Viðmælandi vikunnar er Heiða Mist, einstök móðir og kraftlyftingarkona.
Heiða var ansi ung að aldri þegar hún komst að því að hún myndi eiga í erfiðleikum með að eignast barn og að tímaramminn væri stuttur. Heiða ákvað því að taka málin í sínar hendur og taka þá stóru og yndislegu ákvörðun að verða einstök móðir. Hún segir okkur frá ferlinu, krefjandi fæðingu og fyrstu mánuðunum með dóttur sinni.