Gestur okkar að þessu sinni er Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns. Oktavía er frumkvöðull, framkvæmdastjóri og reyndur ráðgjafi á sviði heildræns nets- og upplýsingaöryggis. Hán hefur þróað og skapað verkefni og fyrirtæki sem tengjast öryggi, menningu og tækni um allan heim.
Oktavía var meðstofnandi þankatanksins future404 ehf. og situr í ráðgjafahóp Sameinuðu þjóðanna um alþjóðlega stjórnsýslu internetsins.
Í þættinum ræða Hildur og Oktavía meðal annars:
- Uppvaxtarárin í Danmörku
- Menntaskólaárið í Bandaríkjunum þar sem hán kynntist tölvum og möguleikum tækninnar
- Mikilvægi þess að vinna með höndunum og skapa til jafnvægis við nám sem leiddi hán að vinna hjá bifreiðaverkstæði með menntaskóla
- Árin í CBS í Kaupmannahöfn og starfið hjá Telia í Danmörku og lærdóminn sem fylgdi verkefnunum þar
- Meistaranámið sem endaði með tvöfaldri meistaragráðu frá háskólanum í Hróarskeldu
- Starfið fyrir International Media Support sem leiddi hán um allan heim og oft í hættulegar aðstæður
- Frumkvöðlaverkefni fjármagnað af utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna um heildrænt net- og upplýsingaöryggi
- Pólitíkina og setu á Alþingi Íslendinga eftir 30 ára búsetu erlendis
- Hlutverk háns í ráðgjafahópi Sameinuðu þjóðanna um málefni internetsins og undirbúning stórrar ráðstefnu um málefnið sem fer fram í Sádi-Arabíu
- Bíladelluna og hvað það er ekkert betra en að fara í sund og hvað það er líka gott að gera bara alls ekki neitt
----------------------------------------------------------------
Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira?
Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum:
LinkedIn
Facebook
Instagram
----------------------------------------------------------------
Um hlaðvarpið
Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir
Styrktaraðilar eru Sýn, Advania og Geko