Hjalti G. Hjartarson ólst upp við mikla hreyfingu og líkamlega getu, en þegar hann hóf háskólanám breyttist allt. Hreyfingin féll út, lífstíllinn tók aðra stefnu og áherslan færðist alfarið yfir á námið. Það sem gerir sögu hans enn áhugaverðari er bakgrunnur hans: pabbi hans er hjartalæknir, mamma hans taugalæknir og hann sjálfur með sterkan íþróttagrunn. Hjalti hafði því öll verkfæri til að lifa heilbrigðu lífi – en lífið gerist, og stundum fjarlægjumst við það sem við vitum að er gott fyrir okkur.
Við höldum áfram að fylgjast með ferðalagi Önnu Margrétar Jakobsdóttur Hjarðar.
Þegar við kvöddum hana síðast voru aðeins tíu dagar í að hún færi í magahjáveitu í Svíþjóð - þegar hér er komið við sögu er rúmur mánuður frá aðgerð og hér segir Anna okkur frá því hvernig aðgerðin sjálf gekk fyrir sig og hvernig henni líður í dag.
Við fáum að heyra af lífinu á sjúkrahúsinu, fyrstu dagana eftir aðgerð og fyrstu skrefunum inn í þetta nýja líf sem hún er að byrja að byggja upp.
Í þessum þætti kynni kynnumst við Önnu Margréti Jakobsdóttur Hjarðar – sveitastelpu frá Borgarfirði eystra.
Anna Margrét stendur nú á stórum tímamótum í lífi sínu, því á næstu dögum fer hún í hjáveituaðgerð í Svíþjóð.
Áratuga reynsla af fordómum innan heilbrigðiskerfisins hefur kennt henni að standa með sjálfri sér – en það var ekki fyrr en hún hitti Erlu Gerði Sveinsdóttur hjá Mín besta heilsa að hún fékk loks skýringar á því hvers vegna hún hafði ekki getað létt sig.
Í þessum fyrsta þætti fáum við að heyra hennar sögu – allt frá æsku í sveitinni og til dagsins í dag, en þegar þetta viðtal er tekið upp eru aðeins nokkrir dagar í aðgerð.
Við munum halda áfram að fylgjast með Önnu Margréti og hennar ferli og er planið að spjalla við hana aftur þegar um mánuður er liðinn frá aðgerðinni.
Erla Gerður Sveinsdóttir er viðmælandi í þessum tuttugasta þætti.
En hún hefur lengi brunnið fyrir málefnum um offitu og hefur meðal annars starfað í offituteyminu á Reykjalundi, var ein af stofnendum Heilsuborgar og nú síðustu ár hefur hún starfað hjá Mín besta heilsa.
Umræðuefni þessa þáttar er meðal annars aðgerðirnar frá sjónarhóli læknis. Og svo ræðum við einnig um þessi lyf við offitu en ávísun þessara lyfja hefur stóraukist á síðustu árum.
Katrín Alexandra Helgudóttir (Kata) starfar sem sjúkraliði á bráðamóttökuni hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Hún segir okkur frá hennar vegferð að betra lífi. Það var í apríl 2023 sem hún gekkst undir hjáveitu á Klíníkinni.
Kata hefur verið opin með ferlið sitt og segir frá reynslu sinni og skrásetur ferlið á Instagram. En þar er hún undir notendanafninu @hjaveitu_lifid
Konráð Logi Fossdal er Akureyringur í húð og hár. Árið 2022 fór hann í mini-hjáveitu í gegnum klíníkina. Ákvörðunina tók hann eftir að hann eignaðist börn og sá fyrir sér að líkamlegt ástand þyrfti að vera betra til þess að geta sinnt og leikið við börnin.
Í þættinum ræðum við einnig kæfisvefn en Konni greindist með eins alvarlegan kæfisvefn og hann getur orðið.
Rafn Heiðar Ingólfsson, matreiðslumeistari, eða Rabbi eins og hann er gjarnan kallaður ólst upp á Fáskrúðsfirði hjá ungri einstæðri móður.
Árið 2008 flutti hann til Danmerkur og var á mjög slæmum stað andlega og taldi ástæðuna fyrir þessari vanlíðan vera ofþyngdin og var viss um að þegar hann væri orðinn grannur yrði allt betra. Árið 2011 gekkst hann undir magahjáveitu í gegnum danska heilbrigðiskerfið. Rabbi segir okkur frá því hvernig það var að fara í gegnum ferlið í Danmörku og ræðir opinskátt um baráttuna við fíknina.
Sólveig Sigurðardóttir hefur lengi talað fyrir heilbrigðum lífstíl á blogginu sínu Lífstíll Sólveigar. Hún ætlaði aldrei í efnaskiptaaðgerð en fyrir tveimur árum greindist hún með vélindasjúkdóminn Barretts sem leiddi til þess að hún gekkst undir hjáveituaðgerð í Malmö í ágúst 2023. Hún er formaður SFO (Samtök fólks með offitu og aðstandendur þeirra) og ræðum við bæði hennar reynslu af magahjáveitu sem og því hvernig stóð á því að til urðu sérstök samtök fólks með offitu.
Linda Skarphéðinsdóttir fór í magaermi árið 2019 og í framhaldinu fór svo að læra einkaþjálfun.
Linda segir sögu sína í þessum þætti.
Jóhannes Geir Númason er kjötiðnaðarmeistari sem vatt kvæði sínu í kross og gerðist grunnskólakennari.
Hann hafði lengi haft fordóma fyrir því að fara í efnaskiptaaðgerð, taldi þetta auðveldu leiðina og hann gæti þetta alveg sjálfur. Árið 2019 sagði hann hingað og ekki lengra og fór í hjáveitu.
Íris Hólm Jónsdóttir er söngkona úr Mosfellsbæ.
En hún steig sín fyrstu skref í sjónvarpsþáttunum X-Factor og hefur síðan þá brallað ýmislegt. Sungið með Frostrósum, á jólatónleikum Siggu Beinteins, tekið þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins svo eitthvað sé nefnt.
Í júní 2021 gekkst Íris undir magaermi á Klíníkinni.
Andrea Ævarsdóttir er bókasafns- og upplýsingafræðingur og allskonar-nörd eins og hún segir sjálf. Hún hafði velt fyrir sér magahjáveitu í yfir 20 ár en taldi þetta ekki vera lausnina fyrir sig, var hrædd við svona aðgerð. Það er síðan í desember 2019 þegar hún stendur á stórum palli úti í Gvatemala að hún fær hugljómun: „Þú verður að fara í þessa aðgerð, þú ert ekki að ráða við þetta án aðstoðar“. Hún lendir á Íslandi 19. des og er floginn út til Eistlands í aðgerð 12. janúar.
Andrea lítur björtum augum á framtíðina og sér ekki eftir neinu.
Hægt er að fylgja Andreu á Instagram: andrea_wins_at_life
Hólmfríður Lovísudóttir var í nóvember 2021 komin með fitulifur, of háan blóðþrýsting, sykursýki, liðverki og mikla mæði, þá orðin 150 kg þegar hún setti sig í samband við Aðalstein á Klíníkinni. Niðurstaðan var að hún fór í mini-hjáveitu í apríl árið 2022.
Hólmfríður segir okkur sína sögu í þættinum.
Áföllin gera ekki boð á undan sér. Gíslunn Hilmarsdóttir varð fyrir þeirri lífsreynslu árið 2017 að lenda í alvarlegu bílslysi sem varð til þess að hreyfing var ekki eins auðveld og áður. Hún fór í prógramm hjá Erlu Gerði árið 2021 og var svo ári seinna mætt til Svíþjóðar í hjáveitu. Gíslunn segir sína sögu í þessum þætti.
Guðbjörg starfar sem kennari á Fáskrúðsfirði. Hún fór í mini-hjáveitu árið 2021 í gegnum Klíníkina Ármúla og segir okkur hér hennar reynslusögu.
Vordís Baldursdóttir ræðir um aðdraganda þess að hún fór í prógramm á Reykjalundi og síðan í aðgerð árið 2020 og hvernig lífið er í dag.
María fór í hjáveitu í gegnum Erlu Gerði og Heilsuborg árið 2018.
Síðan hefur hún misst um 100 kg og sér ekki eftir neinu.
Þetta er sagan hennar Maríu.
Valdís Anna Jónsdóttir fór í hjáveitu árið 2016 eftir undibúning á Kristnesi.
Hún segir hér sögu sína og hvernig hefur gengið á þeim fimm árum síðan aðgerðin var gerð.
Olga Helgadóttir fór í magaermi árið 2017 í gegnum einkastofu hér á landi.
Hún ræðir sína reynslu, ástæðuna fyrir aðgerðinni og hvernig lífið er í dag.