Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
History
News
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts211/v4/52/c8/db/52c8db75-f3b0-1fe0-c734-4819eb157aa7/mza_11911312816365014147.jpg/600x600bb.jpg
Til skjalanna
Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands
38 episodes
1 week ago
Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þáttt...
Show more...
History
RSS
All content for Til skjalanna is the property of Hlaðvarp Þjóðskjalasafns Íslands and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þáttt...
Show more...
History
Episodes (20/38)
Til skjalanna
Vinukona, ómagi, stúlka og frú
Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þáttt...
Show more...
1 week ago
53 minutes

Til skjalanna
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu.
Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja.
Show more...
5 months ago
42 minutes

Til skjalanna
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna
Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýn...
Show more...
6 months ago
43 minutes

Til skjalanna
Aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja frá 1964
Í febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973. Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrsluna, tilurð hennar og mikilvægi þegar á reyndi. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er náttúr...
Show more...
7 months ago
33 minutes

Til skjalanna
Ættfræði og tækni
Íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni.
Show more...
8 months ago
51 minutes

Til skjalanna
Cornell háskóli. Saga, söfn og aðgengi.
Ólafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla. Þátturinn er á ensku.
Show more...
9 months ago
39 minutes

Til skjalanna
Jólasiðir þá og nú
Helgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn. Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til landsins í gegnum tíðina og hjálpað við að móta siði og venjur. Meðal þess sem fram kemu...
Show more...
10 months ago
31 minutes

Til skjalanna
Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703
Helgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703. Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafsláttur og heytollur.
Show more...
11 months ago
22 minutes

Til skjalanna
Blái skjöldurinn
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea.
Show more...
1 year ago
33 minutes

Til skjalanna
Heimsókn til Gdansk í Póllandi
Helgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala, nýsköpun, miðlun gagna og minni þjóðar.
Show more...
1 year ago
44 minutes

Til skjalanna
Netógnir dagsins í dag
Heiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum.
Show more...
1 year ago
38 minutes

Til skjalanna
Þjóðlendurannsóknir
Helgi Biering ræðir við Ólaf Arnar Sveinsson fagstjóra fræðslu og rannsókna og Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur skjalavörð um Þjóðlendurannsóknir sem farið hafa fram á Þjóðskjalasafni Íslands í um tuttugu ár.
Show more...
1 year ago
26 minutes

Til skjalanna
„Þessi frægu glæpamál“
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Jón Torfason og Má Jónsson um nýútkomna bók þeirra Þessi frægu glæpamál. Í þættinum ræða þau um ein þekktustu morðmál Íslandssögunnar en það eru morðin á Sjöundá og Illugastöðum.
Show more...
1 year ago
43 minutes

Til skjalanna
Út á brún og önnur mið
Helgi Biering ræðir við Hauk Aðalsteinsson rithöfund og skipasmið um bókina Út á brún og önnur mið. Útgerðarsaga Vatnsleysustrandarhrepps til 1930. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er verbúðalíf, skipasmíðar, spítalafiskur og hvalveiðar í net.
Show more...
1 year ago
38 minutes

Til skjalanna
Trump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum.
Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.
Show more...
1 year ago
31 minutes

Til skjalanna
Skjalafréttir 10 ára
Helgi Biering ræðir við Árna Jóhannsson skjalavörð um fréttabréf Þjóðskjalasafns Íslands Skjalafréttir. Fyrsta tölublað Skjalafrétta kom út 14. janúar árið 2014 og því fagnar það 10 ára afmæli um þessar mundir.
Show more...
1 year ago
21 minutes

Til skjalanna
Dómabókagrunnur Þjóðskjalasafns
Skjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.
Show more...
1 year ago
44 minutes

Til skjalanna
Grindavíkurskjölin
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.
Show more...
1 year ago
35 minutes

Til skjalanna
Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi
Benedikt Eyþórsson ræðir við Báru Baldursdóttur sagnfræðing um bók hennar Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi sem nýlega kom út. Óhætt er að segja að gögn sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands hafi varpað nýju ljósi á samneyti íslenskra kvenna og hermanna á hernámsárunum.
Show more...
1 year ago
40 minutes

Til skjalanna
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn. Helgi Biering ræðir við Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur sagnfræðing um rannsóknir hennar á íslenskum sakamönnum sem sendir voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1736-1830
Show more...
2 years ago
34 minutes

Til skjalanna
Helgi Biering ræðir við sagnfræðinginn Atla Björn Jóhannesson um MA-ritgerð hans, Vinnukona, ómagi, stúlka og frú. Ritgerðin fjallar um konur sem skrifuðu undir áskorun Hins íslenska kvenfélags árið 1895 - fyrstu skipulögðu kvenréttindakröfuna á Íslandi á landsvísu. Konur úr öllum stéttum tóku þátt. Þátttakan var misjöfn eftir landshlutum og fór eftir einstaklingsframtaki á hverjum stað. Þátturinn varpar ljósi á upphaf íslenskrar kvenréttindabaráttu með því að greina hverjir þáttt...