Home
Categories
EXPLORE
Society & Culture
Comedy
Business
Leisure
True Crime
Technology
Education
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
HK
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts221/v4/6b/9b/ce/6b9bce19-aa47-c3e0-b443-2dfcaf3b11a1/mza_780996164087562879.jpg/600x600bb.jpg
Eftirmál
Tal
23 episodes
6 months ago
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
Show more...
Arts
RSS
All content for Eftirmál is the property of Tal and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
Show more...
Arts
Episodes (20/23)
Eftirmál
Braggamálið
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
Show more...
1 month ago
45 minutes

Eftirmál
Gýgjarhólsmálið
Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
Show more...
2 months ago
53 minutes

Eftirmál
Flugslysið í Skerjafirði
Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem lést í slysinu, fer yfir málið og lygileg eftirmál þess í þæt...
Show more...
2 months ago
48 minutes

Eftirmál
Öskjuhlíðarmálið
Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en hann hafði sjálfur tekið þátt í leitinni að Einari. Systkini Einars segja okkur frá þessari lífsr...
Show more...
3 months ago
42 minutes

Eftirmál
Jón stóri
Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu hans. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afslá...
Show more...
3 months ago
44 minutes

Eftirmál
Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar
Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum.
Show more...
7 months ago
33 minutes

Eftirmál
Búsáhaldabyltingin
Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins á þessum tíma, rifjar í Eftirmálum upp hvernig var að vera sta...
Show more...
1 year ago
1 hour 19 minutes

Eftirmál
Rauðagerðismálið
Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfangsmikla morðmáli með Birgi Olgeirssyni, fyrrum fréttamanni, sem rannsakaði málið og sat réttarhö...
Show more...
1 year ago
1 hour 21 minutes

Eftirmál
Mál Róberts Downey og uppreist æra
Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Andersen, sem þá var dómsmálaráðherra, ræðir sína hlið af þessum atburðum í Eftirmálum. Þátturinn er í...
Show more...
1 year ago
1 hour 19 minutes

Eftirmál
Bitcoin-málið
Innbrot í gagnaver í Reykjanesbæ í lok árs 2017 markaði upphaf Bitcoin-málsins svokallaða, sem oft er talað um sem stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Málið tók nýja og ævintýralega stefnu þegar Sindri Þór Stefánsson, einn þeirra sem tók þátt í innbrotinu, trauk úr fangelsinu að Sogni og flaug til útlanda í sömu flugvél og forsætisráðherra. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, sem rannsakaði málið, ræðir þessa farsakenndu atburðarás í Eftirmálum. Málið er enn óupplýst að hluta en Bitcoin-tölvurnar fundust ...
Show more...
1 year ago
1 hour 5 minutes

Eftirmál
Hvarf Valgeirs Víðissonar
Í sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi. Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust fjöldi ábendinga og samsæriskenninga í gegnum árin en allt kom fyrir ekki, hvarf Valgeirs er enn óupplýst. Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður rifjar upp rannsóknina í Eftirmálum og fer yfir hvað verður um mál sem lögreglu tekst ekki að upplýsa...
Show more...
1 year ago
50 minutes

Eftirmál
Lekamálið
Hanna Birna Kristjánsdóttir sætti líflátshótunum og þurfti lögregluvernd þegar hún var innanríkisráðherra fyrir áratug. Ástæðan er Lekamálið svokallaða, þegar minnisblaði með persónuupplýsingum um hælisleitendur var lekið úr ráðuneyti hennar til fjölmiðla. Í framhaldinu fór af stað fordæmalaus atburðarás og úr varð eitt stærsta fréttamál áratugarins. Lekamálið varð til þess að Hanna Birna hætti alfarið í pólitík en í Eftirmálum gerir hún atburðarásina upp í fyrsta sinn. Þátturinn er í boði: ...
Show more...
1 year ago
1 hour 32 minutes

Eftirmál
Catalinumálið
Catalina Ncogo var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi. Saga Catalinu er lyginni líkust en hún fór frá því að vera húsmóðir í Vestmannaeyjum í að vefja karlmönnum um fingur sér og halda úti umfangsmestu vændisstarfsemi Íslandssögunnar í næsta húsi við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Fallið var hátt þegar hún hlaut þungan fangelsisdóm fyrir milligöngu um vændi. Catalina fer yfir atburðarásina og sína hlið málsins í Eftirmálum auk þess að segja frá líf...
Show more...
1 year ago
49 minutes

Eftirmál
Dularfullt andlát á Litla–Hrauni
Þegar fangi lést með dularfullum hætti og án sýnilegra áverka á Litla-Hrauni árið 2012 fór af stað löng og afdrífarík atburðarás. Tveir alræmdustu handrukkarar landsins voru ákærðir í málinu, en ekki er allt sem sýnist. Annar þeirra, Annþór Karlson, fer yfir þetta óvenjuega mál í þættinum en rannsóknin er ein sú ítarlegasta sem lögregla hefur ráðist í á síðari árum og tók fimm ár fyrir dómstólum. Annþór, sem segist nú hafa snúið blaðinu við, fer einnig yfir uppvöxtinn, undirheimana og margt f...
Show more...
1 year ago
1 hour 10 minutes

Eftirmál
Lúkasarmálið
Umtalaðasti hundur Íslandssögunnar er án efa kínverski smáhundurinn Lúkas sem hvarf á Akureyri sumarið 2007. Út breiddist sú lygasaga að hópur drengja hefði leikið sér að því að drepa varnarlausan hundinn með hrottafengnum hætti. Þjóðin sameinaðist í sorg, haldnar voru minningarathafnir og kommentakerfi netheima loguðu. Þegar Lúkas fannst á lífi nokkrum vikum síðar tók málið aðra stefnu og varð kennslustund í hvernig á ekki að haga sér á internetinu.
Show more...
2 years ago
48 minutes

Eftirmál
Flugslys við Þingvallavatn
Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni. Í Eftirmálum lýsir Jón Ragnar frá fyrstu hendi þeirri óhugnanlegu atburðarás sem fór af stað eftir að hann gerði yfirvöldum viðvart um að vélin hefði ekki s...
Show more...
2 years ago
1 hour 15 minutes

Eftirmál
Ísafjarðarmálið
Eitt umtalaðasta fréttamál síðari tíma er Ísafjarðarmálið svokallaða sem setti íslenskt samfélag á hliðina í tvígang. Málið kom upp árið 2006 þegar DV birti forsíðu með fyrirsögn um einhentan kennara sem olli gríðarlegu fjaðrafoki. Málið skaut svo aftur upp kollinum sjö árum síðar en þá komu í ljós aðrar hliðar á því. Andri Ólafsson, blaðamaðurinn sem skrifaði upphaflega um málið, fer yfir atburðarásina í Eftirmálum. Samsetning: Arnar Jónmundsson
Show more...
2 years ago
51 minutes

Eftirmál
37 ára fangelsisdómur Söndru Sigrúnar
Sandra Sigrún Fenton var árið 2013 dæmd í 37 ára fangelsi fyrir tvö vopnuð rán í Bandaríkjunum. Þetta er þyngsti fangelsisdómur sem Íslendingur hefur hlotið fyrr og síðar. Margrét Fenton, móðir Söndru, segir sögu dóttur sinnar í þættinum og lýsir aðstæðum og atburðarás sem er lyginni líkust en Sandra hefur nú afplánað níu ár af dómnum í illræmdu öryggisfangelsi í Virginíu. Samsetning: Arnar Jónmundsson
Show more...
2 years ago
59 minutes

Eftirmál
Flugslys við Múlakot
Ida Björg Wessman flugmaður missti foreldra sína og yngri bróður í hræðilegu flugslysi við Múlakot í júní 2019. Slysið vakti mikinn óhug, ekki síst í flugsamfélaginu, þar sem faðir Idu var reyndur flugstjóri og bróðir hennar nýútskrifaður flugmaður. Ida hefur ekki tjáð sig um þessa atburði hingað til en segir sögu sína í Eftirmálum. Samsetning: Adelina Antal
Show more...
2 years ago
1 hour 13 minutes

Eftirmál
Flótti Matthíasar Mána
Einn best skipulagði flótti úr fangelsi hér á landi var þegar Matthíasi Mána Erlingssyni tókst að flýja úr fangelsinu á Litla-Hrauni í desember 2012. Hann var á flótta í tæpa viku og á þeim tíma hafðist hann við í sumarbústöðum í uppsveitum Árnessýslu útbúin eins og Rambó, stal fjórhjóli sem hann ferðaðist á um að næturlagi, nýtti tunglsljós til að sjá í myrkri og hugðist veiða sér til matar með haglabyssu. Margrét Frímannsdóttir, fyrrum forstöðumaður á Litla-Hrauni, fer yfir málið í þættinum...
Show more...
2 years ago
42 minutes

Eftirmál
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. Þátturinn er í boði: Nettó Duck & Rose Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL