All content for Já elskan is the property of jaelskanpodcast and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Ímyndaðu þér, þú ert að horfa á sjónvarpið - kannski bara American Murder á netflix… og svo skyndilega stækkar sjónvarpið fyrir framan þig. Þú áttar þig á því að allt herbergið sem þú ert í er skyndilega orðið stærra. Þú lítur niður á símann þinn. Allt í einu stækkar síminn og stækkar þangað til hann er orðinn miklu stærri en hausinn á þér. Þú skoðar þá hendurnar þínar og þú ert bara komin með jafn stórar hendur og 2 ára frænka þín. Þú verður mjög hrædd þannig þú stendur upp úr sófanum og þá er allt í einu fjarlægðin í loftið á herberginu orðin 10 metrar og þú ert bara pínulítil vera í risastóru herbergi.... Instagram: jaelskan
Þessi þáttur var gefinn út: 12. október 2020