All content for Fréttir úr feðraveldinu is the property of María Pétursdóttir and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu.
Í morgun var haldinn blaðamannafundur þar sem Íslandi var tilkynnt að konur muni leggja niður störf þann 24. október næstkomandi. Kvennaverkfallið í ár byggir á því að enn er algjört vanmat á störfum kvenna, launuðum sem ólaunuðum, og enn er ofbeldi gegn konum eins og faraldur sem fær að geisa hömlulaus, kynslóð eftir kynslóð.
Í þætti kvöldsins fengum við því til okkar tvær konur sem leggja nú nótt við dag að skipuleggja verkfallið. Hvernig gengur undirbúningurinn og hvað gengur konum til nú næstum fimmtíu árum eftir að konur lögðu fyrst niður störf svo öll heimsbyggðin tók eftir?
Gestir kvöldsins eru þær Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB og skipuleggjandi Kvennaverkfalls 2023 og Inga Auðbjörg Straumland, viðburðarstýra Kvennaverkfalls 2023
Fréttir úr feðraveldinu
Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu.