Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
Health & Fitness
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
Loading...
0:00 / 0:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts124/v4/e8/af/e7/e8afe784-be0d-2d2d-df87-9bc92fbe18c4/mza_12214705891507903226.jpg/600x600bb.jpg
Þrír á stöng
Þrír á stöng
55 episodes
7 months ago
Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.
Show more...
Sports
RSS
All content for Þrír á stöng is the property of Þrír á stöng and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.
Show more...
Sports
Episodes (20/55)
Þrír á stöng
#54 - Bjart er yfir birtingum - Bjartur Ari Hansson
Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.
Show more...
7 months ago
4 hours 2 minutes 22 seconds

Þrír á stöng
#53 - Masterclass með Lewis - Lewis Hendrie
Veiiiióveiveiheyveiheyjó Lewis Hendrie og Ólafur Hilmar Foss mættu í þáttinn að þessu sinni. Óla þarf kannski ekki að kynna fyrir hlustendum því hann hefur áður verið gestur í þættinum en nú mætir hann með veiðivini sínum, Lewis. En Lewis sá er mikill veiðimaður og keppir í fluguveiði með enska landsliðinu um allan heim og hefur unnið til fjölda verðlauna í sportinu. Við fræddumst um veiðiferil hans og fáum að vita hvernig þessar keppnir fara fram og hvaða aðferðum er keppt í. Við fáum að vita allt um að mastera euro nymphing-tæknina og hvað ber að forðast en Lewis er þekktur fyrir að vera einstaklega óheppinn. Ef eitthvað getur farið úrskeiðis er næstum víst að það gerir það. Við vonum að þið njótið, við nutum.
Show more...
7 months ago
3 hours 28 minutes 23 seconds

Þrír á stöng
#52 - Alexander hinn, hinn mikli - Alexander Stefánsson
Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er hinn eini sanni Alexander Stefánsson sem er oft kenndur við Alexander mikla, gríska konunginn, en marktækasti munurinn á þeim er jú kannski veiðiþekking og annað smotterí. Sá mikli var til dæmis ekki mikið inni í sjóbirtings- og laxveiðum en þar kemur okkar maður sterkur inn. Alexander kom og spjallaði við okkur um sinn veiðiferil og veiðisvæði sem hann hefur stundað í gegnum árin. Hann er mikill náttúrudýrkandi og við fórum yfir víðan völl, allt frá stórum sjóbirtingum yfir í að kafa með hákörlum út um allan heim. Njótið vel, það gerðum við
Show more...
8 months ago
2 hours 19 minutes 14 seconds

Þrír á stöng
#51 - Mr. Trout & Feather - Tim Cammisa
Eyveyieyjo aveyio Gestur vikunnar er engin annar en Tim Cammisa sem margir kannast við úr veiðiheiminum undir nafninu Trout & Feather. Tim hefur stundað stangveiði frá barnsaldri og fyrir nokkuð mörgum árum stofnaði hann YouTube-rás sem hefur það að markmiði að hjálpa fólki að verða betri fluguhnýtarar og betri veiðimenn. Hann hefur einnig skrifað bækur og skipulagt veiðiferðir um allan heim. Þáttur vikunnar fer fram á ensku og vona ég að þið njótið minnar frábæru (ísl) ensku 😅 Það fór vel á með okkur Tim og var gaman að fá að kafa í hans veiðiferil. Njótið við nutum. ——— This week's guest is none other than Tim Cammisa, who is well known in the world of fly fishing as Trout&Feather. Tim has been angling since childhood and years ago he started a YouTube channel with the goal of helping people become better fly tyers and better anglers. He has also written books and organized fishing trips all over the world. This week's episode is in English. We had a great time with Tim and it was fun to explore the depths of his fishing career. Enjoy.
Show more...
8 months ago
3 hours 13 minutes 31 seconds

Þrír á stöng
#50 - Of Flies and Fish - Arnar Rósenkranz Hilmarsson
Eyasey veyjo aweyjo Í þætti vikunnar mætti til okkar trommuþræll Íslands og veiðimaðurinn Arnar Rósenkranz Hilmarsson. Arnar er kannski flestum hlustendum kunnur sem meðlimur hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, en við þekkjum hann sem Arnar veiðimann. Arnar hefur stundað stangveiði frá unga aldri og er ekkert að stoppa. Veiðilendur Arnars hafa verið um allt land og laxinn er þar í fyrirrúmi, en hann er nú samt sem áður í silung og sjóbba líka. Einnig hefur hann getið sér gott orð í fluguhnýtingum og við köfum aðeins í djúpið þar líka. Það fór vel á með okkur þannig njótið því við nutum. HEY!
Show more...
8 months ago
2 hours 31 minutes 16 seconds

Þrír á stöng
#49 - Netagerðarmaðurinn - Hörður Birgir Hafsteinsson
Veyjo aveijo Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið, netagerðarmaðurinn og veiðimaðurinn Hörður Birgir Hafsteinsson. Hödda ættu margir að þekkja úr Húseyjarkvíslinni og fyrir störf sín fyrir SVFR. Það fór afskaplega vel á með okkur stemningin góð og var erfitt að hætta því Höddi hafði frá alltof mörgu að segja. En njótið esskurnar því við nutum.
Show more...
8 months ago
3 hours 46 minutes 52 seconds

Þrír á stöng
#48 - Fallegi smiðurinn - Sævar Snorrason
Aveyjo veio. Í þætti vikunnar mætti til okkar gæðablóðið og veiðimaðurinn Sævar Snorrason. Sæfar er einn af þessum veiðimönnum sem margir þekkja en þeir sem þekkja hann ekki vel þekkja hann kanski sem veiðvörð Veiðikortsins en hann er svo mikklu meira en það. Sævar er líka að smíða háfa og allskins veiðiteingt efni og handbragðið er allt uppá 110% Það fór vel á með okkur og var margt að tala um eins og svo oft áður og vonum við að þið fyrirgefið okkur lengdina en það var bara svo margt um að tala. Njótið við nutum
Show more...
9 months ago
4 hours 2 minutes 1 second

Þrír á stöng
#47 - Tvær á toppnum - Elín Ingólfs og Helga Gísla
Eyseiaveijo veijo Í þessum fyrsta þætti ársins mættu tvær alltof veiðisjúkar veiðikonur, þær Elín Ingólfsdóttir og Helga Gísladóttir. Við fórum vel yfir stofnun kvennanefdar SVFR sem Elín kom á laggirnar og var Helga mætt þar með fyrstu konum. Við ræddum kvennanefndina, störfin og allt félagslífið í þessum nefndum og að sjálfsögðu aðalatriðið, veiðina. Einnig fórum við bara vel yfir þerra veiðsögu þeirra og var bara virkilega gaman að fá þessar miklu veiðikonur til okkar og það heyrist. Njótið því við nutum.
Show more...
9 months ago
2 hours 49 minutes 3 seconds

Þrír á stöng
#46 - Okkar veikasti - Gísli Rúnar Kristinsson
HOHOHOHO og gleðileg Jól. Í þætti vikunnar kemur til okkar virkilega veiðisýktur maður. Hann hefur nú ekki verið lengi í sportinu en þarna sannast það hvað þetta getur heltekið mann gjörsamlega. Gísli er maður sem er virkilega gaman að tala við og einnig eru Gísli og Siggi miklir veiðifélagar og það runnu ansi margar sögur í þættinum. Það ættu allir að hafa gaman af þessari sögustund. Njótið, við nutum í botn.
Show more...
10 months ago
3 hours 25 minutes 34 seconds

Þrír á stöng
#45 - Þessi Langskeggur - Örn Hjálmarsson
Jo eiveijo veijo veijooo. Þáttur vikunnar er heltekinn af vötnum og hnýtingum því gestur þáttarins er enginn annar en Örn Hjálmarsson. Flest allir veiðimenn ættu að þekkja Örn en ef þeir þekkja ekki manninn sjálfan ættu þeir að þekkja flugurnar hans svo sem Langskegg, Teppahreinsarann og Golden Eye. Við förum yfir þetta allt og að sjálfsögðu Veiðivötn og svo mörg önnur. Hlustun er sögu ríkari. Njótið, við nutum
Show more...
10 months ago
2 hours 8 minutes 11 seconds

Þrír á stöng
#44 - Mývatnssveitin og laxarnir - Hrannar Pétursson
Eyjo aveijoveio. Í þætti vikunnar kom til okkar náttúrubarnið og veiðimaðurinn Hrannar Pétursson. Hrannar ættu margir að þekkja úr þessum veiðiheimi okkar því hann hefur verið nokkuð iðinn við veiðarnar síðustu ár og við fórum yfir allt það helsta á ferlinum hingað til. Einnig er Hrannar í stjórn SVFR og köfuðum við með honum í þeirra vinnu og hugsjón. Þetta var nú mest allt á léttu nótunum enda er Hrannar ekki bara skemmtilegur veiðimaður hann er gull í gegn. Njótið við nutum.
Show more...
10 months ago
2 hours 24 minutes 58 seconds

Þrír á stöng
#43 - Hinn venjulegi Jón - Hörður Páll Guðmundsson
Yeiiiasey aveijo veyyo. Jæja vetrinum startað og það er gott og fátt betra en að fá hinn venjulega Jón, eins og hann kallaði sig sjálfur, sem gest í fyrsta þáttinn en sá Jón er Hörður Páll Guðmundsson. Hér er á ferðinni stuð- og stemningsþáttur, farið er yfir veiðina og ótal sögur fá að fjúka í þessum fyrsta þætti vetrarins.
Show more...
10 months ago
2 hours 46 minutes 27 seconds

Þrír á stöng
#42 - Atlasinn - Ólafur Hilmar Foss
Yjoeisei veyjo veio. Í þætti vikunnar kom til okkar enginn annar en atlasinn sjálfur, Ólafur Hilmar Foss. Óli er eldri en tvævetur í veiðinni og hefur komið víða við, allt frá Þingvallavatni sem barn og yfir í að veiða með heims- og Bretlandsmeisturum í veiði. Óli hefur komið víða við en það svæði sem Óla þykir hvað vænst um og hefur náð gríðarlegum tökum á eru Torfastaðir í Soginu. Við förum vel yfir Torfastaði ásamt því að tala um sjóbirting og að sjálfsögðu laxinn. Lindubuffið kemur einnig við sögu og það var allavega mjög gaman hjá okkur sem vonandi skín í gegn. Gestastjórnandi með mér í þessum þætti er hinn Caddis-bróðirinn og einn þriggja manna í tökustuði hann Ólafur Ágúst Haraldsson. Eins og oftast þarf ekkert að kynna hann fyrir íslenskum veiðimönnum því hann hefur verið víða. Laxárdalurinn er hans heimavöllur og svo er hann bara svo yndisleg persóna sem allir vita sem hafa hitt hann. En vonandi njótið þið, því við nutum.
Show more...
1 year ago
3 hours 35 minutes 23 seconds

Þrír á stöng
#41 - Er Guð Mývatnssveitin? - Ísak Vilhjámsson
Aaeyseyja aveyjó aveijó. Jæja, þá er þáttur vikunnar að þessu sinni að bakka til ykkar með fullt skott af skemmtun og fræðslu. Gestur þáttarins er enginn annar en fyrrum dælumaðurinn, kokkurinn og umfram allt veiðimaðurinn Ísak Vilhjálmsson. Það eru nokkrir staðir sem standa honum næst hjarta í veiðinni og förum við nokkuð ítarlega yfir þá í þættinum, hvernig hann kynntist þessum stöðum og hvernig hann svo féll fyrir þeim í kjölfarið. Þetta er að sjálfsögðu Mývatnssveitin og Þingvallavatn. Einnig tölum við um hina og þessa hluti og aðferðir í veiðinni. Þátturinn er ekki eins upp settur og vanalega því gestastjórnandinn í þessari viku var enginn annar en Caddis-bróðirinn Hrafn Ágústsson sem vildi prófa nýtt fyrirkomulag í þættinum sem var ansi skemmtilegt. Hrafn þarf varla að kynna fyrir nokkrum veiðimanni. Hann er annar bróðirinn í Caddis-bræðrum og einn þriggja í hópnum Tökustuð. Hrafn er magnaður veiðimaður og hnýtari og um fram allt góður drengur. Við vonum að þið hafið notið við nutum.
Show more...
1 year ago
3 hours 6 minutes 29 seconds

Þrír á stöng
#40 - Urriðadansinn sjálfur - Össur Skarphéðinsson
Eyjó aveijo veyjo Í þætti vikunnar kom enginn annar en líffræðingurinn, lífeðlisfræðingurinn og fyrrum Alþingismaðurinn Össur Skarphéðinsson í heimsókn. Össur er flest öllum sem komin eru af léttasta skeiðinu kunnur en bæði er hann mikill fræðimaður og veiðimaður. Við fórum með Össuri í gegnum hans veiðiferil, stikluðum á góðum veiðisögum og fórum nokkuð vel í bókina Urriðadans sem Össur skrifaði árið 1996 og fjallar aðallega um urriðann í Þingvallavatni. Það fór vel á með okkur og margar góðar sögur fengu að fljóta og skemmtum við okkur ansi vel. Gestastjórnandi þessa vikunna var Ólafur Tómas Guðbjartsson sem heldur úti Dagbók urriða. Það var mikill heiður að hafa Óla með mér í þessum þætti og jafnvel enginn betri. Óla þarf vart að kynna fyrir veiðimönnum því hann er búinn að gera þetta allt Snapchat, gefa út bók og sjónvarpsþætti og nú nýverið verið partur af Tökustuði sem hann og Caddis-bræður standa að. Þetta var gaman, við nutum og vonandi þið.
Show more...
1 year ago
2 hours 25 minutes 22 seconds

Þrír á stöng
#39 - Sister Sledge - Efemía og Stefanía
Eyaveijo vey. Jæja, kæru hlustendur. Þáttur vikunnar er mjög viðburðaríkur fyrir nokkrar sakir. Smávægilegar breytingar eru á þættinum þar sem Benni er fluttur af landinu og verð ég með gestastjórnendur það sem eftir lifir tímabils. Gestastjórnandi í þessum þætti er engin önnur en aflaklóin, bókaútgefandinn og besti makker í heimi; Anna Lea Friðriksdóttir. Og gestir vikunnar eru veiðisysturnar hressu Efemía og Stefanía sem hafa veitt víða frá blautu barnsbeini í Skagafirðinum. Það er ofboðslega gaman að fylgjast með þeim veiðisystrum á samfélagsmiðlum því leiðindi og vesen eru ekki til í þeirra huga. Því er svipað farið með þáttinn. Gleði, stemning og hlátrasköll lita þennan þátt og spjall okkar við þær systur lengdist vel því það var bara svo gaman. Njótið, við nutum.
Show more...
1 year ago
3 hours 53 minutes 2 seconds

Þrír á stöng
#38 - Af litlum neista - Pálmi Gunnarsson
Eiveyjo aveyeajó. Bassafantinn og náttúruunnandann Pálma Gunnarsson þarf ekki að kynna fyrir neinum veiðimanni en Pálmi kom til okkar í vikunni og við ræddum meðal annars þurrfluguveiði, straumflugur, sjóbirting, bleikjur, laxa, Rússland, Grænland og allt þar á milli. Njótið, við nutum.
Show more...
1 year ago
4 hours 17 minutes 23 seconds

Þrír á stöng
#37 - Frá Mozambique til Mývatns - Stefán Jón Hafstein
Jeyesey weyjó veijo. Í þætti vikunnar kom heimshornaflakkarinn og veiðimaðurinn Stefán Jón Hafstein í heimsókn. Stefán ættu flest allir veiðimenn að þekkja en hann lét mikið fyrir sér fara í veiðiheiminum hér á árum áður. Við förum yfir gömlu góðu dagana með Stefáni, hvernig allt hefur breyst og hvernig þetta er orðið í dag ásamt því að ræða veiðimennsku hans í dag. Stefán hefur frá ansi mörgu mögnuðu að segja þannig njótið. Við nutum.
Show more...
1 year ago
2 hours 45 minutes 29 seconds

Þrír á stöng
#36 - Mr Sexxxy - Dagur Árni
Jaaaa eyaveyijo veyeijo. Í þætti vikunnar er gestur okkar enginn annar en veiðisjúkasti maður landsins, já eða bara heimsins, Dagur Árni Guðmundsson. Hvað getur maður sagt um svona þátt? Tjaaa við fórum yfir nánast allt í sambandi við veiði frá taumum upp í risafiska hvort sem það séu laxar, urriðar eða fiskar í Kaliforníu. Hlustun er sögu ríkari. Njótið við nutum.
Show more...
1 year ago
3 hours 2 minutes 47 seconds

Þrír á stöng
#35 - Dýrbíturinn - Dommi
Aaaaeiiii aveiyiyjo veyo. Guðmundur Ingi Hjartarson, betur þekktur sem Dommi, kíkti til okkar og ræddi 30 ára draum sem hann er að láta rætast. Forritarinn sem sneri sér að fiskirækt er með margar frábærar veiðisögur í farteskinu og er að gera virkilega spennandi hluti sem leigutaki og veiðimaður Njótið kæru því við nutum.
Show more...
1 year ago
3 hours 1 minute 1 second

Þrír á stöng
Eyveijo aueyseiveijo Í þætti vikunnar mætti Bjartur Ari Hansson í settið. Bjartur er einn af þessum veiðimönnum sem eyðir mestum veiðitíma sínum í silungs- og sjóbirtingsveiði hvort sem það er í vötnum eða straumvatni. Við förum vel yfir Skagaheiðina og fleiri vatnasvæði sem Bjartur hefur stundað grimmt. Það er einnig mikil Hafnarfjarðarslagsíða í þessum þætti því Bjartur hefur verið innvinklaður í Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar frá barnsaldri og förum við því líka yfir þeirra veiðisvæði og félagið. Það fór virkilega vel á með okkur félögunum og nutum við vel og vonum við að þið njótið.