
Mætti bjóða yður Gonster?Hanna og Kristín ræða hin ýmsu mál, bæði stór og smá! Karlmenn í hælasokkum, blæti fyrir smökkun orkudrykkja og þemabrúðkaup eru meðal viðfangsefna þáttarins. Kristín skammast sín fyrir lag vikunnar, Hanna kynnir nýjan lið og fan vikunnar er ekki af verri endanum…Ástin er í loftinu eins og svo oft áður og stelpurnar ræða eina ákveðna trúlofun #ástin.