Guðrún Helga Sørtveit, áhrifavaldur og eigandi fyrirtækisins Fyrsta árið, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.
Í þættinum opnar Guðrún sig um móðurhlutverkið, þegar hún fékk utanlegsfóstur sem varð til þess að fjarlægja þurfti annan eggjastokkinn og gleðina og kvíðann sem hún upplifði þegar hún varð fljótlega aftur ólétt. Hún segir frá báðum meðgöngunum og fæðingunum og ræðir einnig einlæg um fæðingarþunglyndi, samfélagsmiðla og margt fleira.