Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Business
Society & Culture
Health & Fitness
Sports
Technology
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Podjoint Logo
US
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts211/v4/ee/20/d2/ee20d2db-7f84-5a48-628d-c16183520e5f/mza_17964058946237989613.jpg/600x600bb.jpg
Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála og Móey Pála
63 episodes
8 months ago
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá ti...
Show more...
Education
RSS
All content for Fjölskyldan ehf. is the property of Margrét Pála og Móey Pála and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá ti...
Show more...
Education
Episodes (20/63)
Fjölskyldan ehf.
,,Í skólanum mínum er síminn bara í körfunni"
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá ti...
Show more...
2 years ago
37 minutes

Fjölskyldan ehf.
Svarthvíta regnbogafjölskyldan
Móey Pála og Júlíana Dögg, mágkona hennar, ákváðu með stuttum fyrirvara að taka upp þátt. Tilefnið var því miður ekki gleðilegt en David, maki Móeyar, lenti í leiðindaatviki í sundi á dögunum. Þar fékk hann að finna fyrir fordómum vegna húðlitar síns sem komu honum og fjölskyldunni allri úr jafnvægi. Júlíana Dögg er fædd og uppalin á Íslandi og á ættir að rekja til Mosambik. Hún og Móey ræða fordóma vegna uppruna, fyrirmyndir og staðalmyndir, óþægilegar athugasemdir og hvað er hæ...
Show more...
2 years ago
53 minutes

Fjölskyldan ehf.
Hávaði, heyrn, heyrnarleysi og tungumál
Doktor Valdís Jónsdóttir spjallar við Möggu Pálu í þessum þætti og það er hávaði sem þær hefja samtalið á. Þær sjálfar eru ekki með hávaða en Valdís hefur rannsakað hávaða og hvaða áhrif hann hefur á heyrn, börn, kennara og svo framvegis. Hljóðumhverfi barna er þeim báðum hugleikið og þær ræða hvernig hljóðstyrkur dagsins fylgir heim að leikskóla og skóla loknum. Einnig hvernig fjölskyldum er hætt við að minnka hávaða í fjölskyldurýmum með snjalltækjum og heyrnatólum. Hvaða áhrif getur...
Show more...
2 years ago
35 minutes

Fjölskyldan ehf.
Björkin fæðingarheimili
Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rut Guðmundsdóttir eru ljósmæður í Björkinni fæðingarheimili og viðmælendur Möggu Pálu og Móeyar Pálu að þessu sinni. Hrafnhildur og Arney Þórarinsdóttir stofnuðu Björkina árið 2017 en þær hafa sterka og skýra sýn á ferli fæðinga. Ayon Rúnar drengur Móeyar og Davids fæddist í Björkinni og þær ræða fæðinguna sem bar mjög fljótt að. Að sjálfsögðu færist talið fram og aftur í tíma og um víðan völl en rauði þráðurinn er auðvitað þetta stórkostlega ferli sem fæðingin...
Show more...
2 years ago
54 minutes

Fjölskyldan ehf.
Í fréttum er það helst
Nú eru tvö ár liðin frá síðustu þáttaseríu og þess vegna margt að frétta hjá Fjölskyldunni ehf., hænum og öllum. Magga Pála er iðin að vanda; uppbygging á heimili og fyrirtæki en henni finnst það nú ekki tiltökumál. Móey Pála er ekki síður iðin með sína ört stækkandi fjölskyldu en verkefnið sem á hug þeirra allan um þessar mundir er tilvonandi húsbygging. Þær ræða kosti þess að fjölskyldurnar búi nálægt hver annarri og hvernig það styrkir uppeldið og fjölskylduböndin sem verða svo ster...
Show more...
2 years ago
37 minutes

Fjölskyldan ehf.
Ný sería fer af stað, fleiri börn, meiri ást, meiri þreyta og flutningar!
Fjölskyldan ehf. er mætt á ný, reynslunni og einu barni ríkari! Margrét Pála og Móey Pála spjalla saman um ólík og fjölbreytt verkefni fjölskyldunnar eins og t.d. flutninga og fjölskyldureit. Það er ekkert sem er fjölskyldunni óviðkomandi og fara ömmgurnar um víðan völl og ræða erfið málefni sem þarf að ræða. Þungunarrof er eitt af því sem þær kafa ofan í, aðstæður, viðmót, stuttlega rætt um söguna og hvaða merkingu það hefur haft fyrir konur. Einlægt og hjartnæmt spjall að vanda. Katla er nú...
Show more...
2 years ago
38 minutes

Fjölskyldan ehf.
Gunnlöð Jóna ræðir skilnað, stefnumót og barneignir
Síðasti þáttur fyrir sumarfrí hjá Fjölskyldunni ehf og ofuramman er enn fjarri góðu gamni. Móey Pála lætur sína krafta ekki eftir liggja og fær til sín gullfallega, glæsilega og einhleypa konu í spjall. Það er Gunnlöð Jóna sem ræðir skilnað, kvíða, stefnumót, fjölskylduna og það að langa í börn og vera einhleyp. Hvernig er að vera fráskilin 29 ára og finna pressu frá samfélaginu varðandi barneignir? Er mikilvægt að ákveða að leggja í barneignir upp á einsdæmi á ákveðnum tímapunkti? ...
Show more...
4 years ago
39 minutes

Fjölskyldan ehf.
Pálína Axelsdóttir Njarðvík og kjötát, dýraást og alls konar ást
Amman er fjarri góðu gamni í þessum þætti en hún sinnir Hjallastefnuleikskólanum í Skotlandi. Móey Pála stýrir móðurskipinu á meðan og fær til sín góðan gest í hlaðvarp vikunnar. Það er hún Pálína Axelsdóttir Njarðvík eða fyrrum tengdasystir Móeyjar. Pálína heldur úti vinsælli Instagram síðu - Farmlife Iceland - þar sem hún deilir lífi sauðfjárbónda. Hún er ekki bara samfélagsmiðlastjarna því hún er einnig sérkennslustýra á leikskólanum Litlu-Ásum og elskar að ferðast og eyða tíma með kærust...
Show more...
4 years ago
37 minutes

Fjölskyldan ehf.
Andrea Eyland og útópían um barnvænt samfélag
Ömmgurnar fá til sín góðan gest í þessum þætti en það er hún Andrea Eyland í Kviknar samfélaginu. Andrea á 5 börn, rekur fyrirtæki og er framkvæmdarstjóri fjölskyldunnar sinnar. Hún ræðir um fjölskyldulífið, þriðju vaktina, sjálfsrækt, barnvænt samfélag og margt fleira. Atvinnuþátttaka kvenna hefur stóraukist og samfélagið mikið breyst á síðastliðnum áratugum. Það sem hefur lítið breyst er fjölskyldan og skyldurnar sem fylgja slíkum rekstri og rekstrarstjórarnir eru oftast konur sem eru nú ...
Show more...
4 years ago
36 minutes

Fjölskyldan ehf.
Drengir og menn, karlmennska og ofurhetjur
Ömmgurnar Móey Pála og Magga Pála taka veðrið í upphafi þáttar og Magga Pála ræðir hvernig lítil börn geta verið eins og barómetar eða loftþrýstingsmælar á veðurfar. Veðrið hefur vissulega áhrif á okkur öll og þá líka á samskipti okkar. Ömmgurnar ræða einmitt samskipti drengja og hvernig fullorðið fólk þjálfar samskipti ólíkt við stúlkur og drengi. Umræðan um drengjauppeldi heldur áfram af fullum krafti og í þetta sinn fær Magga Pála tilvonandi framkvæmdarstjóra Hjallastefnunnar Bóas Hallgr...
Show more...
4 years ago
52 minutes

Fjölskyldan ehf.
Drengjauppeldi og allar sálirnar í sveitinni
Ömmgurnar komu sér vel fyrir á meðan Adeline Brynja svaf og tóku upp þátt vikunnar. Hlustendur hafa beðið um að ýmis umræðuefni séu tekin fyrir og í þættinum var drengjauppeldi efst á baugi, í takt við umræðu samfélagsins. Margrét Pála hefur rannsakað og unnið með kynjaskipt skólastarf í fjölda mörg ár og hafði sitthvað um málið að segja. Hvernig skal mæta drengjum í skólastarfi og hvers vegna græða drengir á kynjaskiptu skólastarfi? Hvað fara drengirnir okkar á mis við í samfélaginu og hver...
Show more...
4 years ago
42 minutes

Fjölskyldan ehf.
Má bjóða þér lítinn eða stóran æfingabita?
Kynnir þáttanna, hún Katla, er spennt að fara í sauðburð í Laxárdal og fylgjast með lífinu í sveitinni. Hlustendur fá tóndæmi úr fjárhúsunum. Ömmgurnar Magga Pála og Móey Pála spjalla um mataræði barna og hvernig sektarkennd foreldra getur tengst því. Það er þrennt sem börn gera að ágreiningsefni við foreldra sína um leið og þau geta en það er matur, svefn og fatnaður. Gullna reglan er að muna að börn eru eins ólík og þau eru mörg og það verður að hafa í huga í uppeldi. Eins að sýna á...
Show more...
4 years ago
29 minutes

Fjölskyldan ehf.
Sólarsamba, kvöldrútína og hænuungar
Ömmgurnar eru í sólskinsskapi að venju og auðvitað hafa sólríkir dagar áhrif á umræðuefni þáttarins. Þær byrja á helstu fréttum af yngsta fjölskyldumeðlimnum Adeline Brynju og ræða hvernig kvöldrútínan gengur. Einnig ræða þær tungumál, tvítyngd börn og hvernig áhrif það getur haft á málþroskann. Þær spjalla síðan um vordaga, sól og áhrif hennar á börn. Hverju þarf að gæta að þegar sólin er hátt á lofti og allir vilja vera úti? Foreldrahlutverkinu fylgir mikil ábyrgð og ekki síst þega...
Show more...
4 years ago
36 minutes

Fjölskyldan ehf.
Mannafæla eða frábærlega skynsöm snót
Hér eru ömmgurnar sestar við hljóðnemann og Móey Pála deilir reynslu sinni af því að vera að heiman með barnið í 10 daga. Öll rútina fór í vaskinn og unga snótin vissi ekki hvað var að gerast í þessu framandi umhverfi svo að hún hékk föst á mömmu sinni og vildi lítið brosa til frænku og frænda og afa og stjúpömmu og allra vina og vandamanna af öllum gerðum á Þórshöfn. Það var helst að hún samþykkti móðursystur sínar sem eru nánar tiltekið hálfsystur móður hennar, 4, 10 og 11 ára. Að v...
Show more...
4 years ago
36 minutes

Fjölskyldan ehf.
Lilja, finnst þér leiðinlegt að vera ekki afi?
Nú er Katla komin í hlutverk þáttastjórnandans þar sem hún tekur á móti Lilju - sem er helmingurinn af "ömmu og Lilju" á Gilsbakkanum. Móey Pála og Adeline Brynja eru staddar á Þórshöfn að hitta hálfsystur sínar - eða hálfsystur hálfsystur Kötlu. Alls kyns fjölskyldur, hálfar og heilar, stjúptengsl og þarftu að fæða móður barns til að til að vera alvöru amma? Eftir hlé blandast amma í umræðuna og þá fer allt óvart yfir í umræðu um hænur og fornbíla - hvernig sem það nú tengist? ...
Show more...
4 years ago
31 minutes

Fjölskyldan ehf.
Stolt "brottfall", basl og betrun
Þáttur vikunnar er tileinkaður Agnari sem er barnabarn númer tvö í Fjölskyldunni ehf. Hann fann sig ekki í framhaldsskóla en vissi ekki hvað hann vildi gera. Áfengi og gras voru freistingar sem hann féll fyrir um tíma en hvað gerði fullorðna fólkið til að styðja unga manninn? Hvað er í boði ef framhaldsskólinn virkar ekki? Hvernig er að eiga eldri systur sem er með allt à hreinu? Er samanburður í fjölskyldunni verri eða betri en samanburðurinn við jafnaldrana? Agnar ræðir einnig hvað hann...
Show more...
4 years ago
44 minutes

Fjölskyldan ehf.
Umbun, refsing, hótanir og svipting í alvöru???
Að venju fara ömmgurnar yfir stöðuna hjá ungu snótinni sem vex og dafnar, fær sér brauð með kæfu í morgunverð og helst vill ráða rútínu kvöldsins fyrir hönd heimilisins. Hugarstarfsemi hennar er og verður þannig næstu árin að allt er annað hvort eða - ekkert bæði og Því fylgir að allt verður að reglu, líka það sem er óttaleg óregla fyrir barnið. Látum við undan nauði í barni og endum með jæja þá andvarpinu, hótum við án þess að standa við orð okkar, refsum við barni með athyglissvipti...
Show more...
4 years ago
39 minutes

Fjölskyldan ehf.
Koma unglingsárin með kröfum um kynlíf og neyslu?
Að þessu sinni er það unglingurinn Lilja Björk í Fjölskyldunni ehf. sem spjallar við ömmu og Móeyju Pálu. Hún lýsir því hvernig er að vera unglingur og spjallar opinskàtt um áskoranirnar sem því fylgja. Hvernig á að velja framhaldsskóla sem hentar? Skiptir félagslífið meira máli en námið, eða öfugt? Hvernig er einkalíf unglingsins inn á stóru heimili? Hvenær þarf að taka til og þrífa? Lilja Björk svarar hreinskilningslega, líka þegar amman spyr um pressuna sem fylgir því að stunda kynl...
Show more...
4 years ago
44 minutes

Fjölskyldan ehf.
Sjö mánaða og stjórnar heimilinu
Nú eru ungu foreldrarnir komnir í fyrstu uppeldisklípuna enda stækkar unga snótin og þroskast stöðugt. Hún er komin á þann aldur þar sem börn gera mikinn greinarmun á fólki sem þau þekkja og ókunnugum sem þau fara að mótmæla hástöfum. Eins vill hún ekki vera aðskilin frá mömmu sinni og það á bara eftir að versna á næstu mánuðum. Auk alls þessa eru sjö mánaða börn byrjuð að leita leiða til að stjórna umhverfinu; ekki bara þegar þau eru svöng, þreytt, blaut eða einmana. Þarna byrja viljaæfing...
Show more...
4 years ago
35 minutes

Fjölskyldan ehf.
Hlutir kosta peninga
Ömmgurnar sátu í glænýju heimastúdíói og tóku upp þátt vikunnar í ,,heimakastinu”. Þættirnir eru orðnir 44 og brátt verður komið ár frá því hlaðvarpið Fjölskyldan ehf fór í loftið. Í tilefni þess verða m.a. gjafaleikir á Instagram og Facebook síðum Fjölskyldunnar ehf. Magga Pála og Móey Pála ræddu fátækt barna og ungmenna á Íslandi og muninn á fátækt og blankheitum. Einnig ræða þær hvernig er hægt að jafna aðstöðumun barna og hvetja hvern og einn að finna leið. Öll getum við verið gætin á o...
Show more...
4 years ago
30 minutes

Fjölskyldan ehf.
Margrét Pála er komin heim eftir haustfrí á Spáni og dembir sér beint í umræðu um síma, samfélagsmiðla og almenna skjánotkun ásamt Móey Pálu. Mikil umræða um símanotkun barna og ungmenna kviknaði í þjóðfélaginu í kjölfar viðtals við Þorgrím Þráinsson í Bítinu fyrr í mánuðinum. Ömmgurnar taka undir orð um hans um neikvæð áhrif ofnotkunar hjá börnum sem fullorðnum og hversu mikilvægt er að setja mörk á þessu sviði eins og á öðrum sviðum tilverunnar. Þær ræða einnig áhrif skjánotkunar út frá ti...