All content for Asgeir Lie - Podcast is the property of Asgeir Lie and is served directly from their servers
with no modification, redirects, or rehosting. The podcast is not affiliated with or endorsed by Podjoint in any way.
Í fyrsta þætti mínum í nýrri seríu þá kíkir til mín skólastýran, rithöfundurinn og þúsundþjalasmiðurinn Hrund Hlöðversdóttir. Hún leikur, útsetur, skrifar, syngur og dansar og hún kann að spila á harmonikku! Hún hefur skrifað þrjár bækur og þrátt fyrir að fá neitanir frá bókaútgáfum eftir fyrstu bókina sína, gaf hún hana samt út og demdi sér í að skrifa aðra bók sína í þríleik og er sú þriðja að koma út á næstu vikum með útgefanda. Vel gert Hrund! Hún er að taka kúvendingu á ákveðnum kaflaskilum í lífi hennar sem hún segir vera sitt tækifæri. Hún sagði upp vinnu sinni sem skólastjóri og sér ekki eftir því. Hún flyst erlendis á næstu mánuðum og ætlar að skrifa og láta kosmósinn og vindana sjá um hvert hún fer í kjölfarið. Hrund flutti inn í nýja íbúð og ákvað að hafa ekki sjónvarp á heimilinu sínu., Hún segir það vera frelsandi og tímagefandi.
Það verður hægt að fylgjast með henni á samfélagsmiðlum í því sem sem hún ætlar að taka sér fyrir hendur. Nánar inn á www.hrund.net.
Hún heldur tónleika 4 mai nk í Laugaborg Eyjafjarðarsveit og er spennt. Þar tvinnur hún saman bækurnar sínar og tónlist. Til að ljúka sögulokum þar og hefja nýja sögu í kjölfarið erlendis.
Takk fyrir gott spjall Hrund og takk fyrir að hlusta!