All content for Einstæð is the property of Viktoría Rós Jóhannsdóttir and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Einstæð er nýtt íslenskt hlaðvarp um líf einstæðra foreldra á Íslandi.
Finnið okkur á Instagram: @einstaed
Í þættinum okkar í dag spjallaði ég við hana Margréti í gegnum Zoom.
Margrét var rúmliggjandi sjúklingur sem hefur þurft á mörgum aðgerðum að halda síðustu ár.
Þegar mörg áföll dynja yfir á stuttum tíma er auðvelt að liggja bara og vorkenna sjálfum sér og festast í hlutverki fórnarlambs.
Eftir bakaðgerð tvö tók hún þá ákvörðun að segja upp hlutverki sjúklings og finna sér leið til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.
Hún hóf nám í Markþjálfun og þá fyrst tók líf hennar nýja og betri stefnu.
Hún ræðir um veikindin, lærdóminn og Þakklætisdagbókina sem hún gaf út núna í haust. En þar sameinar hún það sem hefur reynst henni best þegar þarf að takast á við erfið verkefni í lífinu, þakklæti og að ögra sér stöðugt með því að fara út fyrir þægindarammann.
Lykilsetningin hennar er “Draumar geta ræst ef þú bara trúir”
Svo er 15% afsláttur fyrir hlustendur. Þeir geta pantað bæði í gegn um mitt instagram og eins í gegn um vefsíðu Hverablóms með codanum einstæð https://hverablom.is/product/thakklaetisdagbokin/
Instagram: @Marktjalfi
Einstæð
Einstæð er nýtt íslenskt hlaðvarp um líf einstæðra foreldra á Íslandi.
Finnið okkur á Instagram: @einstaed