Sindri Leví er íslenskur YouTuber sem gerir myndbönd á ensku og nálgast nú 50.000 áskrifendur, endilega kíkið á rásina hans! https://www.youtube.com/@SindriLevi
Nóri er ungur rappari sem hefur gefið út 8 lög og er að droppa nýju lagi sem heitir "Sama stað" Hann talar líka um í viðtalinu að hann er að vinna í plötu sem gæti komið á næstunni.
Fengum meistarann Ingathe69 til okkar smá spjall. Hann sagði okkur hvernig hann byrjaði á tiktok og hvað planið hans er í framtíðinni
Takk fyrir að hlusta
Væb bræðurnir mættir aftur til okkar að tala um söngvakeppnina og lagið þeira RÓA
BIA tekur þátt í Söngvakeppninni með lagið Norðurljós. Hér er gott spjall við hana um lífið og sönginn. Þáttastjórnendur: Óli Þorbjörn Guðbjartsson og Einar Ingi Ingvarsson
Matti eða Matthías Eyfjörð er einn eftirsóttasti prodúser Íslands. Hann á fjöldann allan af bangerum eins og t.d. Ef Þeir Vilja Beef. Hér fer Matti yfir ferlið hans í FL studio og gefur góð ráð til hlustenda. Matti á sér stóra drauma og stefnir á að semja tónlist um allan heim. Þáttastjórnendur: Óli Þorbjörn Guðbjartsson og Einar Ingi Ingvarsson
Halla Hrund Logadóttir kom í viðtal til okkar. Spjallað var um vindmyllur, WEF, Palestínu og einkavæðingu skóla og heilbrigðiskerfisins. Halla skipar fyrsta sæti lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi.
Finnst þér stjórnmál hundleiðinleg en vilt samt vita meira? Þá er gott að byrja hér! Í þessu viðtali er farið yfir hvernig stjórnmál virka á einfaldan hátt (kjördæmi, meirihluti, grasrót).
Lenya Rún Taha Karim er í fyrsta sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður. Við spjölluðum við hana um hvernig stjórnmál virka og fórum yfir nokkur hitamál eins og kvenfrelsi og kvótakerfið.
Auðunn Lúthersson eða betur þekktur sem Auður settist í stólinn hjá okkur í þetta skipti. Við tölum um lífið út í LA, hvernig hann komst inn í tónlistina og allskonar fleiri hluti um tónlist.
Takk fyrir að hlusta
Hlynur Jónsson eða betur þekktur sem HJ Elite á samfélagsmiðlum. Skemmtilegt spjall um tímann sem hann bjó í Kýpur, meðferðina, öll 200+ jakkaföt sem hann á og hans jákvæða lífsviðhorf
Sunnudagsþáttur! Lets go
ISSI er með tónleika 20. apríl næstkomandi.
Ekki láta það fram hjá þér fara! Hver heldur þú að sé leynigesturinn?
Einn heppinn vinnur tvo miða!
Erpur Eyvindarson, BlazRoca eða Slakibabarinn mætti til okkar í stór skemmtilegt spjall. Við spjöllum um 3 mánaðar þurrkinn hans í Asíu, Pólitík og auðvitað risa tónleikana eða tónlistarhátíð sem þeir í rottweiler hundar eru að að halda í Laugardalshöll 17. maí
Bjarki Sigurðarson er einn af dou-inu í Ratio sem hafa unnið að lögum með t.d. GDRN og ClubDub. Við spjölluðum um hvernig er að búa í New York, tónlist og margt annað skemmtilegt
Egill Breki Scheving og Sævar Breki Einarsson skipa tónlistardúóið NUSSUN. Þeir gefa út sýna fyrstu plötu saman núna í mars. Hér fara þeir yfir vináttu sína og hvernig þeir byrjuðu í tónlist.
Danjel var að gefa út lagið Swagged out sem er fyrsta lagið sem við fáum að heyra af plötunni 4 sem hann er að vinna í. Tölum aðeins um tónlistarsenuna hérna á landinu og svörum spurningum frá hlustendum