Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
History
Sports
Health & Fitness
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/8e/10/c9/8e10c9c1-352d-c660-4a3a-84b64f9068d4/mza_3515562221837693624.jpg/600x600bb.jpg
Grænvarpið
Landsvirkjun
38 episodes
1 week ago
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið. Þátturinn á YouTube.
Show more...
Technology
RSS
All content for Grænvarpið is the property of Landsvirkjun and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið. Þátturinn á YouTube.
Show more...
Technology
Episodes (20/38)
Grænvarpið
Vatnsbúskapurinn skiptir sköpum
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið. Þátturinn á YouTube.
Show more...
1 week ago
21 minutes

Grænvarpið
Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismál
Hvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál. Þátturinn á YouTube
Show more...
1 month ago
12 minutes

Grænvarpið
Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun?
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr verkfræði og komin á bólakaf í verkefnastjórnun fyrir Vaðölduver.
Show more...
2 months ago
18 minutes

Grænvarpið
Orkan í Ástralíu - Einar Erlingsson
Einar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum.
Show more...
4 months ago
39 minutes

Grænvarpið
Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson
Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.
Show more...
5 months ago
24 minutes

Grænvarpið
Jöklarnir og orkan - Magnús Tumi Guðmundsson
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði og formaður Jöklarannsóknafélags Íslands til 24 ára, ræðir við Ívar Pál um íslenskar jöklarannsóknir og gæfuríkt samstarf við Landsvirkjun.
Show more...
6 months ago
24 minutes

Grænvarpið
Samkjaftað um Samorku - Finnur Beck
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, segir okkur frá því helsta sem er að gerast hjá þessum þrítugu samtökum orku- og veitufyrirtækja á Íslandi – og það er ekki lítið. Fram undan eru framkvæmdir fyrir hundruð milljarða króna til að viðhalda þessum grundvallarkerfum sem enginn vill vera án en fæstir vilja þurfa að hugsa um.
Show more...
7 months ago
23 minutes

Grænvarpið
Farið yfir fjármálin - Rafnar Lárusson
Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni, fór yfir fjármál Landsvirkjunar í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins. Þátturinn á YouTube
Show more...
8 months ago
27 minutes

Grænvarpið
Rabbað um rafmagnsreikninginn - Tinna Traustadóttir
Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, skýrir fyrir okkur þetta flókna skjal sem við fáum í hverjum mánuði: rafmagnsreikninginn. Hún fer líka yfir stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði og ýmislegt fleira.Þátturinn á YouTube
Show more...
9 months ago
20 minutes

Grænvarpið
Jarðvarmi frá A-Ö - Bjarni Pálsson
Bjarni Pálsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma. Í þessum þætti segir hann okkur frá ýmsum spennandi verkefnum sem framundan eru.Þátturinn á YouTube
Show more...
10 months ago
35 minutes

Grænvarpið
Með doktorspróf í laxi – Sigurður Guðjónsson
Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur, segir okkur hvernig seiðafleyta virkar, hver áhrif virkjaðra vatnsfalla á fiskistofna og veiði eru ásamt ýmsu fleiru.Þátturinn á YouTube
Show more...
11 months ago
22 minutes

Grænvarpið
Hringrásarhagkerfið - Ívar Kristinn Jasonarson
Ívar Kristinn Jasonarson, sérfræðingur hjá Loftslagi og grænum lausnum, segir okkur frá hringrásarhagkerfinu. Hvernig fellur starfsemi Landsvirkjunar að því?Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
17 minutes

Grænvarpið
Viljum vera góðir grannar - Guðmundur Finnbogason
Guðmundur Finnbogason, verkefnisstjóri Nærsamfélags og náttúru er fyrrum heimilisfræðikennari og skáti. Sú reynsla hefur nýst honum vel í vinnu með nærsamfélagi aflstöðva Landsvirkjunar. Guðmundur ræðir einmitt mikilvægi þess að vera góður granni, segir frá hundraðasta frisbígolfvelli landsins við Ljósafossstöð, Orkuslóðinni sem er að verða til á Þjórsársvæði - og hvernig sé best að elda nýveiddan silung undir berum himni.Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
30 minutes

Grænvarpið
Þróun raforkumarkaða - Úlfar Linnet
Úlfar Linnet, forstöðumaður Viðskiptaþjónustu ræðir við Þóru Arnórsdóttur um raforkumarkaðinn og þær breytingar sem eru að verða á honum með innkomu skipulegra raforkumarkaða. Hvernig virka þeir? Hvaða áhrif hafa þeir á verð til neytenda og raforkuöryggi? Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
18 minutes

Grænvarpið
Konur í orkumálum - Hildur Harðardóttir og Selma Svavarsdóttir
Selma Svavarsdóttir, nýkjörinn formaður Kvenna í orkumálum, og Hildur Harðardóttir, fráfarandi formaður, segja okkur frá starfi félagsins og mikilvægi kvenna í orkugeiranum.Þátturinn á Youtube
Show more...
1 year ago
26 minutes

Grænvarpið
Annasamt starf stöðvarstjóra - Georg Þór Pálsson
Georg Þór Pálsson, stöðvarstjóri Þjórsársvæðis, segir okkur frá starfi sínu þar sem engir tveir dagar eru eins. Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
33 minutes

Grænvarpið
Orkunýtni og orkuþörf - Jóna Bjarnadóttir
Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis, fer yfir þá möguleika sem felast í bættri orkunýtni í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins.Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
30 minutes

Grænvarpið
Vindorka - Unnur María Þorvaldsdóttir
Unnur María Þorvaldsdóttir, forstöðumaður þróunar vindorku, segir okkur frá áformum Landsvirkjunar um að reisa vindorkuver og öllu sem því fylgir.Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
27 minutes

Grænvarpið
Hvammsvirkjun - Ólöf Rós Káradóttir
Ólöf Rós Káradóttir er verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar, þess virkjunarkostar Landsvirkjunar sem er einna lengst kominn í undirbúningi. Hún segir okkur frá verkefninu í nýjasta þætti Grænvarpsins.Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
22 minutes

Grænvarpið
Nýsköpun - Dóra Björk Þrándardóttir
Dóra Björk Þrándardóttir, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun segir okkur frá samstarfsverkefnum Landsvirkjunar á sviði nýsköpunar.Þátturinn á YouTube
Show more...
1 year ago
15 minutes

Grænvarpið
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið. Þátturinn á YouTube.