
Við bregðum okkur aftur í tímann. Þvælumst um Kársnesið þegar hér voru hænsnabú og hermenn, kjörbúðir og krakkar á ísnum. Við heyrum af frumbyggjum og fornum ormum og skyggnumst inn í líf fólks á fimmta, sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.
Gengið er í hring frá Borgarholtsbraut 71 niður að sjó, út að Kópavör og aftur í gegnum hverfið um leynistíga og framhjá Stelluróló.
Kort af göngunni má nálgast á flaneri.is
00:00 Upphafsstaður - Borgarholtsbraut 71
01:25 Gengið niður að Kársnesstíg
05:50 Meðfram sjónum
14:08 Staldrað við hænsnabú
16:25 Gengið upp í hverfi
22:30 Kársneskjör/Guðnabúð
24:10 Kreditlisti
Flanerí KÓP er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.