All content for Draugar fortíðar is the property of Hljóðkirkjan and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
Í febrúar árið 1989 var japanska barnaskólakennaranum Yumi Tanaka brátt í brók og þurfti nauðsynlega að komast á klósettið. Á stúdentagörðum þar sem hún bjó voru klósett frekar gamaldags. Í raun aðeins hola í gólfinu sem leiddi út í rotþró fyrir utan húsið. Sér til furðu tekur Tanaka eftir einhverju í salernisholunni. Það er skór af manni. Hún fór út til að athuga hvort hún sæi eitthvað betur. Fyrir utan var lítið op sem leiddi niður í rotþróna. Þar gerði Tanaka hryllilega uppgötvun og hringt var samstundis á lögregluna. Þetta er vægast sagt dularfullt mál og internet löggur samtímans eru sífellt að velta fyrir sér hvað í ósköpunum gæti hafa gerst. Atriði í þættinum geta valdið klígju.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon
Vefverslun Drauganna
Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Draugar fortíðar
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.