All content for Bylgjan is the property of Bylgjan and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin.
Í þessum þætti:
AlþjóðamálValur Gunnarsson, rithöfundurValur fjallar um nýja bók sína, Grænland og fólkið sem hvarf, þar sem hann reynir að ráða gátuna um Íslendingana sem höfðust við á Suður-Grænlandi fram á 15du öld en hurfu eftir það sporlaust.
StjórnsýslaSigmar Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra Sigmar og Sigríður fjalla um stöðu Ríkislögreglustjóra í ljósi frétta af fjármálum embættisins. Getur lögreglustjórinn setið áfram?
Vaxtamál, fjármagnskostnaðurDagur B. Eggertsson alþingismaður og Lilja D. Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknarflokksins rökræða þá hugmynd hvort upptaka Evru gæti lækkað vexti á Íslandi, ef ekki sú leið, hver þá?
Efnahagsmál/alþjóðamálÞorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur, Þorsteinn fjallar um ískyggilega stöðu á bandarískum hlutabréfamarkaði þar sem verð hefur hækkað gríðarlega, svo mikið að margir búast nú við snöggri og afdrifaríkri leiðréttingu - sumsé miklu verðfalli með tilheyrandi áhrifum heima fyrir og út um allan heim. Samlíkingar hafa verið dregnar við hrunið 1929, dotcom bóluna og fleiri ámóta áföll. Er efnahagshrun framundan í Bandaríkjunum?
Bylgjan
Bylgjan er fyrsta einkarekna útvarpsstöðin á Íslandi. Hún hóf útsendingar 28.ágúst árið 1986