Hnitin eru stillt á Sáttmálaheimana gegnum Driftið á geimflaug Reglunnar QP-13. Rosa margir takkar til að ýta á en engin af þeim sem segir hvernig geimflaug virkar. Fljúgandi heilar (sumir í þveng), ekki-væringjar og rosa margt annað skrýtið sem býr hérna á þverskurði vísinda og fantasíu.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
Player Core fyrir Starfinder 2e í Nexus
Archives of Nethys fyrir Starfinder 2e
Dæmi um "Cinematic Starship Scenes"
Redrazors um Starfinder 2e innleiðingu í Pathbuilder
Í heimi þar sem fautar brugga launráð í skuggunum. Uppstríluð illmenni og einkaherir þeirra hrúga að sér meiri auð en nokkur getur ímyndað sér og vitfirringar kveikja á eldspýtunni sem tendrar plánetuna eru Reglubræður mættir til að rýna í Outgunned eftir Two Little Mice.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
Reglubræður smjatta á stórfregnum Critical Role og ætlun þeirra að nota D&D 2024 reglurnar í staðinn fyrir Daggerheart kerfið í væntanlegri fjórðu seríu hópsins.
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar þar sem er hægt að finna bæði regluverk fyrir D&D 2024 og Daggerheart ásamt hinum ýmsu tólum og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
---
Í hlekkjum Reglunnar
Fireside Chat LIVE With Matthew Mercer & Brennan Lee Mulligan
Nýtt ár, nýtt allt, hálf-djók sem varð að blákaldri staðreynd. Addó meðtekur sakramentið með Reglubræðrum í umfjöllun þeirra um Index Card RPG: Master Edition - mögulega einni bestu byrjendabók í spunaspilum sem fyrirfinnst!
---
Quest Portal er kostunaraðili Reglunnar en þar á bæ er að finna hin ýmsu tól og tækni fyrir persónu-og heimasmíðar.
Við þökkum einnig Bibba og Tryggva í Svörtu tungunum fyrir tæknilega aðstoð við upptöku þáttarins. Við hvetjum öll til að leggja á hlustir hvað sá fríði flokkur hefur að segja um spunaspil.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
Index Card RPG: Master Edition fæst í Nexus og Drive Thru RPG
Alfheim kortin á Drive Thru RPG
Hlaðvarpið Ken and Robin Talk About Stuff
Batman - GOTHAM CITY CHRONICLES – The Roleplaying Game
Reglubræður bera saman bækur í bækistöðvum kostunaraðilans. Útreikningar gerðir upp. Hreinsað til að hleypa inn einhverju nýju, jafn vel einhverju betra.
---
Það fellur ekki á milli hluta að Quest Portal reynist enn dyggur kostunaraðili Reglunnar og í framvarðasveit spunaspilara nær sem fjær.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
NIGHT'S BLACK AGENTS sarpur á slikk
"When We Were Wizards" hlaðvarpið
Dungeon Master of None - "Mothership"
Dungeon Master of None - "Gradient Descent"
Krísan er sú að hið gamla deyr en ungviðið of bágstatt til að berast fullþroska í heiminn. Er henni viðbjargandi? Er það of seint? Skulum vér ganga, hönd í loðna hönd, í átt að hinu hnignandi sólarlagi sem stolt Garou í einum, seinasta dýrðarljóma Gaia?
---
Reglubókaklúbburinn hámar í sig Werewolf: The Apocalypse eins og óð varúlfafylking gegnum yfirgefna vöruskemmu við enda bæjarins þökk sé Quest Portal, kostunaraðila þáttarins og stafrænu Cairn-i spunaspila.
---
Hjálparsími 1717 og Netspjall Rauða Krossins
---
Öryggisúrræði spunaspila
“Bleed: The Spillover Between Player and Character”
eftir Sarah Lynne Bowman
“The Battle of Primrose Park: Playing for Emancipatory Bleed in Fortune & Felicity” eftir Jonaya Kemper
“Larp Safety Design Fundamentals” eftir Johanna Koljonen
“Participation Safety In Larp”, vefsíða rekin af Johanna Koljonen
“What do the terms Lines and Veils mean?”
“Let’s Play with Fire! Using Risk and its Power for Personal Transformation” eftir Bettina Beck
“Creating a Culture of Trust Through Safety and Calibration Mechanics” eftir Maury Brown
“The X Card” eftir John Stavropolous
---
Listi á Reddit yfir nokkur hneyksli White Wolf
Nýlegra hneyksli sem tengist þessari útgáfu
Jæja... fer þetta ekki að verða gott?
Blússandi meðmæli Reglunnar
Schrecknet - persónusmiðja fyrir Heim Myrkurs
Reglan tekur á rás með Brostna vegvísinn við hönd. Þessi þáttur á heima á safni en er, eins og í fyrri svaðilförum Reglunnar, kostaður af Quest Portal.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
The Lost Jewels of Eire eftir 1 Shot Adventures
Reglubókaklúbburinn - Umræðuvettvangur - 107 meðlimir komnir, endilega melda sig þar á bæ.
Spunaspil á Skaganum - fyrrum áhafnarmeðlimur Sædísarinnar og flott eintak af manneskju, hann Ásgeir Óttar er með hóp fyrir spunaspil á Skaganum.
Drivethru RPG, Christmas in July útsalan þar sem er m.a. að finna Outgunned og bækur Sly Flourish , þá mælum við sérstaklega með Return of the Lazy DM
Broken Compass - Quickstart Rules
Hlaðvarpið Pant vera blár
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Reglan rennur yfir grösug grös góssins sem var gefið út á Free RPG Day þann 24. júní.
---
Það kostar ekki neitt að tjékka á Quest Portal, kostunaraðila þáttarins sem er með ókeypis einhleypur fyrir áhugasama örlagavalda.
---
Hlekkir á ævintýrin og kerfin í þættinum
Free RPG Day - Hvað er það og hver tóku þátt?
Pathfinder 2e: Poppets in Peril og Starfinder 2e: Second Contact frá Paizo
Not a Drop to Drink frá Loke BattleMats
Shards of the Spellforge fyrir Tales of the Valiant frá Kobold Press
Sink! Treasures of the Deep Grotto frá Crimson Herald
One-Shot Wonders frá Roll & Play Press
Humblewood frá Hit Point Press
Return to the Dark Tower eftir 9th Level Games
Garbage and Glory eftir Wet Ink Games
Rojo fyrir YoJambo eftir Luca Negri fyrir NEED GAMES!
Unnatural Disaster frá Renegade Games Studios
Plague Bearer fyrir Zombicide eftir CMON
Red Tundra fyrir Werewolf eftir Renegade Game Studios
Dragonbane: The Sinking Tower fyrir Dragonbane eftir Free League
Across the Veil of Time fyrir Dungeon Crawl Classics eftir Goodman Games
The Sins of Grisham Priory fyrir Hollows eftir Rowan, Rook and Decard
Rebels & Refugees fyrir Avatar Legends the RPG eftir Magpie Games
Blússandi meðmæli Reglunnar
I’m begging you to play another RPG
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Kom nú kappar, kvistakvár og hjólreiðanornir. Reglan hefur komið sér saman í kringum Stjörnustein Absalom til að ræða Leiðarvísi leikmanna fyrir Pathfinder 2e.
— Líkt og Aroden til hins forna er það Quest Portal sem upphefur Regluna sem hennar kostunaraðili.
— Player Core 1 er að finna í Nexus og meira að segja í öllum þeim útgáfum sem Reglan hafði við hönd:
Player Core 1 (staðlaða kápan)
— Blússandi meðmæli Reglunnar
Archives of Nethys - Allt regluverkið á núllþúsund krónur
Pathbuilder - Fríkeypis persónusmiðja
Einhleypurnar A Fistful of Flowers og A Few Flowers More ókeypis PDF hjá Paizo
Bounded Accuracy: Legends and Lore - grein Rodney Thompson um Fast viðmið (e. Bounded Accuracy)
Why do we even have mechanics in RPGs (like Dungeons & Dragons)?
The Rules Lawyer - Youtube-rás Ronald the Rules Lawyer sem fjallar svaka mikið um Pathfinder 2e
Heimar og Himingeimar | Búninga-og leikjasamkoma í Hafnarfirði
I'm begging you to play another RPG
Klokkaðu alla útganga áður en þú rýkur inn í þennan þátt. Korktaflan sýnir það svart á hvítu og með rauðum þræði á milli að þessi þáttur fer lengra upp vampýramídann en nokkru sinni áður. — Þú þarft ekki að vera hakkari á heimsklassa til að njóta góðs af þeim stafrænu verkefnum sem Quest Portal, bakhjarl Reglubókaklúbbsins, býður upp á fyrir öll möguleg verkefni. Hvort sem það er að kljást við hverfisfautana eða að sprengja sig upp á topp vampýramídans, þá hefur Quest Portal allt sem útsendarar á vettvangi spunaspila þurfa á að halda. — Hægt er að nálgast eintak af Night’s Black Agents á vefsíðu Pelgrane Press hérna og mögulega í svartri skjalatösku hjá höfninni undir næsta fulla tungli. — Blússandi meðmæli Reglunnar Node Based Scenario Design Spunaspilavinir #24 Dómsdagur - hlaðvarp Opið spunaspilakvöld Nexus
Hvergi fyrirfinnst ömurlegra samansafn fanta og fúlmenna. En einhversstaðar verða illir að vera á þessum myrku tímum í Vetrarbrautinni.
---
Kostunaraðili Reglubókaklúbbsins er Quest Portal sem er með hýperdrifin verkfæri fyrir ævintýrin sem eiga sér stað endur fyrir löngu á fjarlægri vetrarbraut.
---
Vákar, vélmenni og ótótlegir nerf-hirðar geta nálgast eintak af Star Wars: Edge of the Empire ásamt öðrum ágætum köflum úr Stjörnustríðunum í Nexus.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
Spilastund - Star Wars spunaspil
Coriolis Simplified Space Combat
Starfinder: Narrative Starship Combat
Dungeon Crawl Classics, Pathfinder 2e og Warhammer Fantasy
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Aukastef þáttarins er The Force eftir Giuseppe Vasapolli
EFNISVIÐVÖRUN (CW) - Á einum tímapunkti í þessum þætti er fjallað um sjálfsvíg. Ef þú eða einhver sem þú þekkir er að glíma við sjálfsvígshugsanir er fjöldi úrræða sem standa til boða. Upplýsingasími heilsugæslunnar er að finna í s. 1700, Hjálparsími Rauða Krossins er 1717. Netspjall Heilsuveru býður einnig upp á aðstoð auk þess sem Píeta-samtökin er að finna í s. 552-2218.
Þau sem hafa misst ástvin í sjálfsvígi geta leitað til allra þessara aðila ásamt Sorgarmiðstöðinni í s. 551-4141.
---
Kom nú börn nætur, nærumst á skinnu þeirri sem er svo bersýnilega mörkuð af þúsund skurðum uppflettinga.
---
Reglubókaklúbburinn er í þéttu faðmlagi við Quest Portal þar sem er að finna fjöldann allan af ágætum, stafrænum verkfærum til að verja nokkrum eilífðum við að smíða þitt coterie.
---
Daggöngur geta nálgast Kjarnabók Vampire: The Masquerade m.a. í innsta kima í sæluríki Glæsibæjar.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
V5 Relationship Map Template á Kumu
Viðburðir í Bókasafni Hafnafjarðar
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Aukastef þáttarins er Habanera úr óperunni Carmen eftir Georges Bizet
Reglubókaklúbburinn fékk í heimsókn til sín Eyþór Viðarsson, raddleikara og einn af aðalsprautum raunspilunar (sannspilunar?) hlaðvarpanna The Sprouting The Lucky Die. Fyrir utan skrambi góða innsýn í hvað það tekur til að búa til raunspilunarhlaðvarp, var Eyþór meira að segja svo vinalegur að mæta með stuttan ríg í stúdíóið fyrir Regluna að kjammsa á. Líkt og áður er það Quest Portal sem styður Reglu Reglubókaklúbbsins. Þar er m.a. hægt að kynna sér eitthvað af þeim reglum úr Call of Cthulhu regluverkinu sem Eyþór vísar til. --- Blússandi meðmæli Reglunnar
The Lucky Die --- Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Gola blæs að vestan. Frá Sundrunarlöndum. Rot og ódaunn dreyra eru reiðmenn þeirra. Hyggja þau á ferðalag þangað? Í dal hinna slyppfengu og ódauðu.
---
Hina vanhelgu skinnu Mörk Borg er að finna í dýpstu kimum Glæsibæjar, hjá alkemistum harmleiksins og er Basilisk þáttarins með hin ýmsu verkfæri til að undirbúa þín eigin Ragnarök.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
I'm begging you to play another RPG
1914 - The Hundred Days Offensive
Allt þetta fríkeypis efni fyrir Mörk Borg
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Aukastef þáttarins er Slaughter For The Throne Of Dark Lord eftir Alexey Maximov
Hér eru engin brögð í tafli, þó eitthvað er að finna af fautum í þessari bófabók. Eftir afdrifaríkan eltingaleik í gegnum víddirnar hafa Reglubræður loksins Rýtingabókina umtöluðu í höndum sínum og taka hana í gegnum þriðju gráðuna.
Modus operandi Reglunnar er miðlað til hlustenda þökk sé Quest Portal sem hefur fingraför sín á þessum þætti.
---
Grunnreglur Blades in the Dark er m.a. hægt að finna hjá Quest Portal og þessari vefsíðu hérna. Án þess að vera einhver skvíler, þá er orðið á götunni að Nexus hefur verið með eintök af bókinni í haldbæru, en þú heyrðir það ekki hjá mér.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
Spunaspilavinir #18 - Þorsteinn og Ólafur ásamt góðvinum Reglunnar, þeim Tinnu og Stulla, stýra spunaspilum fyrir nýja og reynda spilara í Spilavinum þriðjudaginn 9. janúar.
DM Gives Inspiration á Spotify
Köldudyr - Seta 1: Mávunum kastað á Spotify og Apple Podcasts
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Í þann mund sem Reglubræður voru byrjaðir að stinga nefi ofan í Rýtingabók, var hópuppsögnum kastað fram á Galdraströndinni tveimur vikum fyrir jól og þeir fundu sig tilknúna að mætast í eðernum til að ráða úr rústunum.
---
Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni.
Reglubókaklúbburinn er í boði Quest Portal.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar
---
Ítarefni:
Útlistun á hinum brottreknu og tölvupóstur Cocks
DDB um 'The Mike Mearls Happy Fun Hour'
Kveikjumerking (kynferðisofbeldi, heimilisofbeldi) Umfjöllun Fandomentals um Zak Smith
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK.
Þegar ákveðinn Reglubróðir (sem við skulum ekkert einblína of lengi á) reyndi að gera fínt og skrautlegt fyrir jólin, lendir Reglan í meiriháttar víddarflakksklandri.
Þar sem Reglan reynir að leysa úr þessari fjölheimaflækju, finnur hún flottar gjafir á leiðinni og enn flottari félaga sem hjálpa að finna út úr þessu ástandi og árinu sem er senn að líða.
---
Jólagestir Reglubókaklúbbsins '23:
Patrónar vor, þau Gunnar Hólmsteinn og Tinna Halls hjá Quest Portal
Rígsmennirnir Grétar Mar og Stefán Ingvar
Silfurtyngdu sjéntilmennin Hlynur og Lúðvík
---
Blússandi meðmæli Jólareglunnar
Grétar Mar: Flee, Mortals! og Dungeons & Lasers VI: Caves
Gunnar Hólmsteinn: Draugur Dice teningagjafakort og CoraQuest
Helgi: Hunter: The Reckoning 5th Edition
Dungeon Master of None: A Turn of Fortune's Wheel
Hlynur Páll: Ástandsmerkingar (e. Condition Rings)
Jólafur Björn: Flee, Mortals!, Pathfinder 2e Beginner Box, pappírspésar og prýðilegt kort í einum og sama pakkanum frá Paizo.
Lúðvík Snær: Tome of Beasts eftir Kobold Press og 5e Kjarnabókasettið
Stefán Ingvar: Mausritter og Candela Obscura
Tinna Halls: Magical Kitties, Big Book of Battle Mats, Game Masters Book of Traps, Puzzles and Dungeons, áskrift að Storytelling Collective
Þorsteinn Mar: Dungeons and Lasers landsmælki og Flee, Mortals!
Bjalla glymur. Teppabúðin í Lágmúlanum hefur tekið úr lás samanber opnunartíma frá 11-18 (Lokað um helgar). Þú ert teppi. Fölbrúnt teppi. Einhver gengur inn. En hver? Það er ómögulegt að ráða úr.
Af því þú ert teppi. En hann stendur fyrir framan þig í dágóða stund...
Klósettið? Það er reyndar bara fyrir starfsfólk.
Allt brennur þó niður að lokum. Hver einasti þráður verður að sviðinni jörðu og hann sturtaði ekki einu sinni niður. --- Teppavirki er nýtt spunaspil eftir Stefán Ingvar Vigfússon sem kom út í seinustu viku. Reglan finnur sig tilknúna að beintengja sig við grasrót íslenskrar spunaspilamenningar með því að leggja dóm sinn á þetta allra nýjasta regluverk og veltum auðvitað fyrir okkur hvernig kostunaraðili Reglunnar, Quest Portal, nýtist vel fyrir Teppavirki. --- Blússandi meðmæli: Stefán og Aron Martin eru með sannspilunarhlaðvarpið Fífl og furðusögur sem Reglan mælir eindregið með að fólk leggi við hlustir. --- Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK.
Það er satt, við rýndum í hina myrku skruddu, þá forboðnu og viðbjóðslegu bók sem aðeins örfáir hafa fengið að bera augum, en þó er það ætlun okkar með hlaðvarpi þessu að sýna fram á að við séum með öllu heilir á geði.
Eflaust muntu fyrst uppnefna okkar, kalla geðsjúka og æra, jafnvel sturlaðri en sá sem setti sama þessi skelfilegu bók. Síðar munu áheyrendur setja allt það er við leggjum á borð og spyrja, hvernig hefðum við mátt komast að annarri niðurstöðu þegar við stóðum frammi fyrir öllum þessum hryllingi.
---
Regluverk Varðarins er að finna í yfirnáttúrulegu góðu sniðmáti hjá styrktaraðila Reglubókaklúbbsins, Quest Portal og líkamnað í bleki á örk í Stórhofi Nördanna.
---
Upprunalega kápan á The Great Gatsby og kápan á Regluverki Varðarins fyrir CoC 7e til samanburðar.
Dýpri dýfa í sögu Kall Cthulhu í Spilastund hjá Þorsteini.
---
Blússandi meðmæli Reglunnar:
Streymið hans Sly Flourish á Twitch.
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK
Föruneytið leitar djúpt inn í miðbik Kertavirkis og beitir dulspekinni á aðra og fimmtu útgáfu af leiðarvísi leikmanna fyrir Dýflissur og & Dreka.
Þar sem skinnurnar sitja undir skini Selûne reiðir vitkinn fram reykelsi ásamt vígðu vatni og með vel æfðum handabendingum og arkanískri þulu er rýnt í tvær bækur á sama tíma og gert með meðbyr þökk sé bandalagi Föruneytisins við Quest Portal.
---
Aðra útgáfu af Leiðarvísi leikmanna í D&D er hægt að finna á alvefnum hjá Dungeon Master’s Guild og DrivethruRPG.
Haldbær eintök af fimmtu útgáfu af Leiðarvísi leikmanna fyrir D&D er m.a. hægt að finna í Stórhofi Nördanna í Glæsibæ (Nexus) og í Spilavinum.
En ef þér eruð fyrir norðan eru allar líkur á því að Drýslarnir á Brekkugötu lumi á eintaki.
The Korranberg Chronicle sem Helgi nefnir í þættinum er einnig hægt að finna hjá Dungeon Master's Guild.
---
Regla Reglubókaklúbbsins samanstendur af Helga Má og Þorsteini Mar ásamt Ólafi Birni á upptökurúninni.
---
Stef þáttarins er Planned eftir PeterFK.