Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
History
Sports
Health & Fitness
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/ae/3e/b1/ae3eb1f0-f8ea-c631-1e1a-3989465bfe45/mza_10113528602744471347.jpeg/600x600bb.jpg
Atli & Elías
Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen
58 episodes
5 days ago
Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.
Show more...
TV & Film
RSS
All content for Atli & Elías is the property of Atli Óskar Fjalarsson & Elías Helgi Kofoed Hansen and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.
Show more...
TV & Film
Episodes (20/58)
Atli & Elías
56. Þáttur - Þurrt og blautt comeback!

Atli & Elías snúa aftur, einn þurr og annar blautur þennan dimma janúarmánuð. Svokallaður 'catch up þáttur' (ekki tómatsósan) eftir áralangt hlé. Farið er yfir hvaða verkefni seljast í dag á íslenskum markaði, fyrsta þáttinn af nýju þáttaröðinni Vigdís, og margt fleira.


Tvöföld gullkorn í lokin til að afsaka hlé.

Show more...
9 months ago
56 minutes 46 seconds

Atli & Elías
55. Þáttur - Spjall við Hannes Þór Halldórsson

Leikstjóri, höfundur, klippari og framleiðandi (og jújú, landsliðsmaður í fótbolta en hver er það ekki?) Hannes Þór Halldórsson kíkir til okkar í spjall niður í Kompu.


Þrír prúðir drengir og þrír bjórar á mann. Við ræðum IceGuys, Leynilögguna, Séð&Heyrt og Óróa og allt þar á milli nema það að verja víti frá Lionel Messi -- Í staðinn verjum við tíma okkar í að ræða DVD safnið hans á skrifstofu Atlavík.

Show more...
1 year ago
1 hour 29 minutes 24 seconds

Atli & Elías
54. Þáttur - Hlaupandi hádegismatur

Elías er rekinn. En það varir ekki lengi.

Drengirnir rifja markmiðin sem þeir settu sér í byrjun síðasta árs og hvernig gekk að ná þeim. Flest eru brostin en örfáum þeirra var náð og því má vera stoltur af!

Elías talar um áskoranir þess að vera með of mörg járn í eldinum á meðan Atli leggur orð í belg um framleiðslufyrirtæki sem standa ekki í skilum og potar svo í séríslenskt fyrirkomulag sem eflaust einhverjir þekkja sem "running lunch".

Show more...
1 year ago
1 hour 9 minutes 41 seconds

Atli & Elías
53. Þáttur - 2023 í hnotskurn

Þunglyndasti dagur ársins og mikil gleði! Talað er um vinnuálag síðasta árs og vonir og drauma þess nýja... Atli er loksins byrjaður að skrifa lokaritgerðina sína á meðan Elías lýsir ferli sínu við að endurskrifa kvikmynd.

Show more...
1 year ago
1 hour 10 minutes 29 seconds

Atli & Elías
52. Þáttur - Minning um sól

„Nei sko! Ætli það séu ekki afleiðingar gjörða minna?“


Rúmu hálfu ári síðar ákveður Atli að girða sig í brók og klippa þáttinn. Sem þá var stútfullur af ferskum umræðum og sumargleði en er nú orðin sorgleg minningarsúpa um sól sem einhverntíman skein.

Ókei. Þetta er kannski ekki alveg svona hádramatískt...


Við erum allavega mættir aftur!

Show more...
1 year ago
1 hour 2 minutes 50 seconds

Atli & Elías
51. Þáttur - Þurrkur

Það var ekki lengi kalt á toppnum hjá Atla & Elíasi eftir mikilfenglegt LIVE EXTRAVAGANZA. Hér ræðum við þurrk og dali í verkefnum okkar, sem alltof margir geta kannski tengt aðeins við. Því miður.

En engar áhyggjur! Atli er búinn að gera fullt í dag!

Show more...
2 years ago
57 minutes 24 seconds

Atli & Elías
50. Þáttur - Afmælisþáttur í Bíó Paradís í beinni (á þeim tíma)

Strákarnir eru í sannkölluðu afmælisstuði enda er þetta FIMMTUGASTI þátturinn af Atla & Elíasi. Vá...

Þeir fá til sín góða gesti í sérstakan live þátt í Bíó Paradís í samvinnu við Stockfish kvikmyndahátíðina. Tommi Valgeirs kvikmyndagagnrýnandi með meiru og Einar Pétursson (eftir allt saman EKKI eini hlustandi þáttarins) heiðra drengina og áhorfendur með nærveru sinni. Bjór og gleði, fjórir míkrafónar, live áhorfendur og versta martröð klipparans*.


*Það skal tekið fram að eftir rúman mánuð og vægt taugaáfall Atla við eftirvinnslu þáttarins bauðst Tommi Valgeirs af einskærri góðmennsku til að klippa þáttinn. Sem hann gerði á listilegan hátt. Ef þið sjáið hann, í guðanna bænum gefið honum knús!

Show more...
2 years ago
1 hour 39 minutes 55 seconds

Atli & Elías
49. Þáttur - Tölvuleikir, Svörtu Sandar & Leyndarmál

ALDÍS AMAH HAMILTON sest niður með okkur og ræðir þá marga bolta sem hún heldur á lofti, en nú er hún í miðjum skrifum á SVÖRTU SANDAR II

Show more...
2 years ago
1 hour 40 minutes 42 seconds

Atli & Elías
48. Þáttur - Árið sem kom of seint

Atli klippti. Þið vitið hvað það þýðir. Allt sem við tölum um í þættinum eru úreltar fréttir. En þó ná drengirnir að kreista út góðum þætti þar sem farið er yfir bestu hluti sem gerðust á árinu og markmið fyrir árið í ár. Þeir deila fræðandi áhorfstölum um hlustendur þáttarins, Elías kveður langt verkefni og rekur sig á í nýju handritaherbergi og Atli leggur niður næstu skref framleiðsluferilsins.

Show more...
2 years ago
1 hour 15 minutes 53 seconds

Atli & Elías
47. Þáttur - Logi Staðgengill

Atli & Elías tala um nýjar reynslur af setti, annar sem staðgengill og hinn sem allt á milli himins og sjávar. Óh! Og Robbi ljósamaður (með meiru) hringir óvart inn.

Show more...
2 years ago
1 hour 18 minutes 51 seconds

Atli & Elías
46. Þáttur - & Baldvin fokking Zeta

Loksins loksins loksins bjóðum við hinum umtalaða Baldvini Z í hlaðvarpið!
Leikstjóri, trommari, hraðskákmeistari á Akureyri í unglingaflokki og skítsæmilegur golfari en fyrst og fremst gamall og góður vinur. Við förum um víðan völl og ruglum saman ártölum, kvikmyndum og Line Producerum í þessari epísku yfirferð um gamla tíma, framtíðina og jaðarinn þar á milli.

Show more...
3 years ago
1 hour 51 minutes 15 seconds

Atli & Elías
45. Þáttur - Cannes prógram ungra framleiðanda

Djöfullega langur þáttur (sem á það alveg skilið) um prógram ungra famleiðanda á Cannes Film Festival sem Atli tók þátt í. Margt annað er rætt en hér er þetta prógram eins og það leggur sig.

Hinn almenni Einar Pétursson lærir allt sem Atli lærði í þessu prógrami við það að hlusta á þennan þátt.

Show more...
3 years ago
1 hour 48 minutes 58 seconds

Atli & Elías
44. Þáttur - Vegurinn til Cannes er olíuborinn

Mögulega er kominn tími til að horfast í augu við að þetta sé mánaðarlegt podcast en ekki vikulegt. Fyrsta skrefið í átt að betrun er að viðurkenna vanmátt sinn (eða svo höfum við allavega heyrt). Atli er á leiðinni á kvikmyndahátíðina í Cannes og Elías segir okkur loksins frá seríunni sinni sem hafa prýtt innantóm loforð hans síðastliðna mánuði (er annað skrefið ekki annars að bæta upp fyrir gjörðir sínar?). Verkefni Elíasar hlýtur Eddutilnefningu og gullkorn dagsins snúa að stórvægilegu smygli húsmæðra í Fossvoginum.

Show more...
3 years ago
1 hour 15 minutes 44 seconds

Atli & Elías
43. Þáttur - Ungur framleiðandi á Cannes

Atli var valinn á námskeið ungra framleiðanda á kvikmyndahátíðinni í Cannes og við hringjum í Dag Benedikt leikstjóra, ljósamann og handritshöfund og spyrjum hann spjörunum úr en hann sótti sama prógramm 2018. Einnig ræðum við Stockfish og misheppnaða tilraun Elíasar við að koma vel fram í útvarpsviðtali. Til að toppa þetta fer Atli með undurfagurt ljóð í Gullkornum dagsins.

PS. Því miður fundum við ekki þáttinn sem við vitnum í, um Berlinale shooting stars prógramið hans Atla, en það er vegna þess að við erum ömurlegir í að skrifa nákvæmar lýsingar á hverjum þætti eins og við erum að skrifa hér.

Show more...
3 years ago
55 minutes 6 seconds

Atli & Elías
42. Þáttur - Engin þöggun í skúrnum

Drengirnir hittast aftur eftir langa fjarveru. Atli talar EKKI um vinnutörn sem hann var að ljúka við hjá Truenorth en heit umræða á Facebook-síðu kvikmyndagerðarfólks er krufin til mergjar. 

Hvað er til bragðs ef verkefnið manns er sett á ís?

Show more...
3 years ago
1 hour 5 minutes 51 seconds

Atli & Elías
41. Þáttur - Sá úrelti

Tekinn upp á óræðum tíma í janúar en gefinn út í mars. Þetta gæti verið nýtt met í frestunaráráttu Atla. En hann er þó með ágæta afsökun í þetta skiptið. Verbúðin, Svörtu Sandar og svo margt margt fleira.

Show more...
3 years ago
1 hour 7 minutes 7 seconds

Atli & Elías
40. Þáttur - 2021 í hnotskurn

Við horfum aftur til Janúar 2021, og veltum fyrir okkur hvernig ár við sáum fyrir okkur í samanburði við það ár sem við fengum. Persónulegri þáttur svona rétt fyrir jól, og örlítil sjálfsást sem fylgir því að lesa lítil fanmail sem barst okkar -- Það í samanburði við póst sem Atli fékk frá stalker þegar Órói var ný og vinsæl mynd.

Show more...
3 years ago
1 hour 19 minutes 3 seconds

Atli & Elías
39. Þáttur - Labbaðu upp á þetta fjall

Drengirnir eru komnir aftur eftir alltof langa pásu. Elías hefur ferðast heimshorna á milli og smitaðist af Covid fyrir vikið á meðan Atli mætti seint á fyrirlestur Kvikmyndamiðstöðvar um umsóknarferlið þeirra. Strákarnir drulla EKKI yfir Ófærð og Atli segir frá erlendu tökuteymi sem gjörsamlega gekk frá honum.

Show more...
3 years ago
1 hour 9 minutes 41 seconds

Atli & Elías
38. Þáttur - RIFF ’21: Blaðamannapassinn

Alþjóðlega kvikmyndahátíð Reykjavíkur er í fullu fjöri á meðan við tókum upp þennan þátt, Eddu-styttur ársins búnar að finna sín heimili, og Atli og Elías eru aftur komnir í þægilegri stöðu bara tveir. Engir gestir. Bara þægindi.

Show more...
4 years ago
1 hour 8 minutes 30 seconds

Atli & Elías
37. Þáttur - Ninna Pálma, Áratugur í bransanum

Leikstýran Ninna Pálmadóttir fór strax að vekja athygli þó hún væri enn ekki útskrifuð úr Tisch School of the Arts með myndunum sínum Blaðberinn og Allir hundar deyja. En hún vann bæði Edduna og RIFF fyrir Blaðberann. Við ræðum við Ninnu um uppkomu hennar í bransanum og yfirþyrmandi drauma um að verða leikstjóri sama hvað það kostaði.

Show more...
4 years ago
59 minutes 51 seconds

Atli & Elías
Einn heitir Atli, hinn heitir Elías og saman ræða þeir opinskátt um það að vera inní, útúr og við jaðarinn á kvikmyndabransanum á Íslandi.