Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
History
Music
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts115/v4/61/f0/31/61f031cc-ae86-8a94-487a-73e053e54644/mza_8530569863100975565.jpg/600x600bb.jpg
Snæbjörn talar við fólk
Hljóðkirkjan
100 episodes
9 months ago
Snæbjörn talar vikulega við fólk sem hefur eitthvað skemmtilegt að segja.
Show more...
Society & Culture
RSS
All content for Snæbjörn talar við fólk is the property of Hljóðkirkjan and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Snæbjörn talar vikulega við fólk sem hefur eitthvað skemmtilegt að segja.
Show more...
Society & Culture
https://pbcdn1.podbean.com/imglogo/ep-logo/pbblog8587889/stvf008502.jpg
#0085 Sigríður Beinteinsdóttir
Snæbjörn talar við fólk
3 hours 11 minutes 58 seconds
3 years ago
#0085 Sigríður Beinteinsdóttir
S01E85  – Sigga Beinteins er þjóðargersemi og í mínum veruleika hefur hún alltaf verið til. Hún hóf ferilinn í bandi með dr. Gunna, en hafði áður búið í pínulitlu asbesthúsi. Hún er ekki eins og allar stelpurnar sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er og það eitt og sér skaut henni upp á vinsældahimininn með tilþrifum árið 1984. Hún hefur farið þrisvar í Eurovision, rekið söngskóla í tveimur löndum, fengið blóðtappa sökum álags og alið upp tvíbura. Hún er hljóðfæraleikari í dvala, rokkhundur inn við beinið, að sjálfsögðu Stjórnarliði og jólatónleikadrottning Íslands. Við áttum afar góða dagsstund og kjöftuðum frá okkur tímann. Fullkominn þáttur svona milli hátíða. Og þar með er 2021 búið. Takk fyrir og eigið gleðileg áramót. Gott spjall.  – Síminn Pay býður upp á STVF. Með Pay Léttkaup greiðir þú fyrir vörur með öruggum hætti og hefur 14 daga til að dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði. Þú getur sótt um Léttkaupskortið, óháð því hvar þú ert með síma- og bankaviðskipti. Á hverjum fimmtudegi birtast ný Léttkaupstilboð í appinu.  – Omnom býður upp á STVF. Vondandi slepptuð þið því að gera jólaísinn eins og Agnes og eigið þess vegna marga poka af LAKKRÍS + SEA SALT OMNOM KRUNCH til þess að mönsa á yfir á nýja árið.  – Sjóvá býður upp á STVF. Keyrðu yfir símann þinn eins og Snæbjörn um árið og leyfðu Sjóvá að mýkja fallið.   – Bríó býður upp á STVF. Þið þurfið að láta ykkur hinn óskaplega vel heppnaða og áfengislausa Bríó duga á áramótunum, en fljótlega á nýju ári kemur LÓÐASTÓLALARRY frá Borg, í samstarfi við Drauga fortíðar, í búðirnar.   – Hljóðkirkjan býður upp á 5 þætti í viku. Dómsdagur á mánudögum, Draugar fortíðar á miðvikudögum, Snæbjörn talar við fólk á fimmtudögum, Besta platan á föstudögum og Listamenn á laugardögum.
Snæbjörn talar við fólk
Snæbjörn talar vikulega við fólk sem hefur eitthvað skemmtilegt að segja.