Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
History
TV & Film
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts116/v4/5b/9d/9a/5b9d9a26-29d3-f8e2-5b4d-e481408cae6c/mza_6827156783223957224.jpg/600x600bb.jpg
Snorri Másson ritstjóri
Snorri Másson
95 episodes
6 days ago
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Show more...
News
RSS
All content for Snorri Másson ritstjóri is the property of Snorri Másson and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.
Show more...
News
Episodes (20/95)
Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Brynjar Karl: Sannleikurinn um Breiðholt og vakning þjóðar

Brynjar Karl Sigurðsson körfuboltaþjálfari og íþróttaleiðtogi ræðir hér um það hvernig beri að gera kröfur til ungs fólks, körfuboltaliðið Aþenu, stöðuna í Breiðholti, ofbeldisþróun þar, fullkominn skort á stefnu og vonlaus samskipti við Reykjavíkurborg.


Show more...
7 months ago
1 hour 26 minutes 9 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Alls staðar breytist umræðan! Sigríður Andersen og Kjartan Magnússon.

Í þessum þætti ræðir Snorri Másson ritstjóri við Sigríði Á. Andersen, þingmann Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, og Kjartan Magnússon, ekki borgarfulltrúa, heldur formann Hjálms – ungliðahreyfingar Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Til umfjöllunar eru þau fimm ár sem liðin eru frá upphafi kórónuveirufaraldurs, evrópsk stjórnvöld sem vakna upp við vondan draum þegar málfrelsi er innleitt á samfélagsmiðlum, innflytjendamál og tálsýnin um inngildingu allra, auk ummæla dómsmálaráðherra um að ekki sé hægt að treysta dómstólum.

Show more...
8 months ago
1 hour 7 minutes 24 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Ræða: Það er hægt að skipta um trúarbrögð í landinu

Ég flutti erindi á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur þann 23. janúar, þar sem ég fjallaði um það hvernig stjórnmálin hegða sér í sífellt auknum mæli eins og trúarbrögð, bæði hér á landi og erlendis.

Með öðrum orðum: Hvað annað en hröð trúarleg sinnaskipti hafa leitt til þeirra grundvallarbreytinga sem hafa orðið á ráðandi stjórnmálahugsun á Íslandi á undanförnum árum, hvort sem er í sambandi við viðhorf til þjóðmenningarinnar, tungumálsins eða kynjamála?


Show more...
9 months ago
35 minutes 40 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Jakob Frímann um svakalegan fund, Reykjavíkurborg og þriðju leiðina

Jakob Frímann Magnússon goðsögn og þingmaður Miðflokksins ræðir hér stjórnmálin, allt frá dapurri upplifun sinni af Reykjavíkurborg á sínum tíma og til nauðsynlegrar uppbyggingar sem er fram undan í íslensku samfélagi. Ekki er hjá því komist að drepa niður fæti á mikilvægum stöðum í sögunni, ferðalög Stuðmanna til Kína og Rússlands, Kalda stríðið og Ísland í fyrri tíð.

Últrafrjálshyggja eða hardcore kommúnismi - eða þriðja leiðin? Eina málið er að sjá til þess að Reykjavíkurstjórnin verði ekki landsstjórnin, segir Jakob Frímann.

Show more...
11 months ago
49 minutes 40 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Ég býð mig fram

Risatilkynning: „Ég tilkynni hér með að ég sækist eftir oddvitasæti á lista Miðflokksins í Reykjavík í komandi alþingiskosningum.“

Show more...
1 year ago
14 minutes 51 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Jón Gnarr um Íslendinga, hugarfar, skynsegin ráðherra og grín

Hér er rætt við Jón Gnarr grínista sem nú hyggur á þingframboð undir merkjum Viðreisnar. Við ræðum tímann sem borgarstjóri, muninn á stjórnmálaþátttöku hans þá og nú, woke-heilavírusinn, útlendingamálin, hernaðarbandalög og varnarbandalög, sögu styrjalda, eðli gríns og menntamálin þegar Jón verður fyrsti jaðarsetti skynsegin ráðherrann.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Nettó, Myntkaup, Reykjavík Foto og Happy Hydrate.

Show more...
1 year ago
1 hour 36 minutes 57 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Heiðar Guðjónsson um þjóðerni, auðlindir, fjölmiðlarekstur, fjárfestingar og Peter Thiel

Í viðtali vikunnar er birt á ný samtal við Heiðar Guðjónsson fjárfesti frá því í júlí 2023. Viðtalið birtist í hlaðvarpi Skoðanabræðra, Snorra Mássonar og Bergþórs Mássonar.

Umræðuefni eru m.a: bjartsýni, þjóðernisofsi, hagfræði, ævintýri, báknið, hægrimennska, fjárfestingar í listum, Peter Thiel, framtíðin og Guð veit hvað annað.

Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Show more...
1 year ago
1 hour 37 minutes 19 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Sigmar Guðmundsson um veikleika krónunnar, ESB-drauminn, mannúðarpælinguna og fíkniefni

Sigmar Guðmundsson var fjölmiðlamaður um áratugaskeið og sneri sér svo að stjórnmálum fyrir Viðreisn. Stundum kallaður best klæddi Píratinn. Hér er rætt um fíknivandann, áfengi, Evrópusambandið, ríkisfjármál, tungumálið, innflytjendur, flóttamenn, íslensku krónuna, Jón Gnarr, Viðreisn, stjórnmálastarfið, fjölmiðla, RÚV og almennt hina pragmatísku nálgun.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
1 hour 38 minutes 6 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Jakob Birgisson um vafasöm stjórnmálatákn, þvottavélar og efnahag uppistandara

Jakob Birgisson uppistandari sest við borð ritstjórans og ræðir allt frá brottvísun flóttamanna og málefni ríkisstjórnarinnar til sálarástands ungmenna, áfengis í búðir, þvottavéla, nýs merkis Alþingis, nýrrar stjórnarsetu Brynjars Níelssonar og margs annars.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Myntkaup og Happy Hydrate.

Show more...
1 year ago
1 hour 9 minutes 17 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Diljá Mist um hægrisveiflu, fjölskylduna, íslenska fánann og stríðið á milli góðs og ills

Diljá Mist Einarsdóttir er hæstaréttarlögmaður og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Hér er rætt um ríkisfjármál, þjóðerni, frelsi, hægrisveiflu, stöðu Sjálfstæðisflokksins, efasemdir Diljár um Samfylkingu og Miðflokk, stríðsástand og góðu og vondu kallana í heiminum, fjölskyldumál, opinbera starfsmenn og tillögur Diljár að skattaafsláttum vegna barneigna. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
1 hour 29 minutes 50 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Rúnar Helgi um ringlaða karla, taugaáfall í #MeToo og skoðanakúgun

Rúnar Helgi Vignisson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í ritlist. Um það leyti sem #MeToo-byltingin skall á fékk hann taugaáfall eftir neikvæð viðbrögð við ýmsum greinarskrifum, dró sig í hlé og fór að hugsa sinn gang. Bókin Þú ringlaði karlmaður: Tilraun til kerfisuppfærslu er afurð þess ferlis, þar sem hann rekur sína sögu sem karlmanns í íslensku samfélagi. Viðtalið er opinskátt og persónulegt spjall um skoðanakúgun, háskóla, bókmenntir, stóra bíla, föðurhlutverkið og feðraveldið.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
1 hour 41 minutes 12 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Björn Jón Bragason um hnignun, agaleysi, hrun klassískra mennta og sjálfsmynd þjóðar

Björn Jón Bragason er sagnfræðingur, lögfræðingur og rithöfundur og einkar afkastamikill á öllum þessum sviðum. Hér í þessu viðtali er um auðugan garð að grisja. Hrun Sjálfstæðisflokksins og borgaralegra stjórnmála almennt, ólýðræðisleg ríkisvæðing stjórnmálaflokkanna, fjármálasaga Íslands, sjálfsmynd þjóðar á hnignunarskeiði í menntamálum, þjóðarstoltið, félagsleg hnignun á Vesturlöndum, mikilvægi málvöndunar, orwellísk aðför að tjáningarfrelsinu, ástandið í háskólum landsins og ósköp margt fleira. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Myntkaup, Happy Hydrate og Reykjavík Foto.

Show more...
1 year ago
1 hour 34 minutes 23 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Aron Kristinn um TikTok, peninga, sjálfshjálp og poppstjörnulífið

Aron Kristinn Jónasson tónlistarmaður og viðskiptafræðingur er einkar áberandi á samfélagsmiðlum þessi dægrin og segir í viðtali við ritstjórann að með því sé hann bæði að markaðssetja sig en einnig hjálpa fólki. Hér tölum við um allt frá TikTok og poppstjörnulífinu til sjálfshjálparbóka og trúarinnar.

Viðtal vikunnar er í samstarfi við Reykjavík Foto, Happy Hydrate, Myntkaup og Þ. Þorgrímsson.

Show more...
1 year ago
1 hour 24 minutes 14 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Aðlögun innflytjenda, fyrirlestrar frjálslyndra fjölmiðla og sögulegt símaat

Í fréttum vikunnar að þessu sinni er farið yfir allt frá mislýðræðislegum aðgerðum vestrænna stjórnvalda, mórölskum fyrirlestrum meginstraumsmiðla um ákveðin mál og til aðlögunar innflytjenda í gegnum viðskipti. Einnig rifjar ritstjórinn upp sögulegt símaat sem tekið var upp í hlaðvarpi hér um árið. Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate. Hér má nálgast viðtalið á vef Morgunblaðsins: https://www.mbl.is/mogginn/dagmal/innskraning/?redirect=/mogginn/dagmal/thjodmalin/251780/%3F_t%3D1723759196.5559003 Hér má nálgast þátt Skoðanabræðra um Nassim Nicholas Taleb: https://www.patreon.com/posts/327-allt-um-einn-110181893?utm_medium=clipboard_copy&utm_source=copyLink&utm_campaign=postshare_creator&utm_content=join_link

Show more...
1 year ago
26 minutes 8 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Þú ert líklega í sértrúarsöfnuði

Hluti þessa þáttar er efni úr þætti frá 8. febrúar 2024. Þar sagði: Í fréttum vikunnar er fjallað um trúarlegt eðli stjórnmála okkar tíma, vanþakkláta þingmenn í nýju húsnæði, pólitíska gjá á milli ungra karla og ungra kvenna, gaslýsingar RÚV, kúgunartilburði í Evrópusambandinu og möguleikann á að loftslagsprestar taki yfir biskupsembættið.


Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
27 minutes 17 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Dóri DNA um stríðin sem skipta máli, karlmennsku og woke vs. hægrið

Í þessu mikilvæga viðtali við Halldór Halldórsson Laxness rithöfund og grínista er rætt um allt frá peningum og karlmennsku til blaðamennskunnar, fjölmiðlanna og samfélagsmiðlanna. Farið er yfir stríðin sem skipta máli, tilfinningar Dóra við að lesa X, framtíð grínsins og ótalmargt fleira afar spennandi.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Þ. Þorgrímsson.

Show more...
1 year ago
1 hour 38 minutes 2 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Viðtal | Eyþór Arnalds um regluvæðingu, jafnrétti, wokeisma, Davíð Oddsson og vitvélar

Í viðtali vikunnar fer ritstjórinn um víðan völl ásamt Eyþóri Arnalds stjórnmálamanni, frumkvöðli og listamanni. Þessa dagana er Eyþór með hugann við tónlist, gervigreind og framtíð landsins og hefur frá afar mörgu að segja um allt frá málefnum sveitarfélaga til framfara í líftækni. Annað sem verður okkur að umtalsefni er regluvæðing innan ESB, menntamál, Davíð Oddsson og verðbólgan.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Reykjavík Foto, Þ. Þorgrímsson, Happy Hydrate og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
1 hour 38 minutes 56 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Raunveruleg upptök kórónuveirunnar (viðtal v. Matt Ridley metsöluhöfund)

Í fréttum vikunnar er rætt við Matthew Ridley. Matt er blaðamaður, viðskiptamaður og stjórnmálamaður, en fyrst og fremst margverðlaunaður metsöluhöfundur sem hefur selt meira en milljón bækur á fleiri en þrjátíu tungumálum. Ridley er menntaður dýrafræðingur, með doktorsgráðu í heimspeki og nýjasta bók hans er Viral, the Search for the Origin of Covid-19. Ridley hallast að því að veiran eigi upptök sín í tilraunastofu og í þessum þætti færir hann rök fyrir því. Við ræðum margt annað við Matt Ridley, stöðu Íslands og Bretlands í evrópsku samhengi, við ræðum Evrópusambandið, um misfellur í frjálslyndu lýðræði nútímans og margt, margt fleira.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Happy Hydrate, Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto og Myntkaup.

Show more...
1 year ago
1 hour 12 minutes 41 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Réttindin sem ógna lýðræðinu, hópspjöll og stjörnuspeki

Í fréttum vikunnar er rýnt í umfjöllun fjölmiðla um þá ógn sem steðjar að frjálslyndu lýðræði vegna uppgangs íhaldssamra hægriafla. Bent er á hvernig glæný „réttindi“ hvers konar eru notuð sem yfirvarp til að ganga á önnur eldri réttindi. Þá er vikið að netöryggi Íslendinga og hópspjöllum og loks eru menn að opna hjarta sitt hér fyrir hinni öldnu vísindagrein stjörnuspekinni.

Fréttir vikunnar eru í samstarfi við Þ. Þorgrímsson, Reykjavík Foto, Happy Hydrate og Myntkaup. 

Show more...
1 year ago
23 minutes 7 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Fréttir vikunnar | Skaðmenntun, lýðræðið og Biden (m. Jakobi Birgissyni og Bergþóri Ólasyni)

Mikilvæg mál eru á dagskrá í fréttum vikunnar, kosningabaráttan í Bandaríkjunum, fylgi flokka hér heima, uppgangur Miðflokksins, ferðaþjónustan, þjóðarhugtakið og gildi Íslendinga, EM og margt annað. Gestir eru Jakob Birgisson grínisti og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins.

Fréttir vikunnar eru í boði Reykjavík Foto, Myntkaup, Þ. Þorgrímsson og Happy Hydrate.

Show more...
1 year ago
1 hour 16 minutes 7 seconds

Snorri Másson ritstjóri
Blaðamennska á breyttum tímum. Fréttir, ritgerðir og málefnalegar persónuárásir.Fréttir vikunnar er vikulegur hlaðvarps- og sjónvarpsþáttur. Fáðu aðgang að greinum alla vikuna og meira efni á www.ritstjori.is.