Ein áhrifamesta og vinsælasta rappsveit verladar, Public Enemy fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður rifjuð upp saga sveitarinnar og áhrif hennar.
Puplic Enemy hafa alla tíð verið rammpólitískir aktívistar og fjallað um kynþáttamisrétti, óréttlæti, lögregluofbeldi, ofsóknir og fleira í textum sínum. Því er gagnlegt að rýna í ástand og þróun mála í Bandaríkjunum með því að skoða sögu Public Enemy. Kjaftfor andspyrnuhreyfing sem þorir að segja sannleikann. Rætt verður við fólk sem tengist sveitinni og spilað viðtal sem Erpur tók við forsprakka sveitarinnar, Chuck D.
Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Public Enemy er bylting í tónlistarsögunni. Breyttu öllu í hipp hopp heiminum. Rappið varð hættulegt, gagnrýnið, pólitískt. En hver er arfleið Public Enemy? Hvernig tengist þessi tónlist ástandinu í Bandaríkjunum?
Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Hverjir eru þessir menn? Chuck D, Flavor Falv og aðrir meðlimir Public Enemy. Hver er tenging þeirra við Ísland?
Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Saga Public Enemy hófst með látum. Fyrsta platan Yo! Bum Rush the Snow kom út 1987 og kjölfarið kom út meistarastykkið It takes a Nation of Million to Hold Us Back. Hornsteinar í hipp hopp sögunni. Síðan fylgdi hvert meistarverkið í kjölfarið. Fimm neglur í röð sem gerðu Public Enemy að einni mikilævægustu og stærstu hipp hopp sveit sögunnar. En Public Enemy gerði annað og meira. Public Enemy var rödd. Mikilvæg rödd svartra, fátækra. Eitt risastórt andóf. Aggressív, hávær og sprúðlandi andstaða gegn kúgun og óréttæti.
Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Public Enemy er 40 ára. Hún var stofnuð árið 1985 af þeim Charlton Ridenhour, betur þekktur sem Chuck D og William Drayton, betur þekktur sem Flavor Flav. Þeir voru báðir nemar í Adelphi háskólanum á Long Island. Hipp hoppið varð til Bronx hverfinu í byrjun áttunnar, í einu harðasta gettói New York. Þar byrjuðu plötusnúðar að leika sér að því að blanda saman töktum og bútum, leika sér með tvö plötuspilara og hljóðblandara, trommuheila og fóru að framkalla nýja tónlist úr gamalli. Fljótlega fór fólk að rappa yfir þessa taktöstu tónlist. Chuck D og Flav voru snemma komnir á bragðið og stofnuðu hljómsveitina Spectrum City - sem síðan varð Public Enemy.