All content for Draugar fortíðar is the property of Hljóðkirkjan and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.
Þrátt fyrir að vera leiðtogi smáríkis þá kom hann Kúbu ansi langt inn á leikborð alþjóðastjórnmála. Raunar var Kúba miðpunkturinn í deilu Sovétríkjanna og Bandaríkjanna árið 1962 en þá saup öll veröldin hveljur. Aldrei nokkurn tíma var eins mikil hætta á kjarnorkustríði milli stórveldanna. Fidel Castro er ugglaust einn umdeildasti leiðtogi sögunnar. Hann reif þjóð sína upp úr fátækt og stórbætti heilbrigðis - og menntakerfi. Andóf gegn stjórnvöldum var þó miskunnarlaust barið niður og fjölmiðlun var langt frá því að vera frjáls. Castro hafði mikla útgeislun og vakti athygli hvar sem hann kom. Í raun varð hann fyrirmynd byltingarmanna um allan heim. Hann sýndi öðrum leiðtogum rómönsku Ameríku að hægt var að standa upp í hárinu á Bandaríkjunum og losa landið við arðrán fyrirtækja þeirra og spillingu mafíunnar. Fólki er bent á að þættirnir um Ameríku-skólann (nr. 181) og Fulgencio Batista (nr. 198) tengjast þessu efni mjög. Mælum með að hlusta á þá.Viltu heyra fleiri þætti? Kynntu þér Draugana á Patreon
Vefverslun Drauganna
Tónlistin úr þáttunumUmræðuhópur Drauganna á Facebook
Draugar fortíðar
Flosi Þorgeirsson fræðir Baldur Ragnarsson um áhugaverða liðna atburði.