All content for Draugar fortíðar is the property of Hljóðkirkjan and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin
Draugar fortíðar
1 hour 36 minutes
3 weeks ago
#261 Lygar og morð: Hinn einkennilegi Stéphane Bourgoin
Finndu þér miða á túrinn okkar um landið hér.Upp úr 1990 fór einn maður að láta að sér kveða í frönsku þjóðlífi og vakti mikla athygli. Hann virtist sérfræðingur um nokkuð sem Frakkar höfðu til þessa gefið lítinn gaum: Raðmorðingjar. Maður þessi var Stéphane Bourgoin. Hann var alveg ómenntaður en virtist hreinlega vita allt um þetta efni. Frakkar voru heillaðir af þessum einkennilega manni sem talaði svo fjálglega en einnig fræðilega um þessi myrku mál. Fjölmiðlamenn elskuðu hann. Meira að segja lögreglan leitaði til hans. Hann talaði jafnvel við, og hughreysti, fólk sem hafði misst ástvini sem höfðu verið myrtir. Það var ekki fyrr en áratugum seinna að áhugafólk um glæpi fór að kanna Bourgoin kyrfilega. Þá kom ýmislegt misjafnt í ljós.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon
Vefverslun Drauganna
Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Draugar fortíðar
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.