Home
Categories
EXPLORE
True Crime
Comedy
Society & Culture
Business
Sports
History
Fiction
About Us
Contact Us
Copyright
© 2024 PodJoint
00:00 / 00:00
Sign in

or

Don't have an account?
Sign up
Forgot password
https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Podcasts125/v4/2d/21/6e/2d216e62-4059-c864-ed17-525962bb2106/mza_18335854197160655184.png/600x600bb.jpg
Kennarastofan
Þorsteinn Sürmeli
14 episodes
1 week ago
Hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar.
Show more...
Education
RSS
All content for Kennarastofan is the property of Þorsteinn Sürmeli and is served directly from their servers with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar.
Show more...
Education
https://d3t3ozftmdmh3i.cloudfront.net/production/podcast_uploaded_episode/473312/473312-1624015026612-51f3f22139df6.jpg
Smiðja er lífsstíll
Kennarastofan
56 minutes 45 seconds
4 years ago
Smiðja er lífsstíll

Þegar ég var að móta hugmyndir mínar um Kennarastofuna og velta fyrir mér hugsanlegum viðmælendum, tók ég strax þá ákvörðun um að tala við einhvern af þeim kennurum sem sjá um Sprellifix, smiðjurnar í Langholtsskóla. Ég kynntist skipulagi þeirra fyrst á kynningu á fyrstu UTís ráðstefnunni á Sauðárkróki 2015 og hef alla tíð síðan hugsað reglulega til þess og reynt að einhverju leyti að máta mína kennslu að því.

Ég hefði getað sest niður með einhverjum af þeim frábæru Smiðjukennurum við skólann en ákvað að hafa samband við Hjalta Halldórsson, ekki síst vegna þess að hann hefur unnið með námsefnið á hinum ýmsu miðlum; hann hefur skrifað barnabækur sem eru byggðar á Íslendingasögum og heldur úti hlaðvarpi, ásamt Oddi Ingi smiðjukennara, um sama efni. Ég hafði sérstakan áhuga á að heyra frá Hjalta um það hvernig gekk að halda fyrirkomulagi Sprellifixins þegar takmarkanir í skólastarfi voru í gildi og hvort eitthvað muni taka breytingum þegar himnarnir opnast á ný.

Þetta er síðasti þátturinn í þessari fyrstu þáttaröð af Kennarastofunni. Ég vil þakka fyrir frábærar viðtökur ykkar, kæru hlustendur, og stuðning samstarfsaðila Kennarastofunnar; Vendinámssetri Keilis, Erasmus+ Menntaáætlunar Evrópusambandsins og Smástirnis. Ég hlakka til að halda samtalinu áfram eftir sumarfrí. Njótið sumarsins!

- - -

Ég vil þakka Fríðu Dís Guðmundsdóttur fyrir merki þáttarins og ómótstæðilegt bassastef og Smára Guðmundssyni hjá Smástirni fyrir upptökur og hljóðvinnslu á þáttunum og upptökur á stefinu sem þau útsettu í sameiningu.

Kennarastofan er framleidd af mér með stuðningi frá Vendinámssetri Keilis og Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins.

kennarastofan.is

Kennarastofan
Hlaðvarp um nám og kennslu í breyttum heimi menntunar.