Home
Categories
EXPLORE
True Crime
History
Society & Culture
Comedy
News
Music
Health & Fitness
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
MU
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/3d/fd/cb/3dfdcb67-fc9a-823f-784a-c66b0e65ba9b/mza_6577918165474218340.jpg/600x600bb.jpg
Stéttir Landsins
Stéttarfélagið
18 episodes
1 month ago
Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí. Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst. Gleðilegt sumar ☀️ Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þó...
Show more...
Careers
Education,
Business
RSS
All content for Stéttir Landsins is the property of Stéttarfélagið and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí. Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst. Gleðilegt sumar ☀️ Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þó...
Show more...
Careers
Education,
Business
Episodes (16/18)
Stéttir Landsins
#16 - Kokkur - Snædís Xyza
Kokkurinn kraftmikli, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, er margverðlaunaður matreiðslumeistari og hefur verið hluti af kokkalandsliðinu um árabil. Við spjölluðum meðal annars um trendin í matarmenningu Reykjavíkur, fáum góð ráð um hvernig á að elda fisk, kíkjum á bakvið tjöldin hjá íslenska kokkalandsliðinu og ræðum fyrir hverja kokkanámið er. Matur, menning og metnaður í þætti vikunnar. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷 @snaedisxyza 🎵Elephant - Tame Imp...
Show more...
1 week ago
58 minutes

Stéttir Landsins
#15 - Ljósmyndari - Þráinn Kolbeinsson
Ljósmyndarinn ævintýragjarni, Þráinn Kolbeinsson, hefur lent í ýmsum ævintýrum á ferli sínum sem ljósmyndari. Hann flakkar um landið og á fjarlægar slóðir til að grípa besta mögulega augnablikið. Allt frá því að mynda reiðhjólakappa á Vestfjörðum til ísbjarna á Baffin-eyjum í Kanada. Hann fór meðal annars yfir það hvernig hann skipti úr stöðugri vinnu á sálfræðistofu yfir í óútreiknanlegt líf sem ævintýraljósmyndari. Ljósmyndun og léttleiki í fyrirrúmi í þætti vikunnar. Samstarfsa...
Show more...
1 week ago
51 minutes

Stéttir Landsins
#14 - Þáttastjórnandi - Arnar Þór Ólafsson
Þáttastjórnandinn geðþekki, Arnar Þór Ólafsson, er með marga bolta á lofti í sjónvarpi og hlaðvarpsheimum. Eftir að hafa verið í atvinnuleit eftir heimsfaraldur stökk hann um borð á hlaðvarpsvagninn og hefur það leitt af sér eitt og annað. Við ræddum við hann um hans helstu verkefni, flest fjármálatengt afþreyingarefni, líkt og Pyngjuna og Viltu Finna Milljón? á Stöð 2. Við vildum vita hvernig fyrirtæki brugðust við því þegar Pyngjumenn fóru að grúska í ársreikningum þeirra, helstu ráði...
Show more...
1 month ago
52 minutes

Stéttir Landsins
#13 - Miðill - Sigríður Elín Olsen
Miðillinn og heilarinn, Sigríður Elín Olsen, ræddi við okkur um andleg málefni og deildi því með okkur, hvað býr í fólkinu að handan. Við fengum ýmis svör, heyrðum um okkar verndarverur og hvernig orku við búum yfir. Við ræddum starf miðilsins, hvernig skilaboðin berast frá þeim liðnu, hvort það sé erfitt að vera sjáandi í margmenni, og hvað taki við eftir jarðneska tilveru. Við fórum einnig yfir Tarot-spilin, huldufólk og heilun dýra, þar sem við fengum að vita að ýmsar verur vaka einnig yfi...
Show more...
1 month ago
59 minutes

Stéttir Landsins
#12 - Förðunarfræðingur - Rakel María Hjaltadóttir
Förðunarfræðingurinn fótfimi, Rakel María Hjaltadóttir, fór yfir heims- og tískumálin með okkur. Það var tekinn 360 gráðu greining á heitustu trendunum í förðunarbransanum í dag, hvað væri heitt og hvað væri kalt. Rakel er hlaupari mikill og við ræddum um hið stórmerkilega hlaup sem er kennt við Bakgarðinn. Við vildum forvitnast hvað færi í gegnum hausinn á hlaupurum eftir næstum sólarhring á hlaupum og hvers vegna einhver myndi vilja leggja þetta á sig. Einnig tókum við snúning á ferðalögu...
Show more...
1 month ago
58 minutes

Stéttir Landsins
#11 - Óperusöngvari - Kristján Jóhannesson
Óperusöngvarinn tónelski, Kristján Jóhannesson, er gullbarki með meiru. Þrátt fyrir að vera ekki nema rétt rúmlega þrítugur hefur hann lært og starfað sem óperusöngvari víða um Evrópu um árabil. Kristján sagði okkur frá hinum litla en harða heimi óperunnar í Evrópu og hinu rólega lífi í svissneskum smábæ. Við vorum meðal annars forvitnir að vita hvort hann væri stöðvaður út á götu til þess að gefa áritanir og hvort við ættum erindi í óperuna, enda á besta aldri. Sannarlega þrjár einstakar útv...
Show more...
1 month ago
57 minutes

Stéttir Landsins
#10 - Töframaður - Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal
Töframaðurinn dulræni, Lárus „Lalli töframaður“ Blöndal, er vægast fjölhæfur skemmtikraftur. Lalli hefur töfrað og skemmt fyrir unga jafnt sem aldna. Þrátt fyrir að Lalli megi ekki gefa upp hvernig helstu töfrabrögð eru framkvæmd þá leysti hann úr skjóðunni um margt annað sem tengist töframannasenunni hér á landi. Upphaf töfraferilsins, töframannafélagið, hvort hann hefði töfrað á fyrsta stefnumóti, skemmtanir í barnaafmælum og blöðrutrix voru meðal annars til umræðu í þætti vikunnar. S...
Show more...
2 months ago
59 minutes

Stéttir Landsins
#9 - Fréttamaður - Kristín Ólafsdóttir
Fréttakonan orðheppna, Kristín Ólafsdóttir, stendur á tímamótum um þessar mundir en hún lagði blaðamannapennann á hilluna á dögunum, í bili allavega. Hún ræddi við okkur um starf fréttamanns og var af nægu að taka. Hún lýsti því hvernig hún endaði fyrir algjöra tilviljun sem fréttamaður á Vísi, hvers vegna hún á það til að flytja fréttir úr sundlaugum landsins, sviðsljósið og vinabeiðnir á Facebook og síðast en ekki síst, Eurovision. Við ræddum einnig hennar næsta skref en Kristín hefur hafið...
Show more...
2 months ago
1 hour 3 minutes

Stéttir Landsins
#8 - Garðyrkjubóndi - Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir
Garðyrkjubóndinn glaðbeitti, Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, brá sér frá bændastörfum á Flúðum og fór yfir það helsta með okkur. Það kennir ýmissa grasa í garðyrkjunni hjá Höllu en hún rekur meðal annars Sólskins vörumerkið og ræktar tómata, gúrkur, sellerí og fleira til. Í þættinum var meðal annars farið yfir hvernig maður eignast allt í einu stærðarinnar garðyrkjustöð á Flúðum, hækkandi raforkuverð, smáauglýsingar í Bændablaðinu og hvernig tómatar þroskast og dafna. Það fá allir gr...
Show more...
2 months ago
1 hour 6 minutes

Stéttir Landsins
#7 - Listamaður - Almar „í kassanum“ Atlason
Listamaðurinn fjölhæfi, Almar Steinn Atlason, er flestum landsmönnum kunnugur eftir stórbrotinn gjörning á göngum Listaháskólans árið 2015. Almar dvaldi nakinn í glerkassa í viku og hreif alþjóð með hug og djörfung í listsköpun sinni. Hann hefur gert margt fleira en setið í kassa og ræddi við okkur um hin ýmis verk og ævintýri ásamt athyglinni sem fylgdi kassanum. Almar tjaldaði í nokkrar vikur á folfvelli á Hornafirði og málaði myndir, lét gesti og gangandi húðflúra á sér bakið á listsýningu...
Show more...
2 months ago
1 hour 11 minutes

Stéttir Landsins
#6 - Útfararstjóri - Frímann Andrésson
Útfararstjórinn yfirvegaði, Frímann Andrésson, ræddi við okkur um lífið, veginn og dauðann. Starf útfararstjóra getur tekið á sálartetrið eins kom fram í spjalli okkar. Við ræddum um hvaða viður væri vinsælastur fyrir líkkistu, hvort að almenningur mætti keyra um á líkbíl og bestu smáréttina í erfidrykkju. Frímann er einnig plötusnúður en spilar ekki hvaða tónlist sem er. Hann á það til að þeyta skífum á Kaffibarnum fram á rauða nótt og vakti það mikinn áhuga spyrla. Samstarfsaðili þáttarins:...
Show more...
3 months ago
52 minutes

Stéttir Landsins
#5 - Ljósmóðir - Hulda Viktorsdóttir
Ljósmóðirin ljúfa, Hulda Viktorsdóttir, ræðir við okkur um heima og geima og allt sem við kemur starfi ljósmæðra. Það var kafað ofan í uppruna orðsins, rætt um vinsældir heimafæðinga á undanförnum árum, hvort það væri samkeppni milli vakta að taka á móti fyrsta barni ársins og hvort að ljósmæðranám væri fyrir alla, konur og kalla. Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 📷@huldaviktors🎵Elephant - Tame Impala🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
Show more...
3 months ago
51 minutes

Stéttir Landsins
#4 - Grínisti - Bolli Már Bjarnason
Grínistinn glæsilegi, Bolli Már Bjarnason, er mörgum kostum gæddur. Það er ávallt stutt í grínið hjá kauða og einnig er hann með silkimjúka útvarpsrödd. Það liggur beinast við hjá Bolla að starfa við uppistand og vera í morgunútvarpi allra landsmanna. Það var farið yfir víðan völl í þættinum, stóra stökkið þegar Bolli ákvað að snúa sér alfarið að uppistandinu, hvernig það er að vera í 20 klukkustundir á viku í útvarpi og drauma í dagskrárgerð í sjónvarpi. 📷@bollimar 🎵Elephant - Tame Impala ...
Show more...
3 months ago
1 hour

Stéttir Landsins
#3 - Hagfræðingur - Jónas Atli & Þórunn Helgadóttir
Hagfræðingarnir hagsýnu, Jónas Atli Gunnarsson og Þórunn Helgadóttir, hafa sérhæft sig í hinum döpru vísindum, hagfræðinni. Þau eiga margt sameiginlegt, þau eru bæði hagfræðingar og einnig í hjúskap. Hins vegar starfa þau á ólíkum sviðum innan hagfræðinnar. Jónas Atli starfar hjá hinu opinbera hjá HMS á meðan Þórunn snýr hjólum atvinnulífsins hjá fjárfestingarbankanum Fossum. Þau hafa búið víða um Evrópu og við ræddum við þau um hinar ýmsu hliðar hagfræðinnar, vinnumarkaðinn í Suður-Evrópu ...
Show more...
3 months ago
59 minutes

Stéttir Landsins
#2 - Dansari - Elín Signý
Dansarinn geðugi, Elín Signý Ragnarsdóttir, starfar hjá Íslenska dansflokknum og við spurðum hana spjörunum úr. Við ræddum um hvernig það er að vera dansari að atvinnu og fórum yfir ferilinn á léttu nótunum. Einnig var farið yfir hinar alræmdu skandinavísku mjaðmir og hvort það væri of seint fyrir miðaldra karlmenn að hefja sinn dansferil. Elín er ævintýrakona mikil og undir lok þáttar fórum við yfir brimbrettarmenninguna á Íslandi og hvar bestu öldurnar séu að finna. 📷@elinsigny 🎵Elephant ...
Show more...
3 months ago
57 minutes

Stéttir Landsins
#1 - Leikari - Aron Már Ólafsson
Leikarinn litríki, Aron Már Ólafsson, ræðir við okkur um leikarastarfið. Aron lauk leiklistarnámi á sex árum og má segja að hann sé sprenglærður leikari fyrir vikið. Við ræðum við hann um skrautlegan námsferil, framandi listgjörninga og hápunkt ferilsins þegar hann fékk sinn eigin bílstjóra og trailer á setti. 📷@aronmola 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þórbergs
Show more...
3 months ago
1 hour 18 minutes

Stéttir Landsins
Við drengirnir settumst niður í stutta stund og litum yfir farinn veg í svokölluðum „wrap up“ þætti. Líkt og flestar stéttir landsins ætlum við að skella okkur í sumarfrí. Í þessari stuttu samantekt rifjuðum við upp skemmtileg atvik og eftirminnileg augnablik. Við þökkum öllum kærlega fyrir hlustunina og hlökkum við til að byrja ferskir í ágúst. Gleðilegt sumar ☀️ Samstarfsaðili þáttarins: 🔍Alfreð & Giggó --- 🎵Elephant - Tame Impala 🎙️Hinrik Wöhler & Ólafur Jóhann Þó...