Hversu vel þekkirðu fólkið sem stendur þér næst? Við fórum á Villibráð í bíó (sumir með litlar væntingar en aðrir með aðeins hærri) og horfðum svo á frönsku útgáfu myndarinnar, Le Jeu. Tvær alveg eins myndir sem tekst samt að vera GJÖRólíkar.
Við snúum aftur eftir marga viðburðaríka mánuði og óvænta atburði. Umræðuefnið er að sjálfsögðu jólamyndir; þessar góðu, þessar gömlu, þessar hræðilega lélegu, þessar klassísku og allt þar á milli. Gleðileg jól og heyrumst aftur á nýju ári!
Er til önnur útgáfa af þér einhvers staðar þarna úti? Er til heimur þar sem þú kannt að skíða á höndum eða borðar með naflanum eða heimur þar sem allt er fjólublátt? Við munum sennilega aldrei komast að því en það er aftur á móti ENDALAUST hægt að velta sér upp úr því og bíómyndirnar tvær sem við tókum fyrir í þættinum eru einmitt af þeirri sortinni. Önnur er mögulega BESTA MYND ÁRSINS (já, þú last þetta rétt) en hin er talsvert verri🙈🙊
Leikhúsárið er að líða undir lok og það þýðir bara eitt: Loksins, loksins er komið SUMAR! Við ræddum síðustu leikhúsferðir vetursins, Room 4.1 og Sjö ævintýri um skömm, og fórum í gegnum himinháan sumarbókastafla🛫⛱
Fyrir þá sem ekki vita: John Green er enginn venjulegur maður. Hann er maðurinn sem færði okkur The Fault in Our Stars og Paper Towns, ógleymanlegar ungmennabækur (og kvikmyndir) sem breyttu allri okkar upplifun af því hvað ungmennabækur eru. Hér fjöllum við um hans fyrstu skáldsögu, Looking for Alaska sem kom út árið 2005 og olli þó nokkrum usla.
Við fengum FRÁBÆRAN gest🐢 í verið í dag og fórum í gegnum þær kvikmyndir sem hlutu tilnefningu sem besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Við erum í ANDLEGU ÁFALLI eftir þessa mögnuðu bók og þurfum sálfræðiaðstoð á stundinni😱
Næturbröltarar, njósnarar, kvennabósar og þunglyndir ævintýrapésar. Batman/Robbi Patt og Milla úr samnefndri bók eftir Kristínu Ómars voru með okkur í þætti dagsins og komust að því að þau eiga hitt og þetta sameiginlegt.
Þórunn Rakel Gylfadóttir hlaut nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ungmennabók sína Akam, ég og Annika þar sem meðal annars er fjallað um framandleika, fordóma og réttlæti. Við ræddum allt þetta og fleira til í þætti dagsins.
Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
Rithöfundurinn Elena Ferrante hefur slegið rækilega í gegn á síðustu árum og um þessar mundir er einmitt í sýningu bíómyndin The Lost Daughter sem byggð er á samnefndri bók höfundarins. Við dembdum okkur í bæði lestur og bíó og komum frekar ósammála upp úr kafinu.
Þessi þáttur er í boði Senu.
Forfallnir aðdáendur Kóngulóarmannsins köfuðu í hugsanlega heima áttfætlunnar með Tobey Maguire, Andrew Garfield og Tom Holland.
Í síðasta þætti fyrir jólafrí ræddum við jólabækur Angústúru; Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og Jól á eyjahótelinu eftir Jenny Colgan. Við spjölluðum líka um jólagjafir, jólatónlist, jólamyndir og allt hitt sem tilheyrir jólunum🎄
Þáttur er í boði bókaforlagsins Angústúru.
Við ræddum bókina Að borða Búdda - líf og dauði í tíbeskum bæ eftir Barböru Demick.
Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
Við töluðum um skáldsöguna Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur; sögu af líkamslistum, sársauka og mörkum hins siðlega sem dregur fram svo mikil óþægindi að við bókstaflega fundum það í líkamanum.
Bókabúðir geta verið í kastölum, við ströndina eða hreinlega bara á Selfossi. Þær hitta samt alltaf beint í hjartastað. Við ræddum hvernig og hvar við viljum hafa bókabúðirnar sem við höfum í og veltum því fyrir okkur að opna bókabúð þar sem eingöngu fást bækur eftir höfunda sem hafa gengið á Hvannadalshnjúk.
Hefur þér einhvern tímann dottið í hug að taka skjáskot af samtali og setja það í allt annað samhengi? Ef svarið er nei þá tökum við hattinn ofan fyrir þér. Við mælum líka með að þú hlustir á þennan þátt þar sem Chevrolet Suburban, falsmyndir á samfélagsmiðlum og þráhyggju Íslendinga fyrir Bandaríkjunum ber á góma.
Ástrós sest í spyrilssætið og sendir Tönju á vit ævintýranna í heimi Buzzfeed spurningalista.
Jón Magnús Arnarsson (aka ríkjandi Íslandsmeistari í ljóðaslammi, rappari, ljóðskáld og FYRSTI GESTURINN OKKAR) kom og spjallaði við okkur um ljóðaslamm.
Fyrstu þættir, uppáhalds þættir, fáránlega góða þættir, lélegir þættir sem við gátum samt ekki hætt að horfa á, þættir sem vöktu upp ugg og svo margt, margt fleira.