All content for Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms is the property of heilsuhladvarp and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Sara Sigmundsdóttir CrossFit íþróttakona um ferilinn, stofnfrumumeðferð, að keppa án krossbands, sálrænt álag í keppnisíþróttum, seiglu, bjartsýni og lífsgleði.
Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
2 hours 48 minutes
1 week ago
Sara Sigmundsdóttir CrossFit íþróttakona um ferilinn, stofnfrumumeðferð, að keppa án krossbands, sálrænt álag í keppnisíþróttum, seiglu, bjartsýni og lífsgleði.
✨ Viðtal við Söru Sigmunds CrossFit meistara ✨
Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega sögu Söru Sigmundsdóttur, eins þekktasta crossfit keppanda heims.
Sara hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiða meiðslasögu en hefur aldrei látið það stöðva sig – hún heldur áfram með ótrúlega seiglu og járnvilja.
Hún segir okkur frá því hvað dró hana fyrst inn í crossfit, hvernig ferillinn hefur þróast og hvernig hún tók stórt skref þegar hún ákvað að hætta að treysta eingöngu á hefðbundna læknavísindi. Hún hætti á öllum lyfjum – þar á meðal krabbameinslyfjum sem henni voru ávísuð vegna gigtargreiningar – og hefur ekki lengur greiningu á gigt. Í staðinn tók hún mataræðið í gegn og hefur snúið sér að óhefðbundnum meðferðum, meðal annars stofnfrumumeðferð og blóðmeðferð sem hún sækir nú til Argentínu.
Við ræðum einnig um hvernig það er að keppa á hæsta stigi íþrótta án krossbands, og andlegu átökin þegar læknir sagði henni að hún þyrfti að hætta í íþróttum, sætta sig við liðskipti innan fárra ára og að hún gæti jafnvel aldrei leikið sér með börnunum sínum.
Í stað þess að sætta sig við örlögin valdi Sara aðra leið – hún tvíefldist, fór að rannsaka hvaða aðrir möguleikar væru í boði og fann sína eigin leið til bata.
Þetta er einstök saga af þrautseigju, hugrekki og því að neita að gefast upp. 🌟
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.
🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna.
✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.