All content for Helga Hjartað is the property of Helgi Jean Claessen and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Helga Hjartað er gamansamt hlaðvarp á andlegu nótunum.
Í þætti dagsins steig á svið einn af meðstjórnendum Helga Hjartans - Ólafur Aron. Umræðan var um það hvernig upphaf andlega ferðalagsins lítur út. Við ræddum varnir hugans fyrir því að berskjalda sig - með háði, spotti og gríni. Hvernig getur hugvíkkandi heimurinn verið til aðstoðar? Og hvenær er það sem maður má fagna því að vera á lífi? IG: helgijean & olafuraron12
Hin magnaða Sara María kíkti í spjall. Hún er að halda ráðstefnu um hugvíkkandi efni í Hörpu í lok febrúar. Í spjallinu var farið yfir víðan völl á andlega ferðalaginu - allt frá tiltektum í geymslum og skúffum - yfir í hvernig hennar stærsta opnun var á hugvíkkandi ferðalagi með Iboga.
Hér má sjá nánar um ráðstefnuna sem fer fram 27-28 feb. https://www.psychedelicsiceland.com/
Þórarinn Ævarsson naut mikillar velgengni í viðskiptalífinu - og rak bæði Dominos og IKEA. Það var svo eftir að hafa stofnað Spaðann - sem hann lenti á vegg í lífinu. Í þættinum segir Þórarinn frá því hvernig hann breyttist frá grjóthörðum materíalista í mann sem fór að huga að andlegu vegferðinni. Í dag er hann leiðsögumaður - með þann draum um að nota þekkingu sína frá IKEA inn í heim hugvíkkandi efna og sjálfsskoðunar. IG -@helgiejan *Upptakan var gerð 2024
Í fyrsta þætti Helga Hjartans kom tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson og ræddi um föðurímyndina, Stars Wars, andlega ferðalagið og uppeldi. Takk fyrir að hlusta - og munið að subscribe'a!