hlustendur.
Show more...
3 months ago
56 minutes

Móment með mömmu
Breytingaskeiðið
Jæja, við ákváðum að vera aftur á persónulegu nótunum þennan sunnudaginn en Guðrún segir okkur frá sinni reynslu á breytingaskeiðinu. Góða hlustun!
Show more...
3 months ago
45 minutes

Móment með mömmu
Átröskun: reynsla dóttur og áhrif á móður
Í þessum þætti rifjum við mæðgur upp erfitt tímabil í okkar lífi, saga átröskunarsjúklings og reynsla móður. Góða hlustun!
Show more...
3 months ago
52 minutes

Móment með mömmu
Örþáttur: Hvernig á að pakka í ferðatösku
Já kæru hlustendur, í þessum þætti fáið þið góð ráð um það hvernig á að pakka í ferðatöskur. Góða hlustun!
Show more...
4 months ago
26 minutes

Móment með mömmu
Móment með Önnu Steinsen
Anna Steinsen, eigandi KVAN og svo margt fleira, mætti í spjall til okkar mæðgna til að ræða samskipti kynslóðanna. Skemmtilegt umræðuefni enda er þátturinn sá lengsti til þessa! Góða hlustun kæru hlustendur.
Show more...
4 months ago
1 hour 42 minutes

Móment með mömmu
Móment með Guðrúnu Sørtveit og Áslaugu
Mæðgurnar Guðrún Sørtveit og Áslaug mættu í spjall til okkar. Við hefðum getað setið með þeim í marga klukkutíma því þær eru svo skemmtilegar og ljúfar. Góða hlustun og njótið sunnudagsins!
Show more...
4 months ago
1 hour 20 minutes

Móment með mömmu
Fæðingarsaga
Nú fórum við mæðgur á persónulegu nóturnar. Góða hlustun og eigið dásamlegan sunnudag!
Show more...
4 months ago
52 minutes

Móment með mömmu
Jólagjöfin sem kom fæðingu af stað
Við byrjuðum í brekku, ein með hjartslátt í hnjánum og hin máttlaus fyrir neðan mitti, en eftir því sem leið á þáttinn urðum við hressari. Við fórum nefnilega um víðan völl í þessum þætti, úr skírn Ingólfs Arnarssonar yfir í jólagjöfina sem kom fæðingu af stað og þar svo yfir í klæðareglur Alþingis. Kæru hlustendur, góða hlustun!
Show more...
4 months ago
47 minutes

Móment með mömmu
Eitt móment að lokum
Tíminn flýgur! Allt í einu gáfum við mæðgur bara út 10 þætti, ásamt einum örþætti. Þetta er búið að vera heljarinnar ævintýri og hreint út sagt dásamlegt ferli. Við fengum frábæra viðmælendur til okkar og sköpuðum mörg ný móment saman sem við erum svo þakklátar fyrir. Næstu skref eru að njóta jólanna og taka á móti barni. Góða hlustun, heyrumst á nýju ári!
Show more...
7 months ago
50 minutes

Móment með mömmu
Móment með Viktoríu Hrund
Að þessu sinni fengum við til okkar smekkskonuna og innanhússhönnuðinn hana Viktoríu Hrund Kjartansdóttur. Við fórum vægast sagt um víðan völl, kynntumst Viktoríu og hennar ferli, rifjuðum upp skemmtilegar fjölskyldutengingar og hlógum mikið. Góða hlustun!
Show more...
8 months ago
1 hour 14 minutes

Móment með mömmu
Móment með Smátréssystrum
Við mæðgur áttum dásamlegt spjall með systrunum, Guðnýju og Helgu. Þær eru eigendur fyrirtækisins Smátré Gunnars ásamt föður sínum sem smíðar og hannar þessi fallegu tré sem fá að prýða heimili margra yfir jólahátíðina. Góða hlustun og ekki missa af komandi viðburðum hjá þeim feðginum!
Show more...
8 months ago
1 hour 5 minutes

Móment með mömmu
Harður dansheimurinn
Dans hefur verið hluti af lífi okkar mæðgna til margra ára. Í þessum þætti sköfum við lítið af hlutunum og förum yfir upplifun okkar mæðgna á dansheiminum sem er vægast sagt harður. Góða hlustun!
Show more...
8 months ago
1 hour 10 minutes

Móment með mömmu
Hefur klæðaburður frambjóðenda áhrif á þitt atkvæði?
Kæru hlustendur! Þetta hefur verið heljarinnar kosningarár hjá Íslendingum. Við mæðgur rifjum upp forsetakosningarnar en þá aðallega klæðaburð frambjóðenda. Af hverju sló klútur Höllu T í gegn? og var Halla Hrund ótrúverðug í fánalitunum? Eftir tæpa viku göngum við svo aftur til kosninga en okkur mæðgum þykir atkvæði okkar afar dýrmætt og viljum við að þeir aðilar sem við kjósum séu snyrtilegir til fara af virðingu við okkur og íslensku þjóðina. Talandi um kröfuharðar mæðgur...góða hlustun!
Show more...
8 months ago
55 minutes

Móment með mömmu
Móment með eigendum Andrá Reykjavíkur
Steinunn og Eva, eigendur Andrá Reykjavíkur mættu í spjall til okkar mæðgna. Hverjar eru þessar hugrökku konur sem opnuðu fataverslun í byrjun Covid, hvernig var ferlið og hvaða trend eigum við að hoppa á fyrir jólapakkann í ár? Engar áhyggjur, við förum yfir þetta allt í þættinum. Góða hlustun!
Show more...
9 months ago
51 minutes

Móment með mömmu
Örþáttur: Hvernig á að máta...
Við mæðgur vorum í stuði og ákváðum að henda í einn styttri þátt um hvernig á að máta...m.a. sundbol og leðurstígvél. Guðrún lumaði nefnilega á nokkrum mjög góðum ráðum í þeim efnum. Þátturinn gæti einnig reynst verslunareigendum gagnlegur en við tökum mátunarklefa fyrir, hvernig getur það verið svona erfitt að setja upp góða mátunarklefa? Góða hlustun!
Show more...
9 months ago
27 minutes

Móment með mömmu
Heimili í stíl
Guðrún mætti í tökur í miklum gír og tók alla fjölskyldumeðlimi fyrir í þættinum, meira að segja tengdasoninn! Mæðgurnar snerta á ýmsu í þessum þætti en ræða þá helst stílinn inn á heimilum hvor annarrar. Guðrún heldur því enn fram að hún sé stíllaus en Helga er ekki alveg sammála því. Í raun mætti segja að eggið kenni hænunni ýmislegt í þessum fjórða þætti hlaðvarpsins!
Show more...
9 months ago
56 minutes

Móment með mömmu
Móment með Dóru Júlíu og Guðrúnu
Dýrmætt spjall sem við áttum með Dóru Júlíu og Guðrúnu. Við fórum um víðan völl með þessum skemmtilegu og líflegu mæðgum en þær eiga sko mörg móment saman sem þær gátu deilt með okkur. Hvetjum allar mæðgur til þess að setjast saman yfir sunnudagsbollanum og hlusta saman á þennan dásamlega þátt. Góða hlustun!
Show more...
9 months ago
1 hour 6 minutes

Móment með mömmu
Kæru hlustendur, þá er komið að lokaþætti seríu tvö! Mikið hefur þetta verið skemmtilegt og takk fyrir hlustunina. Í þættinum förum við yfir ýmislegt eins og t.d. Tene fríið okkar dásamlega og hvernig var að ferðast með ungabarn. Svo er spurning hvort ilmandi ruslapokar verði ellilífeyrir Guðrúnar. Sjáumst síðar og takk fyrir okkur!