
Vesturgata 28
Verið velkomin í göngu á vegum Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO um slóðir Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness í miðbænum. Haukur Ingvarsson er en með honum verður enginn annar en Halldór sjálfur því við munum hlusta á brot úr textum hans í upplestri hans sjálfs. Stoppin eru tíu og þótt við mælum með því að þeim sé fylgt í réttri röð má líka staldra við á völdum stöðum eftir áhuga hvers og eins.
Upptökur af lestri Halldórs eru frá Ríkisútvarpinu og eru birtar hér með góðfúslegu leyfi þess. Guðni Tómasson er líka með í för en hann mun glæða texta lífi með rödd sinni.
Bókmenntaborgin þakkar Gjúfrasteini, húsi skáldsins, og RÚV fyrir samstarf við gerð göngunnar.