
Freyja Haraldsdóttir móðir, aktivisti, þroskaþjálfi og Stofnandi Tabú sem er feminísk fötlunarhreyfing sem vinnur að félagslegu réttlæti og gegn margþættri mismunun gagnvart fötluðum konum og kvár.
Mælum með að fylgja Tabú á samfélagsmiðlum.
Freyja kom til okkar og gaf okkur innsýn í sitt líf og sína réttindabaráttu en hún hefur verið ötul í henni og náð árangri. Hún útskýrir ýmis hugtök, segir okkur frá skólamálum fatlaðra, aðgengi í samfélaginu ofl. Við förum líka yfir það hvernig Vaktin á líka við fullorðna fatlaðra og langveika einstaklinga og það er gott að geta talað um málefni fatlaðra og langveikra heilt yfir óháð aldri því sú umræða er mikilvæg ekki bara fyrir þennan hóp heldur samfélagið í heild.
Þetta er viðtal sem allir geta lært mikið af , fengið góða innsýn og aukinn skilning. Það væri ósk okkar að allir myndu hlusta á þáttinn með Freyju því hún er bæði skemmtileg, djúpvitur, málefnaleg og hefur lengi vel unnið að betra samfélagi.
Þessi þáttur er í boði:
-Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna á Íslandi og fjölskyldna þeirra. Hægt er að styrkja Góðvild og með því er verið að styðja við fjöldann allan af verkefnum sem bæta hag langveikra og fatlaðra barna.
godvild.is - Kt. 660117-2020 Reikn. 0301-26-660117
Mobility Aid:
Mobility er með bæði verslun sem er staðsett í Urriðaholtsstræti 24 - og er Opin alla virka daga frá 11:00-16:00og hjálpartækjaleigu sem býður uppá ýmis hjálpartæki til leigu bæði til lengri og skemmri tíma. Lágmarksleiga er yfirleitt 3 dagar.Þau bjóða uppá útkeyrslu á Höfuðborgarsvæðinu á opnunartíma verslunar gegn 5.000kr sendingargjaldi. Einnig er send út á land á kostnað leigutaka. Þau eru með mikið af lausnum í boði, og hægt er að senda þeim fyrirspurn á info@mobility.is eða hringja í síma 578-3600.
Til að skoða úrvalið í verslun kíktu inn á mobility.is
Mobility Ehf og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) hafa gert samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum í ákveðnum flokkum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.
Childs Farm
Childs Farm er margverðlaunuð bresk húð- og hreinlætislína.
Í henni eru nær eingöngu náttúruleg innihaldsefni og kjarnaolíur.
Vörurnar eru einstaklega mildar, ilma vel og henta einstaklega vel viðkvæmri húð.
Smá um sögu Childs Farm:
Í breskri sveit árið 2010 var móðir að nafni Joanna Jensen, hún átti tvær dætur Mimi og Bellu, en þær áttu
í erfiðleikum með viðkvæma húð og exem. Joanna, eins og svo margir foreldrar, var staðráðin í að finna
lausn sem myndi hjálpa þeim að líða vel og vera hamingjusöm í eigin skinni. Þegar Joanna leitaði að
mildum, náttúrulegum og áhrifaríkum húðvörum fyrir stelpurnar sínar uppgötvaði hún gat á markaðnum
fyrir hágæða en samt hagkvæmar vörur sem voru sérstaklega hannaðar fyrir húð barna. Knúin áfram af ást til dætra sinna og samúð með foreldrum sem glíma við svipaðar erfiðleika, hóf Joanna það verkefni að
þróa sínar eigin vörur og að endingu að stofna Childs Farm, vörumerki sem myndi breyta lífi milljóna
barna og fjölskyldna þeirra að eilífu.
Sölustaðir:
Childs Farm fæst í Hagkaup, Krónunni, Fjarðarkaupum og apótekum um land allt. Vöruúrval getur verið
ögn breytilegt eftir verslunum.