Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
History
Sports
Health & Fitness
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts211/v4/de/0e/b5/de0eb573-cb62-cf2e-f756-725d329cb0db/mza_14753402655284348129.jpg/600x600bb.jpg
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Sverrir Geirdal
31 episodes
3 weeks ago
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina. Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn lan...
Show more...
Entrepreneurship
Business
RSS
All content for Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við is the property of Sverrir Geirdal and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina. Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn lan...
Show more...
Entrepreneurship
Business
Episodes (20/31)
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina. Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn lan...
Show more...
3 weeks ago
1 hour 10 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Eyvör: Viltu styrk til að bæta netöryggi?
Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum! Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024. Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin. Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyrði og áherslur sem þar liggja að baki. Kynnumst Eyvöru sem er NCC (National cooperation Cent...
Show more...
1 year ago
27 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Er tífalldur hraði lykilatriði í nýtingu gervigreindar? Ólafur Magnússon @Nova ræðir málin
Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova sest með okkur og ræðir stöðuna á fjarskiptamarkaði með tilliti til þráðlausra tenginga. Hvað er 5,5G og af hverju eru ekki fundin betri nöfn á þráðlausum stöðlum og hvað eigum við að gera með tífalldan hraða? Verður sett þjónustustig á netið? Munum við þurfa að borga meira fyrir meiri hraða og minna fyrir lakari gæði? Þurfum við ljósleiðara? Þróunin er að opna á ýmis nýsköpunartækifæri til dæmis þráðlausar beinar útsendingar af viðburðum. S...
Show more...
1 year ago
34 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Ketilsson @Heilsutækniklasinn
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun. Það er eina leiðin framávið. Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur. Hvernig kerfið þarf á hjálp að halda til að kynna og innleiða breytingar. Svo förum við að sjálfsögðu yfir H...
Show more...
1 year ago
51 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Verður Gervigreindin bönnuð? Nýtt regluverk á leiðinni!
Gervigreindin á hug okkar allann. Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið! Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina? Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru. Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja, eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin sem mynda sambandið.. Fyrir hverja er regluverkið? Hvað er verið ...
Show more...
1 year ago
1 hour 3 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Gervigreind og siðfræði - Páll Rafnar Þorsteinsson
Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind, stafræna nýsköpun undir hatti EDIH. Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði. Er gervigreind mannleg greind? Ef ekki er henni þá treystandi, út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind? Er gervigreind annarskonar greind, sem hefur kosti umfram mannlega grei...
Show more...
2 years ago
55 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Róbert Bjarnason, EDIH og gervigreindin
Róbert Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúar.ses fræðir okkur um gervigreind. Umfjöllun þessa þáttar er í anda EDIH, eða Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar - Hvað er gervigreind? Forrit með töfradufti? Hvaðan koma töfrarnir? En gögnin eru þau góð og hver ákveður og stjórnar? Mættum með 5 verkefni daglegs lífs sem við sjáum fyrir okkur að gervigreind gæti hjálpað okkur með. Missum okkur svo í restina yfir fréttum vikunnar um að Íslenska verði annað tungumál ChatGP...
Show more...
2 years ago
1 hour 13 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Þórhallur Magnússon
Framtíðin mætti í settið til að ræða tónlistarsköpun með gervigreind. Þórhallur Magnússon prófessor í framtíðartónlist við tónlistadeild Sussex háskólans og rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mætir og ræðir um gervigreind, sköpun og tónlist. 24. þáttur Auðvarpsins fjallar um mál málanna í dag. Hvað er gervigreind? Hvað er tónlist? Hvernig lýtur næsta hljóðfæri út? Hvernig nýtist gervigreindin í tónlistarsköpun? Þórhallur er hafsjór fróðleiks um gervigreind, hljóðfæ...
Show more...
2 years ago
1 hour 3 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Ragnhildur Helgadóttir
Háskólinn í Reykjavík og nýsköpunin á afmælisdegi Auðnu! Í 23. þætti Auðvarpsins hittum við fyrir rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnhildi Helgadóttur. Við ræðum Nýsköpun í háskólastarfi, erindi háskólanna í síbreytilegu samfélagi nútímans. Hvernig við ýtum undir meiri og skarpari nýsköpun innan úr vísindastarfinu. Hvernig standa háskólarnir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og hvernig kennum við fólkinu okkar að það sé þroskandi að hnjóta, af því lærum við mest! En við byrjum að sjálfs...
Show more...
2 years ago
51 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Hrönn Greipsdóttir - Nýsköpunarsjóður
Nýsköpunarsjóður er brúin yfir og vinin í dauðadalnum! Í 22. þætti Auðvarpsins förum við yfir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi, séð frá sjónarhóli Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári! Framkvæmdastjóri sjóðsins, Hrönn Greipsdóttir er gestur þáttarins. Við byrjum samt á allt öðru, við byrjum á hótel Sögu sem við söknum, um leið og við fögnum nýju hlutverki hússins sem hluti af háskólasamfélaginu í Vatnsmýrinni. Hlutverk sjóðsins í umhverfinu er að ...
Show more...
3 years ago
1 hour 3 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Jón Atli Benediktsson
Vorum á jaðrinum en erum núna í miðju hringiðunnar! Jón Atli Benediktsson Vísindamaður, Professor og Rektor Háskóla Íslands er gestur 21. þáttar Auðvarpsins. Við förum yfir ferilinn, upphafið og ástríðuna sem fylgir því að vinna að skemmtilegum verkefnum með skemmtilegu fólki, bæði innanlands og utan. Jón Atli fer yfir alþjóðlegt samstarf sem HÍ er aðili að og leiðtogahlutverk okkar litla Háskóla. Mikil tækifæri eru fólgin í frekara samstarfi háskóla á Íslandi, þar sem verke...
Show more...
3 years ago
1 hour 12 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Miðstöð snjallvæðingar
Miðstöð snjallvæðingar stofnuð á Íslandi með 300 milljón kr. framlagi frá EU 20. þáttur Auðvarpsins fjallar um Miðstöð snjallvæðingar. Til að ræða Miðstöðina, þýðingu hennar og hlutverk koma Theodór Gíslason Tæknistjóri og einn stofnenda Syndis og Helga Waage Tæknistjóri og einn stofnenda Mobilitus í þáttinn. Við förum um víðan völl í umræðum um gervigreind, öryggismál, þýðingu Íslenskunnar fyrir snjallvæðinguna, menntun á mjög breiðum grunni, gagnatengingar og a...
Show more...
3 years ago
1 hour 4 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Er tölvustríð þegar hafið á milli Rússa og heimsins? - Theodór Gíslason & Tölvuöryggi
Nú eru það stóru málin, tekið upp á sjötta degi innrásar Rússa inn í Úkraínu sem hittir á sjálfan Sprengidaginn. 19. þáttur Auðvarpsins er helgaður tölvuöryggismálum. Í þáttinn kemur einn helsti öryggissérfræðingur landsins, sem vill sjálfur kalla sig atvinnuhakkara; Theodór Gíslason Tæknistjóra og einn stofnenda Syndis. Við kynnumst Theodor aðeins og fræðumst um ástæður þess að hann varð og er hakkari. Þar hjálpaði alvarlegt slys við Hagaskólann árið 1994, þar sem hann len...
Show more...
3 years ago
1 hour 3 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar
Fersk úr atkvæðagreiðslu, þar sem stofnun nýs nýsköpunarráðuneytis; Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var samþykkt, kemur ráðherrann til okkar í Auðvarpið og ræðir sína sýn á málaflokkinn. Í 18 og jafnframt fyrsta þátt endurreisnarársins 2022 kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar til okkar í Auðvarpið og fræðir okkur um hvernig pólitísk nýsköpun fer fram. Hvernig hún vill spila sóknarleik við nýsköpun samfélagsins. Að ráðuneytið eigi að...
Show more...
3 years ago
37 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Hafsteinn Einarsson - Ai og listin
Táknmynd 17. Þáttar er búin til af gervigreind. Þar sem Dr. Hafsteinn viðmælandi þáttarins stjórnar ferðinni og er þá listamaðurinn, eða hvað? (sjá nánar neðst í textanum) 17. og jafnframt síðasti þáttur ársins 2021 er helgaður gervigreind og listinni. Við ræðum tengingu gervigreindar, vitvéla, ofurtölva og listaverka! Við komumst að því hvort hægt er að búa til listaverk með hjálp tölva með aðferðum gervigreindarinnar. Dr. Hafsteinn Einarsson kemur til okkar og fer yf...
Show more...
3 years ago
54 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Friðrik Jónsson formaður BHM
16. þáttur er helgaður, já þið giskuðu rétt, hann er helgaður hugverkarétti. Í þessum þætti leggjum við áherslu á fólkið, á launþega og spjöllum um samfélag framtíðarinnar sem gæti verið samfélag hugverksins. Formaður BHM Friðrik Jónsson og formaður Samtaka Iðnaðarins Árni Sigurjónsson skrifuðu saman grein um hugverkaiðnaðinn. Þar sáu þeir tveir herramenn marga snerti fleti á milli launþega og atvinnurekenda er varðar uppbyggingu og hönnun á samfélagi byggt á hugverkum. Fri...
Show more...
3 years ago
50 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Hugverkaréttur með Sigríði Mogensen og Jóni Gunnarssyni
15. þáttur er helgaður hugverkarétti, hvernig sá réttur er lykillinn að samkeppnisforskoti og almennt betra lífi hér á landi. Bæði fyrir fyrirtækin og fólkið okkar. Hugverkastofa stendur fyrir mjög svo áhugaverðri afmælisráðstefnu þann 4. Nóvember 2021, þar sem haldið verður upp á 30 ára afmæli stofunnar með því að ræða hugverkarétt í tengslum við sjálfbærni – aldeilis þarft og áhugavert efni, sem við förum aðeins inná í þættinum. Við fáum Sigríði Mogensen sviðss...
Show more...
4 years ago
33 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Gervigreind, Dr. Kristinn R. Þórisson
Í þessum 14. þætti Auðvarpsins ræðum um mjög áhugavert og heitt mál í samtímanum; Gervigreind og vitvélar. Hvað er Gervigreind? Hvernig skilgreinum við greind og getur hún yfirleitt verið gervi? Dr. Kristinn R. Þórisson forstöðumaður Vitvélastofnunar Íslands er gestur þáttarins. Dr. Kristinn er margfróður um umræðuefnið og hjálpar okkur að skilja fyrirbærið greind og gervigreind. Hvar eru fræðin stödd? Sömuleiðis ræðum við um áhrifin á samfélagið okkar.&...
Show more...
4 years ago
1 hour 9 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Nýsköpun, vísindin og við - Skordýrafræðingurinn dr. Gia Aradóttir
Í þessu Auðvarpi ræðum við um mál málanna. Hvernig fæðum við heiminn? Hvernig nýtum við vísindin til að efla fæðuöryggi, bæði okkar og alls heimsins. Er erfðafræði svarið? Eru skordýrin svarið? Hvernig nýtum við tímavélar til að flýta þróun plantna þannig að þær þjóni okkur betur, séu “umhverfisvænni“, að þær geti betur varist sjúkdómum og ásókn sníkjudýra. Hver eru tækifærin á Íslandi og hvernig stuðlum við að samtali á milli vísinda, bænda og samfélagsins. Hvernig g...
Show more...
4 years ago
1 hour 1 minute

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
X-Nýsköpun, vísindin og við - Jón Steindór Valdimarsson
X-Nýsköpun Jón Steindór Valdimarsson Jón Steindór Valdimarsson er fulltrúi Viðreisnar í síðasta pólitíska þættinum, allavega í bili. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun, þekkingu, hlutverk ríkisins í stýringum á áherslum í nýsköpun. Jón hefur verið viðloðandi nýsköpunarumhverfið í langan tíma og hefur frá mörgu að segja. Tólfti þáttur Auðvarpsins er jafnframt sjötti og síðasti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum. Í seríunni tökum...
Show more...
4 years ago
41 minutes

Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni sýnir þörfina. Mikilvægt að láta ekki staðar numið og tryggja tilveruréttinn lan...