Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
Sports
Health & Fitness
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/a9/29/77/a9297714-8253-b0b9-1726-b31df94f0e4c/mza_11123651263318571911.jpg/600x600bb.jpg
Heimili og skóli
Heimili og skóli
26 episodes
2 days ago
Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.
Show more...
Parenting
Kids & Family
RSS
All content for Heimili og skóli is the property of Heimili og skóli and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.
Show more...
Parenting
Kids & Family
Episodes (20/26)
Heimili og skóli
Það þarf þorp - Samfélagsleg viðmið um snjalltækjanotkun

Kristín Ólöf Grétarsdóttir og Anna Laufey Stefánsdóttir mættu til okkar og tóku spjall um símafrí í skólum, tölvuleiki og viðmið og gildi sem við sem samfélag þurfum að koma okkur saman um þegar kemur að bæði börnum og okkur sjálfum.

Show more...
1 month ago
47 minutes 54 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp - Kjarabarátta kennara

Magnús Þór formaður Kennarasambands Íslands mætti í spjall og fór yfir stöðuna í kjarabaráttu kennara.

Show more...
9 months ago
1 hour 7 minutes 40 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp - Okkar heimur

Í þessum þætti er rætt við Sigríði Gísladóttur og Þórunni Eddu Sigurjónsdóttur um Okkar heim.

Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda. Úrræðið var sett á laggirnar vegna skorts á stuðning og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu á Íslandi.  
Sigríður og Þórunn Edda ræða um starfsemina, stöðuna á Íslandi í málaflokknum og ýmislegt fleira.  

Show more...
1 year ago
39 minutes 42 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp - Forvarnir og áhættuhegðun

Spjall við Kára Sigurðsson, verkefnastjóra forvarna hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur.

Við spjöllum um áhættuhegðun barna og unglinga. Einnig ræðum við um forvarnir og gefum foreldrum og forsjáraðilum verkfæri til nýta með sínum börnum.

Show more...
1 year ago
46 minutes 9 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp - Skóli í skýjunum

Spjall við Esther Ösp Valdimarsdóttir skólastjóra og tengilið farsældar í Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum.


Ásgarðsskóli er ekki hefðbundinn skóli en aðsóknin er mikil. Skólinn er búinn að stækka hratt á þeim þremur árum sem hann hefur starfað og er að stimpla sig inn sem frábær viðbót við skólakerfið okkar.

Show more...
1 year ago
54 minutes 49 seconds

Heimili og skóli
Einhverfa og áskoranir

Hvaða áskoranir þurfa einhverf börn að kljást við í skólanum? Hvað er að vera skynseginn? Hvað er skynvænn skóli? Er foreldrakulnun algeng? Er skóli án aðgreiningar að virka? Hvert er markmið menntunar?

Þær Sara Rós Kristinsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir settust niður með okkur og ræddu þær áskoranir sem einhverf börn kljást við í skólakerfinu. Þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!

Show more...
1 year ago
47 minutes 43 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp: Börnin eru besti mælikvarðinn

Þorvar Hafsteinsson, formaður Heimilis og skóla, ræðir um mikilvægi foreldrastarfs. 

Show more...
2 years ago
34 minutes 36 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp: Helga Margrét Guðmundsdóttir

Í tilefni 30 ára afmælis Heimilis og skóla fengum við Helgu Margréti Guðmundsdóttur, fyrrverandi formann Heimilis og skóla, til að segja okkur frá ferlinum í foreldrastarfi. 

Show more...
2 years ago
1 hour 3 minutes 10 seconds

Heimili og skóli
Aðeins um: BeReal

Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn BeReal. Hvers konar miðill er BeReal? Afhverju er hann svona vinsæll hjá ungu fólki? Hvað er jákvætt við hann og hvað ber að varast? Í þættinum er einnig rætt um hvað sé gott að ræða við börn og ungmenni þegar kemur að því að vera á BeReal.

Show more...
2 years ago
19 minutes 5 seconds

Heimili og skóli
Aðeins um: Misskilning á netinu

Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um misskilning á netinu. Hvers vegna á misskilningur á netinu sér stað? Hvernig birtist hann? Hvað er hægt að gera til að koma í veg fyrir misskilning í stafrænum samskiptum? Í þættinum er einnig rætt um lyndistákn og þá misjöfnu merkingu sem fólk leggur í þau.

Show more...
3 years ago
19 minutes 13 seconds

Heimili og skóli
Aðeins um: Tiktok

Í þessum þætti af Aðeins um: ræða Eyrún Eva Haraldsdóttir og Sigurður Sigurðsson, sérfræðingar hjá SAFT, um samfélagsmiðilinn Tiktok, hvernig hann virkar, hvað ber að varast, hvað er jákvætt við miðilinn og hvernig foreldrar geta hjálpað börnum sínum að nota TikTok á öruggan hátt. 

Show more...
3 years ago
21 minutes 34 seconds

Heimili og skóli
Netöryggi á nýjum tímum 5: Réttindi barna og netið

Eyrún Eva Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá SAFT, ræðir við Pétur Hjörvar Þorkelsson, sérfræðing í innleiðingu Barnasáttmálans hjá UNICEF, um réttindi barna og síbreytilegan stafrænan heim.

Show more...
3 years ago
40 minutes 30 seconds

Heimili og skóli
Það þarf þorp 3: Hinsegin börn og ungmenni

Bryndís Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Heimili og skóla, ræðir við Tótlu I. Sæmundsdóttur, fræðslustýru hjá Samtökunum 78, um starfsemi samtakanna og málefni hinsegin barna.

Show more...
3 years ago
37 minutes 54 seconds

Heimili og skóli
Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 5: Sexting, myndbirtingar og mörk

Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um Sexting, myndir, pressuna að taka þátt og mörk.


Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Show more...
3 years ago
26 minutes 29 seconds

Heimili og skóli
Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 4: Fjölskyldureglur og fullorðnir sem fyrirmynd

Í þessum þætti ræða Siggi og Sigga Dögg um mikilvægi fjölskyldureglna og hvernig við sem fullorðið fólk þurfum að huga að okkur sjálfum sem fyrirmynd barna okkur þegar kemur að netnotkun.

 
Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Show more...
3 years ago
23 minutes 5 seconds

Heimili og skóli
Netöryggi á nýjum tímum 4: Viðtal við Þórdísi Elvu. (Íslenska)

Við tókum viðtal við Þórdísi Elvu, stjórnarformann NORDREF, en samtökin héldu málþing um kynferðislega friðhelgi á stafrænum tímum. Í Í samtalinu ræðum við um málþingið og hvernig þessi málaflokkur hefur þróast á undanförnum árum.


#sid2022 #saferinternetday

Show more...
3 years ago
9 minutes 58 seconds

Heimili og skóli
Netöryggi á nýjum tímum 4: Interview with Thordis Elva (English)

An interview with Thordis Elva, chairperson of NORDREF. They resently held a seminar called "When Sexual Privacy Meets Gender-Equality in a Digital World". Thordis Elva tells us all about the seminar and what NORDREF is doing to combat online abuse in this episode of the SAFT podcast.

#Saferinternetday #SID2022

Show more...
3 years ago
11 minutes 36 seconds

Heimili og skóli
Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 3: Hvernig ræðum við um netið sem fjölskylda

Umræðuefni vikunar er að þessu sinni hvernig við ræðum um netið sem fjölskylda.

Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Show more...
3 years ago
18 minutes 25 seconds

Heimili og skóli
Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 2: Myndbirtingar

Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Umræðuefnið þessa vikuna eru myndbirtingar og þá pressu sem við finnum fyrir að birta myndir á samfélagsmiðlum. 

Show more...
3 years ago
16 minutes 51 seconds

Heimili og skóli
Nöldrað um netið með Sigga og Siggu Dögg 1: Samskipti á netinu.

Í þessari hlaðvarpsseríu fara Sigurður Sigurðsson sérfræðingur í miðlanotkun barna og ungmenna og Sigga Dögg kynfræðingur yfir helstu umræðuefni sem brenna á foreldrum varðandi netnotkun barna sinna. Markmiðið með hlaðvörpunum er að þau verði upphafið að jákvæðri umræðu milli foreldra og barna um málefni netsins. Því getur verið sniðugt að hlusta á þættina með börnunum og halda svo umræðunni áfram. Hver þáttur endar með spurningum sem foreldrar og börn geta rætt um sín á milli eftir hlustun.

Í þessum fyrsta þætti er umræðuefnið samskipti á netinu. Meðal annars neikvæð samskipti og þá pressu sem við setjum á hvort annað að svara netskilaboðum samstundis

Show more...
3 years ago
15 minutes 44 seconds

Heimili og skóli
Á þessari rás eru hlaðvarpsþættir Heimilis og skóla. Meðal þátta er Það þarf þorp, Netöryggi á nýjum tímum og Siggi og Sigga Dögg nöldra um netið.